Fréttablaðið - 12.12.2014, Qupperneq 52
14 • LÍFIÐ 12. DESEMBER 2014
Fyrir 60 árum uppgötvaðist vít-
amín-líkt efni sem virtist spila
stórt hlutverk í nýtingu stein-
efna, vörn gegn tannskemmdum,
vörn gegn hjartasjúkdómum og
ýmislegt fleira. Þetta nýja efni
var kallað Activator-X og var í
raun ekki skilgreint sem K2-vít-
amín fyrr en árið 1997, næstum
40 árum eftir uppgötvun. Það
er svo að koma betur og betur í
ljós hversu gríðarlega mikilvægt
þetta efni er fyrir heilbrigða lík-
amsstarfsemi.
Efnafræðilegt hlutverk K2 er að
hjálpa kalki að komast á rétta staði
í líkamanum, eins og t.d. til tanna
og beina. Það stuðlar einnig að því
að hindra kalkmyndun á óæski-
legum stöðum, eins og í æðum og
mjúkvef og er því mikilvæg for-
vörn t.d. gegn æðakölkun.
K-vítamín eru tvenns konar; K1
og K2. Þau hafa ekki sömu virkni,
en bæði vinna þau gegn beinþynn-
ingu og vinna gegn áverkum en
K1-vítamín hefur ekki sömu eig-
inleika til að flytja kalk og K2-vít-
amín. Helsta uppspretta K1-vítam-
íns er úr blaðgrænmeti en K2 má
helst finna í dýrum sem éta gras
og jurtir og framleiða K2-vítam-
ín úr K1-vítamínum sem þau inn-
byrða.
Í hinum vestræna heimi okkar
er almennt mikill skortur á K2-vít-
amíni en hér á Íslandi er mikið af
grasfóðruðum dýrum og því ætti
að vera nóg af K2-vítamíni í inn-
lendu dýrakjöti og mjólkurvörum.
Sú fæðutegund sem er ríkust af K2
er sennilega gæsalifur, feitt kjöt
og innmatur úr dýrum en eggja-
rauða, smjör (eða ghee), kjúkling-
ur og mygluostar eru líka stútfull-
ir af K2-vítamíni. Grænmetisæt-
ur geta fengið K2 úr natto, sem er
japanskt að uppruna og búið til úr
sojabaunum með vissri bakteríu,
eða úr súrkáli. Flest bætiefni með
K2 eru unnin úr natto.
Það er enn þá erfitt að mæla
magn K2-vítamíns í líkamanum
og því erfitt að segja til um hvort
skortur sé á því hjá þér. Áður en þú
ferð og kaupir þér fullt af bætiefn-
um skaltu byrja á að skoða matar-
æðið. Þú þarft ekki mikið til að fá
fullnægjandi magn af K2-vítamín-
um, t.d. eru tvær eggjarauður með
fínan dagskammt af K2.
Ef þú borðar hollt fæði ættirðu
að fá nóg af K2 en sem forvörn
gegn áðurnefndum kvillum gæt-
irðu bætt K2-vítamíni við sem
fæðubót.
HEFURÐU HEYRT UM
K2-VÍTAMÍNIÐ?
Lítið hefur verið talað um vítamínið K2 en það sinnir því mikilvæga
efnafræðilega hlutverki að halda kalkinu í líkamanum í jafnvægi.
Mikilvægt er að borða reglulega góðan skammt af salati.
Það er til gamalkunn mýta að
óléttar konur eigi helst að vera
pakkaðar inn í bómull á með-
göngunni. Þær eigi helst ekki
að lyfta litla fingri og guð forði
þeim frá því að hreyfa sig eitt-
hvað af viti. Staðreyndin er
þó allt önnur, óléttum konum
er ráðlagt að hreyfa sig í um
30 mínútur á dag, rétt eins og
öllum öðrum. Líkamsrækt hefur
að sjálfsögðu góð áhrif á óléttar
konur eins og alla aðra og getur
bætt almenna líkamlega og and-
lega líðan og reynt að undirbúa
konur, upp að einhverju marki,
undir átökin sem fæðing barns
er. Hún getur einnig dregið úr
öðrum leiðinlegum fylgikvillum
meðgöngu eins og t.d. bakverkj-
um, bjúgsöfnun, hægðatregðu
og fleira. Það er ýmiss konar
hreyfing í boði sérstaklega fyrir
óléttar konur eins og t.d. sund,
jóga og styrktarþjálfun.
Hafi konur stundað almenna
hreyfingu áður en þær urðu
óléttar er þeim óhætt að halda
þeirri hreyfingu áfram á með-
göngu, en þurfa að hafa í huga
að hreyfingin er gerð til að við-
halda líkamlegri hreysti og
vellíðan, ekki til þess að bæta
árangur eða grennast. Þær
konur sem stundað hafa hreyf-
ingu af mikilli ákefð fyrir með-
göngu gætu þurft að hægja á
sér eftir því sem líður á með-
gönguna og gera ráð fyrir því að
geta þeirra á æfingum minnki
og verði sífellt minni eftir því
sem nær dregur að settum degi.
