Fréttablaðið - 12.12.2014, Qupperneq 72
12. desember 2014 FÖSTUDAGUR| MENNING | 42
FÖSTUDAGUR
HVAÐ?
HVENÆR?
HVAR?
FÖSTUDAGUR 12. DESEMBER 2014
Tónleikar
17.00 Aukajólatónleikar Baggalúts fara
fram í Háskólabíói í dag en uppselt er á
tónleikana. Fara þeir fram bæði klukkan
17.00 og 21.00.
20.00 Berndsen heldur útgáfutónleika
í tilefni nýrrar plötu. DJ Disco Owes Me
þeytir skífum eftir á. 1.500 krónur inn.
20.00 Jólatónlistarhátíð Hallgrímskirkju
býður til jólaorgeltónleika með orgel-
stjörnunni Christian Schmitt. Á efnis-
skránni eru verk eftir feðgana J.S. Bach
og C. Ph. E. Bach, Dietrich Buxtehude,
Charles Marie Widor, Charles Frost og
Olivier Messiaen. Aðgangur að tónleik-
unum er ókeypis.
20.30 Jólatónleikar Stefáns Hilmars-
sonar í Salnum í Kópavogi. 5.900
krónur inn. Á tónleikunum verða flutt
lög af glænýrri jólaplötu Stefáns í bland
við lög af plötunni Ein handa þér. Auk
þess slæðast með sérvalin stemnings-
og hátíðarlög af ýmsu tagi.
21.00 Jólatónleikarnir Norðurljósin
í Menningarhúsinu Hofi á Akureyri.
Einvalalið norðlenskra tónlistarmanna
kemur fram ásamt stúlknakór Akureyr-
arkirkju og góðum gestum að sunnan.
Þekktir söngvarar stíga á svið og flytja
gestum mörg af ástsælustu jólalögum
þjóðarinnar. Þetta eru jólabörnin Magni
Ásgeirsson, Helga Möller, Óskar Péturs-
son, Birgitta Haukdal og sérstakur
gestur verður Pálmi Gunnarsson. 5.800
krónur inn.
21.00 KK og Ellen halda jólatónleika
í Hljómahöllinni í Reykjanesbæ. Þar
munu þau ásamt nokkrum af okkar
bestu hljóðfæraleikurum flytja mörg
okkar ástsælustu jólalög í bland við
eigin lög. Einstök aðventustemning
skapast á þessum tónleikum þar sem
látlaus og hugljúfur flutningur hefur
jafnan einkennt þeirra tónlist. 5.590
krónur inn.
21.00 SimSimma og Lily of the
Valley troða upp á Frederiksen Ale
House.
21.00 Alma Rut og hljómsveit halda
jólatónleika á Café Rósenberg.
21.00 DJ ívar Pétur, B2B og Hermi-
gervill troða upp á Dolly.
22.00 Norski tónlistarmaðurinn Jesus
Fucking Christ treður upp á Dillon en
honum til halds og trausts verður AMFJ
og Laser Life. Frítt inn.
22.00 Rúnar Þór fagnar 30 ára
söngafmæli en það eru að verða 30 ár
frá fyrstu sólóplötunni. Tónleikarnir fara
fram á Græna hattinum á Akureyri en
Rúnari til halds og trausts verður Jonni
Ólafs, bassaleikari, Tryggvi Hübner og
Guðmundur Gunnlaugsson á trommur.
2500 krónur inn.
22.00 Sign og Endless Dark troða upp á
Gauknum. 2000 krónur inn.
23.00 Sváfnir Sigurðarson og félagar
leika og syngja á Ob-La-Dí-Ob-La-Da.
Hátíðir
17.00 Ólöf Arnalds og Guðrún
Eva halda útgáfutónleika í
Mengi.
Uppákomur
11.00 Íslensku jólasveinarnir
heimsækja Þjóðminjasafnið
kl. 11 daglega frá 12. - 24.
desember. Fjörið hefst því
í dag þegar Stekkjastaur
heimsækir Þjóðminja-
safnið.
Uppistand
21.00 Laddi
heldur sýn-
inguna Allt
það besta
og leggur
þess
vegna
undir
sig
Bæjar-
bíó í
Hafnar-
firði.
