Fréttablaðið - 12.12.2014, Blaðsíða 60
FÓLK|
Einfaldir réttir eru þægi-legastir þegar mikið er að gera. Hér eru uppskriftir að
þægilegum kvöldverði á anna-
sömum tíma fyrir fjölskylduna
eða vini.
GRAFINN LAX MEÐ
SINNEPSSÓSU
Í forrétt er upplagt að bjóða
upp á reyktan eða grafinn lax
með eggjabátum, salati, ristuðu
brauði og góðri sósu. Best er að
gera sósuna sjálfur. Hér er upp-
skrift að sinnepssósu sem passar
vel með.
SINNEPSSÓSA
4 eggjarauður
1 msk. sykur
1 msk. vínedik
3 msk. gróft sinnep
2½ dl rapsolía
3 msk. ferskt dill, smátt skorið
salt og nýmalaður pipar
Þeytið eggjarauður, sykur, edik
og sinnep þar til hræran er
kekkjalaus og sykurinn leystur
upp. Hellið olíu saman við í
smáskömmtum smátt og smátt,
hrært stöðugt í á meðan. Bætið
dilli saman við og bragðbætið
með salti og pipar.
BAKA MEÐ BEIKONI
Bökur eru vinsælar á hlaðborð
og því upplagðar til að taka með
sér í matarboð. Hægt er að gera
bökur með margvíslegu áleggi,
allt eftir smekk hvers og eins.
Að auki er hægt að búa til bök-
una kvöldið áður en á að neyta
hennar og því þægileg að eiga í
ísskápnum í stressinu í desem-
ber. Hún er þá hituð stutta stun d
fyrir kvöldmat eða sneið sett í
örbylgjuofn.
BOTNINN
125 g smjör
200 g hveiti
um það bil 2 msk. vatn
FYLLING
150 g beikon í bitum
¼ blaðlaukur
250 g rifinn ostur
2 msk. smátt skorinn graslaukur
Nýmalaður pipar
4 egg
2½ dl mjólk
Aðferð
Smjörið á að vera við stofuhita.
Hnoðið saman smjöri og hveiti.
Bætið vatni eftir þörfum þar til
deigið verður jafnt og fínt. Kælið
í ísskáp í 30 mínútur.
Fletjið út deigið og setjið í
bökuform. Stingið í það með
gaffli. Bakið við 200°C í um það
bil 10 mínútur eða þangað til
deigið tekur lit.
Steikið beikon á pönnu ásamt
blaðlauknum. Setjið í bökuna
eftir að hún er tekin úr ofninum.
Hrærið eggjum, mjólk, graslauk
og pipar saman í skál. Hellið
blöndunni ofan á beikonið. Dreif-
ið rifnum osti yfir.
Bakið bökuna áfram við 180°C
í 25 mínútur þar til eggjablandan
stífnar.
Berið fram með fersku salati.
JARÐARBER MEÐ
GRÍSKRI JÓGÚRT
Oft langar mann í eitthvað á
kvöldin og þá er ágætt að eiga
svona nammi í frystinum. Þetta
er líka flott að bera á borð fyrir
gesti.
16 jarðarber
350 g grísk jógúrt
2 msk. sykur
2 msk. mjólk
fræ úr einni vanillustöng
Kljúfið vanillustöngina í tvennt
og skrapið fræin úr henni.
Blandið þeim því næst saman við
gríska jógúrt, sykur og mjólk.
Sniðugt er að nota trépinna
og setja eitt jarðarber á endann
á honum. Sams konar pinnar og
notaðir er í „cake pops“. Dýfið
jarðarberinu ofan í jógúrtblönd-
una.
Setjið í frystinn. Notið glas til
að stinga í eða stingið í gegnum
tóman eggjabakka.
LÉTTIR RÉTTIR Á
AÐVENTUNNI
LÉTT OG GOTT Fólk borðar mikið af þungum veislumat þessa dagana.
Er ekki upplagt að hafa eitthvað létt í matinn í kvöld? Til dæmis þessa góðu
böku. Í henni er beikon en því má sleppa og setja eitthvað annað í staðinn,
til dæmis hafa einungis grænmeti.
JARÐARBER Jarðarber með grískri
jógúrt.
BAKA
Ljúffeng baka með beik-
oni og blaðlauk.
GRAFINN LAX Lax með heimagerðri
sinnepssósu.
HELGIN
Staðfest með
rannsóknum sl. 14 ára -
vinnur á einkennum
tíðahvarfa kvenna.
Inniheldur staðlað tofu
extract, ekki erfðabreytt
(GMO frítt)
Náttúruleg lausn fyrir
konur án hormóna.
Ábendingahnappinn má finna á
www.barnaheill.is