Hér þarf bara að hafa almenna
skynsemi í huga og ekki láta
kappsemina taka yfir. Oft er
talað um að gott sé að miða við
að geta haldið uppi samræðum
á meðan á hreyfingu stendur án
þess að standa á öndinni.
Þeim konum sem ekkert hafa
hreyft sig fyrir meðgöngu er
ráðlagt að byrja að hreyfa sig
á meðgöngunni en fara rólega
af stað. Gott er þá að miða við
u.þ.b. 10 mínútna hreyfingu á
dag, nokkrum sinnum í viku og
auka svo hægt og rólega upp í
30 mínútur á dag. Sú hreyfing
sem hentar þessum konum vel
gæti verið göngutúrar eða sund-
ferðir, sem og ýmsir opnir tímar
sem óléttum konum standa til
boða en þá þarf að byrja hægt
og ætla sér ekki um of.
Ýmis konar vandamál geta þó
komið upp á meðgöngu, eins og
t.d. ógleði, grindargliðnun, há-
þrýstingur, verkir í liðum og
margt fleira og alltaf þarf að
ráðfæra sig við ljósmóður eða
lækni áður en líkamsrækt er
stunduð á meðgöngu.
Sjálf á ég einn 18 mánaða
orkubolta sem tók virkilega á að
ganga með. Meðgangan byrjaði
á mikilli og endalausri ógleði og
uppköstum í fjóra mánuði sem
varð til þess að ég gat ekkert
hreyft mig í byrjun meðgöng-
unnar.
Mikið var ég fegin þegar
þessu tímabili lauk og ég hlakk-
aði til að geta klárað með-
gönguna án þess að líða svona
illa og geta hreyft mig. Það
varð þó ekki raunin þar sem
ég fékk slæma grindargliðn-
un þegar ógleðinni lauk, sem
varð til þess að ég vaggaði um
eins og mörgæs, gat ekki geng-
ið meira en nokkra metra án
þess að fá verki og þurfti að
hætta að vinna tveimur mánuð-
um fyrir settan dag. Það sem
hjálpaði mér þó heilmikið með
verkina var að fara í meðgöngu-
sund. Mér fannst æðislegt að
geta hreyft mig í sundlauginni
og spriklað án þess að finna til.
Ég fór líka til sjúkraþjálfara í
hverri viku og stundum tvisvar
sinnum í viku sem bjargaði mér
algjörlega.
Ég mæli eindregið með því að
allar konur sem geta og mega
hreyfi sig á meðgöngu. Þessi
tími getur tekið virkilega á og
því finnst mér að allar ólétt-
ar konur ættu að gera allt sem
þær geta til þess að láta sér líða
betur, til þess að auka líkurn-
ar á því að fæðingin gangi vel
og að þær verði fljótar að jafna
HREYFING Á MEÐGÖNGU
Sú mýta hefur verið öðrum yfirsterkari að óléttar konur eigi alls ekki að hreyfa sig en nú er öldin önnur. .
„Í hinum vestræna
heimi okkar er
almennt mikill skortur
á K2-vítamíni.”
Ómar Ómar Ágústsson
íþróttaþjálfari
Nanna Árnadóttir
íþróttafræðingur
„Hafi konur
stundað almenna
hreyfingu áður
en þær urðu
óléttar er þeim
óhætt að halda
þeirri hreyfingu
áfram.“
sig eftir fæðinguna. Til þess að
geta hugsað um einhvern annan
verður maður að hugsa fyrst um
sjálfan sig.
Því er meðganga tilvalinn
tími til þess að reyna að temja
sér þá reglu að vera heilsu-
hraustur, ekki bara fyrir sjálfan
sig heldur líka fyrir litla krílið
sem maður gengur með.
1 2
3 4
5 6
7 8
9 10
Lækjargata 2a og Vesturgata 2a 101 Reykjavík
METSÖLULISTI IÐU
Orðbragð
Bragi Valdimar
Skúlason &
Brynja
Þorgeirsdóttir
Knúsbókin
Jóna Valborg
Árnadóttir &
Elsa Nielsen
Svarthvítir dagar
Jóhanna
Kristjónsdóttir
Í kjölfar jarla
og konunga
Þorgrímur
Gestsson
Þrettán dagar
til jóla
Brian
Pilkington
Vísindabók
Villa 2
Vilhelm Anton
Jónsson
03.12.14 - 10.12.14
Reykjavík sem
ekki varð
Anna Dröfn
Ágústsdóttir
& Guðni Valberg
DNA
Yrsa Sigurðardóttir
I Love Being Alive
Þórunn Elísabet
Sveinsdóttir
Viltu vita meira
um líkamann?