Fréttablaðið - 12.12.2014, Page 68
12. desember 2014 FÖSTUDAGUR| MENNING | 38
Stjórn Miðstöðvar íslenskra bók-
mennta hefur tilkynnt um úthlut-
un þýðingarstyrkja á íslensku,
síðari úthlutun, fyrir árið 2014
en umsóknarfrestur rann út 15.
nóvember. Alls bárust að þessu
sinni 27 umsóknir um þýðingar-
styrki frá sautján aðilum og var
sótt um rúmar sextán milljónir
króna. Til úthlutunar voru 3 millj-
ónir króna sem var úthlutað til ell-
efu þýðinga úr fimm tungumálum.
Meðal þeirra verka sem hlutu þýð-
ingarstyrki í þessari úthlutun eru:
Er ist wieder da eftir Timur
Vernes. Þýðandi Bjarni Jónsson.
Útgefandi Forlagið.
A Vindication of the Rights
of Woman by Mary Wollstone-
craft. Útgefandi Hið íslenska bók-
menntafélag.
Les Illuminations eftir Arthur
Rimbaud. Þýðandi Sigurður Páls-
son. Útgefandi Gallerý Brumm.
Meines Vaters Land eftir Vibke
Bruhns. Þýðandi Vilborg Auður
Ísleifsdóttir. Útgefandi Salka.
Das Schloss eftir Franz Kafka.
Þýðendur Ástráður Eysteinsson og
Eysteinn Þorvaldsson. Útgefandi
Forlagið.
1984 eftir George Orwell. Þýð-
andi Þórdís Bachmann. Útgefandi
Ugla.
Á árinu bárust samtals 56
umsóknir um styrki til þýðinga á
íslensku. Úthlutað var 9 milljón-
um króna til 30 þýðingaverkefna
í tveimur úthlutunum, mars og
nóvember.
Orwell og Wollstone-
craft á íslensku
Ellefu þýðingar úr fi mm tungumálum hlutu
þýðingar styrk frá Miðstöð íslenskra bókmennta.
GEORGE ORWELL Meðal verka sem
hlutu þýðingarstyrk er hið fræga verk
Orwells 1984.
Jólasöngvar og sálmar óma í
kyrrlátum djassútsetningum í
Fríkirkjunum í Hafnarfirði og
Reykjavík á sunnudaginn, 14. des-
ember. Þeir Karl Olgeirsson píanó-
leikari, Andrés Þór Gunnlaugs-
son gítarleikari og Jón Rafnsson
kontrabassaleikari annast hljóð-
færaleik. Snúið verður upp á upp-
runalegar útgáfur laganna en þó fá
gullfallegar laglínurnar notið sín.
„Við förum hingað og þangað í
lagavalinu,“ segir Jón sem er að
ljúka æfingu þegar hringt er í
hann. „Þarna eru lög eins og Í dag
er glatt, Hátíð fer að höndum ein,
Jólin alls staðar og Opin standa
himins hlið. Svo er eitt rosalega
fallegt frumsamið jólalag eftir
Kalla (Karl Olgeirsson). Það heit-
ir Leiðin til Betlehem og þegar
fólk heyrir það finnst því það
vera að hlusta á sálm. Við frum-
fluttum það fyrir tuttugu árum á
jólatónleikum á Akureyri. Síðan
hefur það ekki verið spilað fyrr
en núna.“
Tónleikarnir í Fríkirkjunni í
Hafnarfirði hefjast klukkan 17 en
í Fríkirkjunni í Reykjavík klukk-
an 20.
Aðgangseyrir er krónur 2.000
og miðar verða seldir við inn-
ganginn. - gun
Jólasálmar í kyrrlátum
djassútsetningum
Sálmar og söngvar sem tilheyra íslenskum jólum og
aðventu fá nýjan hljóm á tónleikum í Fríkirkjunum
í Hafnarfi rði og Reykjavík á sunnudag.
TÓNLISTARMENNIRNIR Andrés Þór, Karl og Jón láta jólalögin óma í nýjum
útsetningum.
