Fréttablaðið


Fréttablaðið - 12.12.2014, Qupperneq 42

Fréttablaðið - 12.12.2014, Qupperneq 42
4 • LÍFIÐ 12. DESEMBER 2014 N ú er genginn í garð sá tími þegar við bjóðum vetur konung velkom- inn með tilheyrandi snjó- komu, frosti og kvefpest- um í hverju horni. Veðrabreyting- ar eru þó ekki einu ástæðurnar fyrir því síðastnefnda því nokkrar ástæð- ur geta verið fyrir því að við fáum kvef eða flensu. Til þess að minnka líkurnar á því að fá pestina í hús er upplagt að fylgja eftirfarandi ráð- leggingum. ● Farðu í nudd – það kemur hreyfingu á blóðrásina sem styrkir svo ónæmis- kerfið. ● Farðu í gufu og svitnaðu, þannig los- arðu eiturefni úr líkamanum. Mundu bara að drekka nægilega mikið af vatni svo að þú endir ekki eins og sveskja. ● Sótthreinsaðu símann þinn. Þú getur ekki ímyndað þér hvað það er mikið af bakteríum á honum. Bleyttu bómull með sótthreinsi og renndu yfir símann. ● Haltu niðri í þér andanum eða and- aðu frá þér þegar einhver hnerrar ná- lægt þér, þannig kemurðu í veg fyrir að anda að þér alls konar bakteríum. Ekki samt öskra og fórna höndum, það er ekki gott fyrir félagsandann. ● Mundu að þvo reglulega á þér hend- urnar, helst í 20 sekúndur með sápu og volgu vatni. Svo getur verið ágætt að vera með sótthreinsi í vasanum. Ef þú átt ekki sótthreinsi þá gæti verið skemmtilegt að vera með „miniature“ vodkaflösku í vasanum, vodka er nefni- lega líka sótthreinsandi. ● Ekki vera að koma við og pota í allt, vertu helst í hönskum þegar þú ferð í Kringluna og með húðlita plasthanska í vinnunni. ● Borðaðu mikinn hvítlauk, hann hefur styrkjandi áhrif á ónæmiskerfið, svo heldur hann líka blóðsugum frá þér – sem og öllum öðrum. ● Reyndu svo bara að halda ró þinni; stress og streita hafa neikvæð áhrif á ónæmiskerfið. „Þú ert ekki bumban, aldurinn, gráu hárin, bólurnar, hrukkurnar, appelsínuhúðin og líkamshárin. Þú ert kynvera“ Friðrika Hjördís Geirsdóttir Umsjónarkona Lífsins KOMDU Í VEG FYRIR KVEFIÐ Kvefið fer víða þessa dagana, Heilsuvísir býður upp á nokkur góð ráð til þess að forðast smit Meyjarhaft, meydómur, víð píka, of þröng píka, drusla, óhrein, lauslæti, hóra, sárs- auki, blæðing, rifna, rjúfa, putta, sveppasýking, þurrkur. Það að fjalla um kynlíf kvenna er ekki alltaf tekið út með sældinni. Í hverri einustu kennslustund fæ ég spurningu sem inniheldur eitt- hvert þessara orða, oftar en ekki nokkur saman. Mig hefði aldrei grunað að árið 2014 væru algeng- ustu spurningarnar frá stúlkum og konum tengdar sársauka í kynlífi, sérstaklega í samförum og auð- vitað fullnægingarleysi og kyn- deyfð. Fyrst komu þessar spurn- ingar mér á óvart og ég játa að þær stungu í kynferðislega frjálsa hjartað mitt en nú er komið nóg. Nú segi ég stopp. Konur eru helm- ingur mannkyns og það er engum greiði gerður að stunda kynlíf sem þú hefur ekki áhuga á eða löngun til. Kynlífið byrjar og endar á þér. Jólagjöfin þín í ár verður þú sjálf og þitt kynlíf. Þú ætlar að hugsa meira, oftar og öðruvísi um kynlíf. Þú ætlar að stunda það því þig langar til þess, þegar þig lang- ar til þess, ein eða með einstak- lingi sem er einnig til í tuskið. Þú lætur ekki glanstímarit segja þér hvernig eigi að stunda kynlíf með öðrum einstaklingum, stundum langar þig til þess, ein eða með ein- staklingi, sem er einnig til þess að þú lærir fyrst á líkama þinn áður en þú lærir á líkama bólfélagans. Þú ætlar að fara lengra en líkami þinn. Þú ert ekki bumban, aldur- inn, gráu hárin, bólurnar, svita- lyktin, hrukkurnar, appelsínuhúð- in og líkamshárin. Þú ert kynvera. Þú ert sexí. Lokaðu augunum. Gleymdu stað og stund. Leyfðu þér að hugsa um kynlíf, allskonar kynlíf, með hinum og þessum bólfélögum, elsk- hugum og þér sjálfri. Það má vera letilegt, hratt, sóðalegt, snyrtilegt og einfalt, allt í senn. Það má ger- ast hvar sem er og hvernig sem er. Þetta er þitt kynlíf, fyrir þig, inni í þínum haus. Gleymdu því hvað er rétt og hvað er rangt. Hér er þetta bara þú og þín kynferðislega stund. Ekkert annað er til. Finnurðu hvernig líkaminn bregst við? Píkan, brjóstin, lærin, maginn? Ef þú ert ekki viss, próf- aðu að snerta þig. Leyfðu þér að nota sleipiefni eða olíu, það getur aukið unaðinn. Eigðu stund, bara með þér, fyrir þig. Þegar þú hefur vakið kynveruna þína þá getur þú farið að tala um kynlíf út frá eigin forsendum og unaði. Þú styrkir sjálfsmynd þína og það skilar sér í betra kynlífi. Margar konur greina frá skömm í tengslum við sjálfsfróun en það er grundvallarhugarfarsbreyt- ing sem þarf að verða ef við ætlum að njóta kynlífs og líkama okkar. Það sem er hvað mest aðlaðandi í fari annarra manneskju er sjálfs- traust og gleði. Þú ætlar að sigla inn í nýtt ár með gleði og ánægju í hjarta, haus og píku. VEKTU KYNVERUNA ÞÍNA Ef þú hefur spurningu um kynlíf þá getur þú sent Siggu Dögg póst og spurningin þín gæti birst í Fréttablaðinu. sigga@siggadogg.is VILTU SPYRJA UM KYNLÍF? FRETTABLADID/GETTY Nú þegar hátíðirnar ganga í garð eru kræsingar á boðstólum hvert sem farið er. Þó það sé sjálf- sagt að leyfa sér aðeins meira um jólin þá er gott að hafa í huga að borða ekki yfir sig af sætindum og annarri óhollustu allan mánuðinn. Allt er gott í hófi, líka í desember. Takmarkaðu sykurátið Gerir þú þér grein fyrir því að það eru aðeins tvær vikur til jóla? Ertu viss um að það sé raunhæft að ljúka öllu því sem þú ætlar þér á þessum tíma? Sumt má örugglega bíða. Annað er svo mikilvægt að þú mátt alls ekki missa af því. Hefur þú forgangsraðað nægilega vel? FORGANGS- RAÐAÐU RÉTT STREITURÁÐ VIKUNNAR HOLLRÁÐ HELGARINNAR „Ekki vera að koma við og pota í allt, vertu helst í hönskum þegar þú ferð í Kringluna og með húðlitaða plasthanska í vinnunni.“
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.