Fréttablaðið - 12.12.2014, Síða 12
12. desember 2014 FÖSTUDAGUR| FRÉTTIR | 10
SAMFÉLAG Nokkur þúsund fjölskyld-
ur hafa nú þegar sótt um aðstoð hjá
hjálparsamtökum á höfuðborgar-
svæðinu vegna hátíðahalds um jólin.
Í fyrra fengu um fimm þúsund fjöl-
skyldur svokallaða jólaaðstoð og
gera samtökin ráð fyrir svipuðum
fjölda nú.
„Í fyrra fengu á þriðja þúsund
fjölskyldur jólaaðstoð hjá okkur.
Þær verða ekki færri í ár. Mér sýn-
ist að þetta verði ívið meira en verið
hefur en við erum enn að taka við
umsóknum. Það bætist alltaf við síð-
ustu dagana fyrir jól og við reynum
að leysa úr því,“ segir Ragnhildur
Guðmundsdóttir, formaður Mæðra-
styrksnefndar Reykjavíkur.
Jólaaðstoð Mæðrastyrksnefnd-
ar er í formi matar og börn fá smá-
gjafir, að sögn Ragnhildar. „Það eru
margir sem hugsa til okkar á þess-
um tíma og fyrir jól koma oft stór-
ar pakkningar af ýmiss konar gjafa-
vöru.“
Ragnhildur tekur það fram að sér
virðist samfélagið vera að breytast.
„Það eru hlutir að gerast sem taka
þarf föstum tökum. Það eru margir
sem eiga við verulega erfiðleika að
etja og eru illa í stakk búnir til að
takast á við áföll.“
Ásgerður Jóna Flosadóttir, for-
maður Fjölskylduhjálpar Íslands,
segir umsóknir um jólaaðstoð
streyma inn. „Um 1.600 til 1.700 fjöl-
skyldur á höfuðborgarsvæðinu og á
Reykjanesi fengu sérstaka aðstoð
vegna jólahátíðarinnar hjá okkur
í fyrra. Nú þegar hafa borist yfir
1.300 umsóknir og þær halda áfram
að streyma inn þótt síðasti umsókn-
ardagur hafi verið síðastliðinn föstu-
dag. Hingað hringir fólk grátandi,
bæði konur og karlar. Fólk reynir
fram á síðustu stundu að bjarga sér
sjálft en svo sér það að það getur það
ekki. Þá er gott að geta gripið fólkið
og við gerum það.“
Aðstoðin sem Fjölskylduhjálp
Íslands veitir er í formi jólamatar,
að sögn Ásgerðar.
Hjálparstarf kirkjunnar og Hjálp-
ræðisherinn í Reykjavík hafa ákveð-
ið að starfa saman að jólaaðstoð við
efnalitlar barnafjölskyldur í borg-
inni í ár. „Þar sem önnur hjálparsam-
tök eru að störfum á höfuðborgar-
svæðinu höfum við afmarkað okkur
við barnafjölskyldur en úti á landi
geta allir sótt um aðstoð hjá Hjálp-
arstarfi kirkjunnar,“ segir Bjarni
Gíslason, framkvæmdastjóri Hjálp-
arstarfsins. Rúmlega 1.400 fjölskyld-
ur fengu jólaaðstoð hjá Hjálparstarfi
kirkjunnar í fyrra. „Við erum ekki
búin að fara yfir allar umsóknir sem
borist hafa núna en það er tilfinning
okkar að fjöldinn verði ekki meiri í
ár. Vonandi verður hann minni.“
Hjá Hjálparstarfinu er aðstoðin í
formi inneignarkorts sem hægt er að
nota í matvöruverslunum. „Fólk fær
kort og þarf ekki að standa í röð eftir
aðstoð. Það er meiri mannvirðing í
því að fólk fari að versla eins og allir
aðrir,“ segir Bjarni. ibs@frettabladid.is
Þúsundir fjölskyldna
fá aðstoð til jólahalds
Fimm þúsund fjölskyldur fengu aðstoð fyrir jólin í fyrra hjá hjálparsamtökum á
höfuðborgarsvæðinu. Bæði konur og karlar hringja grátandi og biðja um hjálp.
ÚTHLUTUN
UNDIRBÚIN
Starfskonur
Mæðrastyrks-
nefndar
undirbúa
jólaúthlutun
á Korputorgi.
Ragnhildur
Guðmunds-
dóttir, sem er
í miðið, segir
marga eiga við
verulega erfið-
leika að etja.
FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
PI
PA
R\
TB
W
A
•
SÍ
A
•
14
47
10
Fallegar jólagjafir
jonogoskar.is Sími 5524910 Laugavegi 61 Kringlan Smáralind
HAFNARFJÖRÐUR Bæjarstjórn
Hafnarfjarðar krefst þess að
Landsnet fjarlægi háspennulín-
ur í landi bæjarins og segir þær
hamla eðlilegri þróun sveitar-
félagsins. Ályktun þess efnis var
samþykkt í bæjarstjórninni á mið-
vikudag.
„Við erum að fara fram á að
staðið verði við samkomulag frá
2009 um flutning á línum sem
liggja að Hamranesi við Valla-
hverfið og fara í gegnum nýja
hverfið Skarðshlíð þar sem búið
er að leggja götur og setja upp
staura,“ segir Haraldur L. Har-
aldsson, bæjarstjóri Hafnarfjarð-
ar.
Haraldur sendi fyrirtæk-
inu bréf í byrjun desember þar
sem hann óskar eftir viðræð-
um um línurnar og tengir þær
við umsókn Landsnets um fram-
kvæmdaleyfi vegna lagningar
Suðurnesjalínu 2.
„Við óskum eftir því að fyrir-
tækið útskýri hvaða forsendur
hafi breyst frá samkomulaginu
2009 og réttlæti að Landsnet hafi
frestað þessum framkvæmdum.
Það er mjög mikilvægt að þess-
ar línur verði fjarlægðar svo við
getum haldið áfram með uppbygg-
ingu á svæðinu,“ segir Haraldur.
Guðmundur Ingi Ásmunds-
son, aðstoðarforstjóri Landsnets,
segir fyrirtækið hafa fullan hug
á að standa við samkomulagið og
hefja viðræður við bæjaryfirvöld.
„Það var gerður viðauki við
samninginn í október 2012 og þá
var farið yfir allar þessar for-
sendur sem meira og minna tengj-
ast því að flutningsþörfin inn á
svæðið jókst hægar en áætlanir
gerðu ráð fyrir í kjölfar efnahags-
hrunsins. Við höfum fullan skiln-
ing á stöðu Hafnarfjarðarbæjar
og í samningnum er gert ráð fyrir
að við byggjum ný mannvirki, eigi
síðar en 2020, sem þurfa að rísa
svo línurnar geti farið,“ segir
Guðmundur og heldur áfram:
„Bygging Suðurnesjalínu 2 er
í raun og veru fyrsti áfanginn í
þeirri framkvæmdaröð og því
erum við að þrýsta á að fá leyfi
fyrir henni.“ - hg
Hafnarfjarðarbær óskar eftir viðræðum um línurnar:
Krefst þess að
Landsnet fjarlægi
háspennulínurnar
VIÐ VELLINA
Háspennu-
línur Lands-
nets liggja að
Hamranesi
við Valla-
hverfið í
Hafnarfirði.
FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
SKÓGRÆKT Dagur B. Eggertsson
borgarstjóri opnar jólaskóginn
fyrir höfuðborgarbúum með því
að höggva fyrsta tréð klukkan 11
á laugardaginn.
Allur ágóði af sölu jólatrjáa
rennur til uppbyggingar og við-
halds Heiðmerkur. Í staðinn fyrir
hvert tré sem höggvið er gróður-
setur félagið að minnsta kosti
þrjátíu tré.
Jólasveinar koma í heimsókn
alla dagana sem jólaskógurinn er
opinn og varðeldur er kveiktur.
Boðið verður upp á heitt kakó og
jólalög sungin. - jhh
Jólaskógurinn í Heiðmörk:
Þrjátíu lítil tré
fyrir eitt stórt
ALÞINGI Minnihluti fjárlaganefnd-
ar telur að í ljósi eldsumbrota í
Holuhrauni þurfi að stofna ham-
farasjóð. Hann sjái um þá þætti
sem aðrir sjóðir, eins og ofan-
flóðasjóður, Bjargráðasjóður og
Viðlagatrygging sjái ekki um. Til
dæmis afleiðingar flóða af völd-
um eldgosa.
Þetta er meðal þess sem kom
fram í nefndaráliti við fjár-
aukalög fyrir þriðju umræðu.
Umræðunni lauk í gær en
atkvæðagreiðslu er ólokið. Ann-
arri umræðu um frumvarpið lauk
rétt fyrir tíu í fyrrakvöld. - jhh
Fjáraukalög rædd á Alþingi:
Vilja stofna
hamfarasjóð