BÆKUR ★★ ★★★
DNA
Yrsa Sigurðardóttir
VERÖLD
Yrsa Sigurðardóttir er þekkt fyrir
að skapa mikla spennu og óhugn-
anlegt andrúmsloft í bókum sínum
og upphaf nýjustu skáldsögunnar,
DNA, gefur fyrirheit um að hún
bregðist ekki les-
endum sínum
hvað það varð-
ar í þetta sinn.
Óhugnanlegt og
yfirmáta ofbeldis-
fullt morð á að því
er virðist blásak-
lausri konu slær
tóninn fyrir spenn-
andi og flókna sögu
að hætti glæpa-
drottningarinnar.
Fljótlega fer þó
athygli lesandans að
vakla og kemur þar
margt til. Lögreglu-
maðurinn Huldar sem
stýrir rannsókninni er
afskaplega daufgerð
persóna og samvisku-
bit hans yfir ýmsu óviðeigandi
kvennafari vekur hvorki áhuga
né samúð, hann er einfaldlega
bara leiðinlegur. Hin aðalpersón-
an úr hópi rannsóknaraðila er sál-
fræðingur í Barnahúsi sem heitir
Freyja og er snöggtum áhugaverð-
ari persóna, en vantar þó herslu-
mun til þess að taka yfir hlutverk
rannsóknaraðilans sem lesandinn
heldur með og óttast um. Baksaga
hennar og tengsl inn í undirheima
ná aldrei að skipta máli í sögunni
og draga fremur úr
spennu en auka hana.
Þriðja aðalpersóna
sögunnar er hinn
utanveltu og ein-
mana radíóamatör
Karl en lengi vel er
hans hlutverk í sög-
unni ansi óljóst og
óralangar lýsingar
á því hvernig radí-
óamatörar bera sig
að við áhugamál
sitt og út á hvað
það gengur drepa
áhuga lesandans
næstum endan-
lega. Það er ekki
fyrr en á síðustu
fimmtíu síðunum
sem hægt er að tala um
spennu og þá er það einfaldlega of
seint, lesandanum gæti ekki staðið
meira á sama um þetta fólk.
Að þessu sögðu er ljúft og skylt
að geta þess að Yrsa bregst ekki
aðdáendum sínum í því að koma
þeim gjörsamlega í opna skjöldu
með lausn morðmálanna, en morð-
in verða þrjú þegar upp er staðið
hvert öðru grimmdarlegra. Ekki
í eina mínútu hefði manni dottið
í hug að gruna þann sem reynist
sekur. Ástæður hans fyrir þrem-
ur óhugnanlegum morðum, frömd-
um með rafmagnstækjum, eru
hins vegar ekki sérlega sannfær-
andi en eins og oft í glæpasögum
er lesandinn meira en tilbúinn að
horfa fram hjá slíkum tittlingaskít
ef það þjónar spennufíkn hans. Og
til þess eru nú hrútarnir skornir í
slíkum sögum.
Glæpasagnahöfundar eiga mis-
jafna spretti eins og aðrir höf-
undar og í DNA er Yrsa einfald-
lega ekki í essinu sínu en eflaust
fyrirgefa hennar fjölmörgu aðdá-
endur henni það og bíða spenntir
eftir næstu bók glæpasagnadrottn-
ingarinnar. Þeir vita sem er að hún
getur betur og á eflaust eftir að
sýna þeim það.
Friðrika Benónýsdóttir
NIÐURSTAÐA: Heldur daufleg saga
frá glæpasagnadrottningu Íslands en
hressilegur endasprettur bjargar því
sem bjargað verður.
Spennulítil spennusaga
„Brúður eru í aðalhlutverkum í sýn-
ingunni og svo er mikil áhersla lögð
á þátttöku áhorfenda,“ segir Helga
Arnalds um Jólaguðspjallið sem sýnt
verður í Gerðubergssafni á sunnu-
daginn klukkan 14. Helga stýrir leik-
húsinu 10 fingur er stendur að sýn-
ingunni.
