Fréttablaðið - 12.12.2014, Side 34
12. desember 2014 FÖSTUDAGUR| TÍMAMÓT |
TÍMAMÓT
Ágóða af styrktartónleikum tónleika-
raðarinnar „Á ljúfum nótum í Laugar-
neskirkju“, sem haldnir verða kl. 12 á
hádegi í dag, verður varið til kaupa á
sérstökum dýnum í rúmin á krabba-
meinsdeild 11-E á Landspítalanum. Á
tónleikunum flytur góður hópur lista-
manna margar jólaperlur, að sögn Lilju
Eggertsdóttur, listræns stjórnanda tón-
leikaraðarinnar.
Lilja, sem starfar sem píanóleik-
ari við Söngskóla Sigurðar Demetz,
útskrifaðist í píanóleik frá Tónskóla
Sigursveins. Hún tók kirkjuorganista-
próf frá Tónskóla Þjóðkirkjunnar auk
þess sem hún var í meðleikaranámi í
Söngskóla Sigurðar Demetz. Lilja lærði
auk þess óperusöng við Tónlistarhá-
skólann í Utrecht í Hollandi og hefur
starfað sem tónlistarmaður í þó nokk-
urn tíma, eins og hún orðar það.
Á tónleikunum í hádeginu í Laugar-
neskirkju í dag koma fram einsöngvar-
arnir Viðar Gunnarsson, Auður Gunn-
arsdóttir og Nathalía D. Halldórsdóttir,
Leifur Gunnarsson kontrabassaleik-
ari, Kvennakórinn Hekla og Kamm-
erhópurinn Stilla en Lilja er stjórn-
andi Kvennakórsins og einn stofnenda
Kammerhópsins. Hún stofnaði jafn-
framt tónleikaröðina Á ljúfum nótum
sem hefur verið í gangi í um þrjú ár.
„Meginmarkmið tónleikaraðarinnar
var að bjóða upp á möguleika fyrir allt
tónlistarfólk til að koma fram með sitt
verkefni þar sem meðal annars hús-
næði væri frítt eða á lágu verði og mið-
svæðis. Ég hafði sérstaklega í huga það
fólk sem kemur heim úr námi þar sem
aðalvinna tónlistarmanna hér á landi
felst mikið í tónlistarkennslu,“ greinir
Lilja frá.
Hún getur þess að annað markmið
hafi verið að bjóða upp á tónleikaröð
þar sem tónlistarmenn koma úr flest-
um stéttum tónlistar og það þriðja að
efla þá menningu að sækja hádegistón-
leika. „Það er að sú hefð skapist að fólk
geti leyft sér að njóta tónlistar í hádeg-
inu í stutta stund þar sem ekki hafa
allir tök á því að komast út á kvöldin
eða á öðrum tíma dagsins.“
Nokkrir tugir gesta hafa að jafnaði
sótt tónleikana sem boðið hefur verið
upp á í hádeginu en á fyrri styrktar-
tónleikum hafa gestirnir verið um það
bil hundrað. „Ég vona að margir komi
í hádeginu í dag til þess að hlýða á
perlurnar sem óma á jólatónleikunum
okkar og styrkja um leið gott málefni,“
segir Lilja.
ibs@frettabladid.is
Jólatónleikar og söfnun
fyrir dýnum í spítalarúm
Hópur tónlistarmanna kemur fram á tónleikum í Laugarneskirkju í dag og fl ytur þekktar
jólaperlur. Ágóða varið til kaupa á rúmdýnum fyrir krabbameinsdeild Landspítalans.
JÓLAPERLUR „Ég vona að margir komi í hádeginu í dag til þess að hlýða á perlurnar sem óma á jólatónleikunum okkar og styrkja um leið gott
málefni,“ segir Lilja Eggertsdóttir. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Meginmarkmið
tónleikaraðarinnar var að
bjóða upp á möguleika fyrir
allt tónlistarfólk til að koma
fram með sitt verkefni þar
sem meðal annars húsnæði
væri frítt eða á lágu verði og
miðsvæðis.
Breski togarinn Dhoon strandaði á skeri í
dimmviðri og haugasjó undir Látrabjargi
föstudaginn 12. desember 1947.
Skerið var um 100 metra frá landi og
sjór gekk látlaust yfir skipið. Skipstjórinn og
fyrsti stýrimaður voru báðir afleysingamenn
í þessum túr en bátsmaðurinn tók stjórnina
í sínar hendur og sýndi mikinn dug. Þrír af
fimmtán manna áhöfn fórust en hinum var
bjargað við afar erfiðar aðstæður. Það gerðu
bændur á nálægum bæjum sem unnu mikið
þrekvirki er þeir sigu niður bjargið og tókst
að ná mönnunum þar upp en bjargið er þar á
annað hundrað metrar á hæð. Þar urðu flestir
strandmenn að hírast í tjöldum í vonskuveðri
yfir nótt þar sem langt var að ganga til bæja.
Áhrifamikil kvikmynd um björgunarafrekið
var gerð af Óskari Gíslasyni kvikmyndagerðar-
manni tveimur árum síðar, til ágóða fyrir
Slysavarnafélag Íslands.
