Fréttablaðið - 12.12.2014, Page 18
12. desember 2014 FÖSTUDAGUR| FRÉTTIR | 16
Garðar Örn
Úlfarsson
gar@frettabladid.is
ÖRYGGISMÁL „Þetta er bara stór-
hættulegt,“ segir Oddur Jónsson,
formaður björgunarsveitarinnar
Ægis í Garði, um íbúðarhúsið
Vík þar sem þakplötur eru allar
meira og minna lausar og tjaldað
hefur verið yfir með neti.
Vík hefur verið í niðurníðslu
um árabil. Eigendurnir hafa
ekki haft efni á viðgerðum. Í
hvert skipti sem gerði rok voru
björgunarsveitarmenn kallað-
ir að Vík. Loks kviknaði sú hug-
mynd að bregða
neti yfir húsið
svo það væri til
friðs og ógnaði
ekki nærliggj-
andi húsum.
Oddur segir
Ægismenn hafa
brugðið nót yfir
Ví k i n a me ð
hjá lp bæjar-
starfsmanna úr Garði fyrir um
tveimur árum. „Það hefur virk-
að vel; við höfum ekki þurft að
fara í það síðan. En veturna tvo
þar á undan þurftum við að fara
í það nokkrum sinnum til þess að
festa og binda og herða á spott-
um,“ segir hann.
Óveðrin tvö að undanförnu
hafa tekið sinn toll af Vík. Á mið-
vikudag mættu tveir bæjarstarfs-
menn frá Garði til að fiska upp
þakplötur og festa stög sem bund-
in eru við fiskikör með fargi. Það
kemur Oddi ekki á óvart. „Ég sá
að það var farið að losna í einu
horninu og rifna aðeins nótin og
aðeins farið að stingast upp úr,“
segir hann.
Jafnvel þótt húsið virðist
hvorki halda vatni né vindum býr
annar eigandinn í því. „Það er
timburgólf í húsinu og timburþak
og maðurinn býr þarna í kjallar-
anum. Þannig að ef þetta fellur
niður þá veit maður ekki hvar
þetta endar,“ segir Oddur sem
skilur ekki að maðurinn skuli
búa í húsinu við þessar aðstæð-
ur og furðar sig á stöðu málsins
almennt.
„Maður áttar sig ekki á hvað
yfirvöld og heilbrigðisyfirvöld
eru máttlaus gagnvart svona.
Eigendarétturinn virðist vera svo
sterkur,“ segir formaður Ægis
og varar við afleiðingunum. „Ef
netið rifnar og allt fer af stað þá
eru íbúarnir þarna í kring nátt-
úrlega í hættu.“
Aðspurður segir Oddur að þrátt
fyrir ástandið á húsinu hafi ekki
orðið slys á fólki eða skemmdir
á öðrum húsum vegna fjúkandi
braks. „Það hefur sem betur fer
sloppið,“ svarar hann.
Ekki náðist í eigendur hússins.
Fyrrverandi fóstursonur manns-
ins sem býr í húsinu kveðst sjálf-
ur hafa búið í húsinu þar til fyrir
um tveimur árum. Rætt hafi
verið um að lagfæra húsið en
aldrei orðið neitt úr því.
Nágrannar Víkur óttast slys
og skemmdir og hafa kvartað
undan málinu til sveitarfélags-
ins. Hvorki Magnús Stefánsson
bæjarstjóri né Jón Ben Einarsson
byggingarfulltrúi svðruðu skila-
boðum Fréttablaðsins í gær.
Formaður björgunarsveitar varar
við „stórhættulegu“ húsi í Garði
Óvenjulegur frágangur á íbúðarhúsi í Garðinum vekur áhyggjur nágranna. Þakplötur eru lausar og eigandinn hefur ekki ráð á að varna
því að þær fjúki. Björgunarsveitin Ægir og bæjarstarfsmenn strekktu loks fiskinet yfir húsið til að halda plötunum í skefjum í hvassviðrum.
Maðurinn býr þarna í
kjallaranum. Þannig að ef
þetta fellur niður þá veit
maður ekki hvar þetta
endar.
Oddur Jónsson, formaður björgunar-
sveitarinnar Ægis í Garði.
PLÖTUR Bæjarstarfsmenn draga saman lausar þakplötur í fyrradag.
STÖGIN TREYST Nágrannar hússins Víkur á Rafnkelsstaðavegi hafa í tvö ára fylgst með fiskineti halda lausum þakplötum í skefjum þegar vindar blása um Garðinn. Farg í
fiskikari er notað til að binda stög úr netinu.
MAGNÚS
STEFÁNSSON