Útfærslan á jólaguðspjallinu er
sérstök eins og Helga lýsir. „Leið-
indaskjóða, litla systir jólasveinanna,
hefur verið fengin til að skemmta
krökkunum. Hún er alveg jafn rugl-
uð og þau á hamaganginum kringum
jólin og dettur ekkert annað í hug
en að lesa upp úr Biblíunni þeim til
skemmtunar. Hana rekur þó fljótlega
í vörðurnar því hún skilur hvorki upp
né niður í þeim torskilda texta.“
Þar kemur í leikritinu að Leiðinda-
skjóða rekst á nokkra jólapakka, að
sögn Helgu. „Þegar hún gægist ofan
í pakkana finnur hún alls kyns dýr og
brúður sem reynast vera persónurn-
ar úr jólaguðspjallinu. Eftir því sem
hún opnar fleiri pakka fer jólaguð-
spjallið að rifjast upp fyrir henni.“
- gun
Jólaguðspjallið rifj ast upp við opnun pakka
Leikhúsið 10 fi ngur sýnir leikrit um jólaguðspjallið í Gerðubergssafni á sunnudag. Áhorfendur taka þátt.
STJÓRN-
ANDINN
Útfærslan
á jóla-
guðspjall-
inu er
sérstök,”
segir
Helga.
„Við leggjum dálítið upp úr því að
hafa tónleikana svolítið heimilis-
lega og kósý. Dagskráin á að höfða
til allra aldurshópa, þess vegna
má alveg koma með börnin með,“
segir Gerður Bolladóttir sópran-
söngkona um tónleika Trio Kal-
inka í Garðakirkju á morgun. Tríó-
ið skipa auk Gerðar þau Marina
Shulmina á dorma og Flemming
Viðar Valmundsson á harmóníku.
„Við verðum með jólalög fá
ýmsum löndum og áherslan er á
þau íslensku en við flytjum sálm-
ana á svolítið nýjan hátt. Rúss-
neski stíllinn kemur sterkur inn
því dorman er ekta rússneskt
hljóðfæri með rómantíska tóna.
Það er strengjahljóðfæri, ekki
ósvipað banjói og hefur seiðandi
tón. Mér finnst hann passa mjög
vel við íslensku lögin,“ segir Gerð-
ur.
Þegar haldnir eru jólatónleikar
finnst tríóinu staðsetning og
umhverfi skipta máli. „Þess vegna
völdum við Garðakirkju,“ segir
Gerður glaðlega. „Þegar keyrt er
að Garðakirkju, á leið út á Álfta-
nes, er eins og breiður sveitafað-
mur taki á móti manni og ljósadýrð
frá kirkjugarðinum speglast í haf-
fletinum. Kirkjan skartar líka sínu
fegursta.“
Tónleikarnir hefjast klukkan 18
á morgun, aðgangseyrir er 2.000
krónur en frítt er fyrir yngri en
18 ára.
gun@frettabladid.is
Rómantískir tónar
rússneskrar domru
Trio Kalinka verður í jólaskapi í Garðakirkju síðdegis á morgun. Það lofar óvenju-
legri hljóðfæraskipan, skemmtilegri dagskrá og heimilislegu andrúmsloft i.
TRIO KALINKA
Flemming Viðar
Valmundsson,
Gerður Bolla-
dóttir og Marina
Shulmina.
MYND/MIKHAIL TIMOFEEV
Lesið verður úr nýútkomnum
barnabókum í Safnahúsinu
við Hverfisgötu á morgun frá
klukkan 16 til 18.
Það eru rithöfundarnir Ævar
Þór Benediktsson, Bryndís Björg-
vinsdóttir, Ármann Jakobsson og
Steinunn Jóhannesdóttir sem lesa
úr bókum sínum í gamla lestrar-
salnum.
Nemendur úr Listaháskóla
Íslands leika tónlist milli atriða
og rjúkandi kakó verður á boð-
stólum.
Allir velkomnir meðan hús-
rúm leyfir.
Barnabækur í
Safnahúsi
MYND/JÓHANNA ÞORKELSDÓTTIR