Sýningin fleytir
rjómann af tveimur
vinsælustu sýningum
Ladda, Laddi 6-tugur
og Laddi lengir lífið
og má fastlega
reikna með því að
hláturtaugarnar verði
kitlaðar allverulega
á sýningunni. 3.900
krónur inn.
Tónlist
12.15 Föstudagsjazz á
Kexi Hosteli. Andrea Gylfadóttir syngur
og Eðvarð Lárusson spilar á gítar.
21.00 Trúbadorinn Andri spilar á
English Pub og svo taka Ingi Valur &
Tryggvi við.
21.00 Styrmir Dansson þeytir skífum
á Bar Ananas.
21.00 Trúbadorarnir Ingvar og Gísli
spila á Dubliner.
22.00 DJ Egill Spegill og Jay-O spila
á Prikinu.
22.00 DJ KGB og Silla spila á Paloma
Bar.
22.00 DJ Kanilsnældur, Julia Ruslan-
ovna og Vibrant K þeyta skífum á
Kaffibarnum.
Leiðsögn
12.15 Leiðsögn um sýn-
inguna Ertu tilbúin frú for-
seti? í Hönnunarsafninu.
Leiðsögnin tekur um
hálftíma. Í þetta sinn
verður áhersla lögð á orðið
í fötunum og hvernig við
notum klæðnað til að tjá
líðan eða jafnvel pólitísk-
ar skoðanir. Stoppað
verður við nokkra
klæðnaði á
sýningunni og
varpað fram
spurningum
eða vanga-
veltum
varðandi
hvaða
skila-
boð er
hægt
að
lesa
úr
þeim.
Samkoma
19.00 Jólahlaðborð
í Hörpunni. Verð-
launakokkurinn
Bjarni Gunnar
Kristinsson býður
fram lúxusmat.
9.900 krónur inn.
Upplýsingar um
viðburði sendist á
hvar@frettabladid.is
ÓLÖF ARNALDS
Sirkus Íslands heldur áfram með sýn-
ingar sínar í Hljómskálagarðinum í
kvöld og annað kvöld. Um síðustu
helgi voru þrjár sýningar haldnar
af Jólakabarett Sirkussins, sem er
bannaður innan 18 ára.
Að því er kemur fram í tilkynn-
ingu var svo kalt fyrsta kvöldið í
sirkustjaldinu að auka hitarar voru
fengnir og kynt var vel undir jóla-
glöggspottinum.
Tjaldið var sett upp í aftakaveðri í
byrjun desember. Það var keypt með
hópfjármögnun á síðasta ári og saum-
að á Ítalíu. Sirkusar í Norður-Noregi
og Norður-Svíþjóð nota sams konar
tjöld svo það þolir íslenskar aðstæður
ágætlega. „Síðustu dagar hafa verið
afar lærdómsríkir til að læra hvað
tjaldið þolir, og kemur það okkur á
óvart hversu vel það stendur þó af sér
aftakaveðrið,“ segir í tilkynningunni.
Sýningarnar í kvöld og annað
kvöld verða kl. 20 og eitthvað af
miðum er til. Miðinn kostar 3.500
krónur og fer miðasala fram við
tjaldið alla daga kl. 12-14 og kl. 19-20
á sýningardögum.
Sirkus Íslands heldur áfram
Komið hefur á óvart hversu vel sirkustjaldið hefur staðið af sér íslenska veðrið.
SIRKUS ÍSLANDS Sýningar verða
haldnar bæði í kvöld og annað kvöld.
„… það eru ekki margir sem fást
eins við nútímann … hrikalega
flott!“
EGILL HELGASON / KILJAN
„… bráðfyndin … netkynslóðin
hefur eignast sinn fulltrúa í íslenskum
bókmenntum, höfund sem fjallar
um sína kynslóð og talar til hennar.
Og því ber að fagna.“
INGVI ÞÓR SÆMUNDSSON / BOKMENNTIR.IS
„Ótrúlega hugmyndarík
saga með alvarlegum undirtón.“
BERGUR EBBI BENEDIKTSSON
Frumleg bók
um breytta
heimsmynd