Fréttablaðið - 12.12.2014, Side 49
LÍFIÐ 12. DESEMBER 2014 • 11
MYNDAALBÚMIÐ
hanna brosandi. Við tók heilmik-
ill undirbúningur enda að mörgu
að huga og stuttur tími til stefnu.
Eins og alþjóð veit fór Jóhanna
með sigur af hólmi í keppninni hér
heima og lenti í öðru sæti í stóru
keppninni sjálfri sem þá var hald-
in í Moskvu. „Ég man eftir því
að standa á sviðinu á lokakvöld-
inu stolt og ánægð yfir því að hafa
tekið þessa ákvörðun og vera hing-
að komin aðeins átján ára gömul.
Þarna var ég með eina bestu sóló-
ista Íslands, Heru Björk, Ernu
Hrönn og Friðrik Ómar og var svo
þakklát fyrir að hafa þau með mér.
Þetta var stund sem maður upp-
lifir bara einu sinni á ævinni.“ Við
sviðið stóðu fagnandi tæplega átta-
tíu þúsund manns og ætlaði allt
um koll að keyra þegar tilkynnt
var að Ísland hefði lent í öðru sæti
í keppninni. „Ég áttaði mig hrein-
lega ekki á því hvað hafði gerst
fyrr en löngu síðar. Ég man eftir
því að Friðrik Ómar hristi mig og
spurði hvort ég væri að átta mig
á þessu,“ segir Jóhanna og hlær.
Eurovision-förunum var tekið
sem þjóðhetjum við heimkomuna
og segir Jóhanna það hafa verið
ómetanlegt að finna fyrir hlýjum
móttökum þjóðarinnar á sínum
tíma.
Músíkölsk ást
Sambýlismaður Jóhönnu er Davíð
Sigurgeirsson, gítarleikari og tón-
listarkennari, og hafa þau verið
óaðskiljanleg síðan þau kynnt-
ust fyrir tæpum fimm árum. „Ég
hafði ekki hugmynd um hver hann
var þegar við hittumst fyrst en
það var í fermingu hjá syni þeirra
Gunna og Kollu, hönnuða sem
hönnuðu kjólinn minn í Eurovision
ásamt Möggu stílista. Ég var vön
að koma með minn eigin gítarleik-
ara en í þetta skiptið gerðist þess
ekki þörf þar sem að þau sögðu að
það væri nú þegar kominn gítar-
leikari og óþarfi að bæta öðrum
við. Ég sendi honum lögin sem ég
ætlaði að syngja en svo hittumst
við í veislunni í fyrsta skiptið.
Frá þessum tímapunkti varð ekki
aftur snúið en það mætti segja að
ég hafi fyrst orðið ástfangin af
honum í tónlistarlegum skilningi,
við höfðum bara einhvern veg-
inn sama takt,“ segir Jóhanna. Þau
fluttust um tíma búferlum til Nor-
egs, nánar tiltekið til Kongsvin-
ger, en þar höfðu þau fengið boð
frá bæjar stjórninni um að syngja
og spila í skiptum fyrir húsnæði
og uppihald. „Við ákváðum bara
að slá til og prófa hvernig okkur
myndi líka. Davíð líkaði dvölin
töluvert betur en mér og allt gekk
vel en ég saknaði heimahaganna
og fjölskyldunnar og við ákváðum
að snúa aftur heim.“ Davíð og Jó-
hanna skilja hvort annað í gegnum
tónlistina og vinna vel saman á því
sviði. „Davíð er ótrúlega fær tón-
listarmaður og gaman fyrir okkur
að fá tækifæri til að vinna saman.
Við erum saman í hljómsveit sem
við köllum Diskólestina og höfum
verið að spila meðal annars á böll-
um, árshátíðum og brúðkaupum
og verðum með áramótaball á Spot
þar sem eintóm gleði verður við
völd,“ segir Jóhanna glöð í bragði.
„Mér finnst ég bara ótrúlega hepp-
in að fá að lifa á því sem mér þykir
skemmtilegast og langar að halda
áfram á þessari braut í framtíð-
inni og að sjálfsögðu langar mig að
stofna fjölskyldu en það er seinni
tíma markmið,“ segir þessi unga
og hæfileikaríka söngkona sem
lætur ekkert stöðva sig í að upp-
fylla drauma sína og þrár.
„Mér finnst ég bara
ótrúlega heppin að
fá að lifa á því sem
mér finnst skemmti -
legast og langar
að halda áfram á
þessari braut.“
Jóhanna og Glódís, sambýlismaðurinn Davíð og Jóhanna áður en hún steig á svið í Moskvu.