ÞETTA GERÐIST: 12. DESEMBER 1947
Björgunarafrek unnið við Látrabjarg
Elskulegur eiginmaður minn, faðir,
tengdafaðir, afi og langafi,
GUÐMUNDUR ÁRNI SIGFÚSSON
húsasmíðameistari,
Sléttuvegi 19,
áður Heiðargerði 34,
lést á hjartadeild Landspítalans þann 8. desember. Útförin fer
fram frá Grensáskirkju miðvikudaginn 17. desember kl. 13.00.
Þeim sem vilja minnast hans er bent á líknarfélög.
Margrét Guðvaldsdóttir
Ólafur S. Guðmundsson Elísa N. Puangpila
Sigfús Árni Guðmundsson Eva Geirsdóttir
Valdimar G. Guðmundsson Valgerður Marinósdóttir
Birgir Guðmundsson Ágústa María Jóndóttir
afa- og langafabörn.
Innilegar þakkir til allra sem sýndu okkur
samúð og hlýhug vegna andláts og útfarar
eiginmanns míns, föður, tengdaföður,
afa og langafa,
ÓSKARS KATÓS AÐALSTEINS
VALTÝSSONAR
Þökkum starfsfólki Dalbæjar fyrir frábæra umönnun.
Soffía Guðmundsdóttir
Guðmundur Óskarsson Arna Hafsteinsdóttir
Rakel Óskarsdóttir Gunnar Guðmundsson
Þóra Óskarsdóttir Haukur Jónsson
Óskar Óskarsson Anna Jóhannesdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær faðir, sonur, bróðir, mágur og frændi,
BRYNJAR ÞÓR SIGMUNDSSON
Langholti 18, Reykjanesbæ,
lést á heimili sínu miðvikudaginn
3. desember. Útförin fer fram
frá Fríkirkjunni í Reykjavík
þriðjudaginn 16. desember kl. 13.00.
Kristrún Ósk Brynjarsdóttir
Sigmundur Brynjar Sigurgeirsson Arnbjörg Vignisdóttir
Baldur Arnar Sigmundsson Erla Arnardóttir
Ása Karitas Baldursdóttir
Elskuleg móðir mín, systir og amma,
ELÍN KRISTÍN KRISTMUNDSDÓTTIR
Efri-Brunnastöðum,
Vatnsleysuströnd,
lést 8. desember á hjúkrunarheimilinu
Hrafnistu, Reykjanesbæ. Útför hennar fer
fram frá Hafnarfjarðarkirkju mánudaginn
15. des kl. 13.00. Þökkum veitta samúð.
Sérstakar þakkir færum við starfsfólki hjúkrunarheimilisins
Hrafnistu í Reykjanesbæ fyrir frábæra umönnun og hlýhug.
Guð blessi ykkur öll.
Virgill Scheving Einarsson
Hallgrímur Kristmundsson
Hannesína Scheving Gunnar Anton Jóhannsson
Svanur Már Scheving Brynja Hafsteinsdóttir
Kristmundur Scheving Ingunn Lúðvíksdóttir
Elín Kristín Scheving Gissur Breiðfjörð Smárason
og barnabarnabörn.
Ástkær sonur okkar, bróðir og barnabarn,
HARALDUR ÓLAFSSON
myndlistarnemi,
lést á heimili sínu í Stokkhólmi laugardaginn
6. desember. Útför verður auglýst síðar.
Svandís Ólafsdóttir Ólafur Þorkell Helgason
Albert Torfi Ólafsson Arnar Ingi Ólafsson
Elsa Heike Jóakimsdóttir Guðjón Guðmundsson
Torfi Jónsson
Ástkær eiginmaður minn, faðir,
tengdafaðir, afi og langafi,
MAGNÚS ÞÓRSTEINN SIGFÚSSON
húsasmíðameistari
Suðurgötu 17, Sandgerði,
lést sunnudaginn 7. desember á
Heilbrigðisstofnun Suðurnesja. Útförin fer
fram frá Safnaðarheimilinu í Sandgerði
miðvikudaginn 17. desember klukkan 13.00.
Heiða Sæbjörnsdóttir
Magnús Sigfús Magnússon Kristjana E. Guðmarsdóttir
Margrét Jensína Magnúsdóttir Sigurjón Jónsson
Rafn Magnússon Hrönn Hilmarsdóttir
Unnar Ástbjörn Magnússon Petra Rós Ólafsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær eiginmaður minn, faðir,
tengdafaðir, bróðir og afi,
KONRÁÐ ÞÓRISSON
fiskifræðingur,
Blesugróf 17,
Reykjavík,
lést á Landspítala við Hringbraut, fimmtu-
daginn 4. desember. Útförin fer fram frá Bústaðarkirkju,
þriðjudaginn 16. desember kl. 13.00. Þeim sem vilja minnast
hans er bent á Hvatningarnámssjóð barnabarna hans „Afasjóð“
– 111-26-98800 kt. 2006523559 eða Krabbameinsfélagið.
Margrét Auðunsdóttir
Fífa Konráðsdóttir Pétur Þór Sigurðsson
Hrönn Konráðsdóttir Atli Birkir Kjartansson
Svavar Konráðsson
Hlynur Þór, Máni, Dalía, Daníel Rafn, Ronja Rán
og systkini.
Okkar kæri frændi og vinur,
SIGTRYGGUR SIGURÐSSON
málarameistari,
lést á Landspítalanum þriðjudaginn
2. desember. Útförin fer fram frá Neskirkju
mánudaginn 15. desember kl. 15.00.
Blóm og kransar vinsamlega afþakkaðir.
Systkinin úr Hólmgarði
og vinir.