Fréttablaðið - 12.12.2014, Qupperneq 36
FÓLK|HELGIN
FÓLK ER KYNNINGARBLAÐ
sem býður aug lýsendum að
kynna vörur og þjónustu í formi
viðtala og umfjallana ásamt hefðbundnum
auglýsingum. Blaðið fylgir Fréttablaðinu
daglega.
Útgefandi: 365 miðlar
Ábyrgðarmaður: Jón Laufdal
Hönnun: Silja Ástþórsdóttir
Sölumenn:
Bryndís Hauksdóttir,
bryndis@365.is, s. 512 5434
Kolbeinn Kolbeinsson,
kkolbeins@365.is, s. 512 5447
EITTHVAÐ
FYRIR ALLA
„Hér verður svo
sannarlega eitt-
hvað við allra hæfi.
Gestir geta bæði
keypt jólapakkana
hér eða fundið fal-
lega muni inn á
heimili sín.“
Jólamarkaður hönnuða og vef-verslana verður haldinn á Kexi hosteli á morgun laugardag. Þar
munu þrettán vefverslanir og hönnuðir
selja fjölbreytta hönnun sína og vörur
í Gym & Tonic salnum. Markaðurinn
er hugmynd þeirra Sigríðar Dagnýjar
Sigurbjörnsdóttur og Guðnýjar Hrefnu
Sverrisdóttur, eigenda vefverslananna
Kolku og Minimal decor. Að sögn
Sigríðar eru þær báðar nýlega búnar
að setja upp verslanir sínar og fannst
nauðsynlegt að kynna sig fyrir mark-
aðinum á skemmtilegan og öðruvísi
máta. „Kex hostel varð fljótlega
fyrir valinu og á skömmum tíma
spratt upp mikið og skemmti-
legt tengslanet af hönnuðum
og öðrum vefverslunum sem
slógust í hópinn með okkur.“
Sigríður segir margar vefversl-
anir eðlilega vera minna áberandi en
hefðbundnar verslanir enda eigi við-
skiptavinir ekki alltaf leið fram hjá
þeim. „Því eru svona markaðir
einstakt tækifæri fyrir okkur til
að hitta viðskiptavini okkar og
upplifa búðarstemminguna,
sérstaklega núna í jólaös-
inni. Enda er fátt eins jólalegt
eins og að fá að vinna bak við
búðarborð fyrir jólin. Um leið er
markaðurinn líka gott tækifæri fyrir við-
skiptavini okkar til að hitta okkur og sjá
andlitin á bak við vefverslanirnar og
hönnunarvörurnar.“
Á markaðnum verða bæði
þekktir hönnuðir og vefversl-
anir en einnig glænýjar
vefverslanir auk ungra og
efnilegra hönnuða. „Hér
verður svo sannarlega
eitthvað við allra hæfi.
Gestir geta bæði keypt
jólapakkana hér eða
fundið fallega muni
inn á heimili sín. Svo
er bara svo gaman að
kíkja á jólamarkaði á
aðventunni með fjöl-
skyldunni enda stutt
í miðbæ Reykjavíkur
þar sem mikil jóla-
stemming ríkir alltaf
í desember.“
Þær vefverslanir
og hönnuðir sem
verða á markaðinum
á morgun eru Bifur-
kolla, Gluggagalleríið,
Gola & Glóra, Gunnars-
börn, Hannah, Hróm,
Hver stal kökunni?,
Jópata, Kolka, Minimal
decor, Orð í ramma, Rat-
design og Snjóber.
Ljúffengar jólaveitingar
verða einnig til sölu og
Sigga Kling mætir á
svæðið og spáir fyrir
gestum auk þess sem
jólasveinar mæta
í hús og skemmta
yngstu gestum.
Jólamarkaðurinn
verður á morgun
laugardag milli kl. 10
og 17 á Kexi hosteli við
Skúlagötu í Reykjavík.
Allar nánari upplýsingar
má finna á Facebook undir
Jólamarkaður hönnuða og
GOTT ÚRVAL VARA
Á JÓLAMARKAÐI
JÓLAMARKAÐUR Þrettán netverslanir og hönnuðir halda sameiginlegan
jólamarkað á Kexi hosteli á morgun. Mikið úrval fjölbreyttra vara er í boði.
FJÖLBREYTNI
Úrval skemmtilegra vara í jóla-
pakkann og inn á heimilið.
FALLEG HÖNNUN
Bæði þekktir og upprennandi hönnuðir kynna vörur sínar á markaðinum.
MYND/ÚR EINKASAFNI
M
Y
N
D
/V
ILH
ELM
Kláraðu öll jólainnkaupin á sama stað
Hvar?
Veislusal Spretts, Kópavogur
Hvenær?
Sunnudaginn 14. des
á milli klukkan 13.00 og 18.00
Á staðnum verður fjöldinn allur af söluaðilum með vörur
á gjafaverði bara fyrir þig !
Gjafavara, bökunarvörur, jólaskraut, handverk, tískufatnaður,
barnavörur, glervörur, skartgripir, kökubasar, jólatréssala, jólatónlist,
listakonur og menn og spákona.
Fæst í apótekum og heilsubúðum
P
R
E
N
T
U
N
.IS
Virkar lausnir frá OptiBac
Bifidobacteria & Fibre
Ábendingahnappinn má
finna á www.barnaheill.is