Fréttablaðið - 12.12.2014, Síða 74
12. desember 2014 FÖSTUDAGUR| LÍFIÐ | 44
Í Álfagarðinum sem er í Hellis-
gerði í Hafnarfirði kennir ýmissa
grasa. Þar má finna margs konar
muni og handverk tengt álfum,
meðal annars álfate sem unnið
er úr íslenskum jurtum. Uppruni
tesins er sérstakur en uppskriftina
segir Ragnhildur Jónsdóttir, sem
rekur Álfagarðinn, koma frá álfa-
seiðkonu.
„Hún býr í þessu fallega beyki-
tré sem er svolítið magnað, þetta
tré á marga vini sem heimsækja
það. Mennska vini á ég við,“ segir
Ragnhildur en beykitréð stendur í
Álfagarðinum.
„Ég hef alltaf heimsótt þetta
tré og þótt vænt um það frá því ég
var krakki. Kom í ljós að margir
sem búa hér í kring eða bjuggu
hérna áður hafa heimsótt tréð.
Sumir hugleiða við það og sumir
koma bara og klappa því í laumi,
eða ekkert í laumi. Það er bara
eitthvað sérstakt við þetta tré.“
Nóg verður um að vera í Álfagarð-
inum á aðventunni. Nú stendur
yfir myndlistarsýning með verk-
um eftir Ragnhildi en viðfangs-
efni sýningarinnar er hraunið og
eru verkin unnin með blandaðri
aðferð. Laugardaginn 20. desem-
ber verður kyrrðarstund við álfa-
kirkjuna í Hellisgerði. „Kyrrðar-
stundin hefst klukkan tólf þegar
sólin er vonandi að kíkja hérna
yfir. Kerti og lítil róleg stund,“
segir Ragnhildur og bætir við að
öllum sé velkomið að koma og taka
þátt í kyrrðarstundinni. - gló
Kraumsverðlaunin, árleg plötu-
verðlaun Kraums tónlistarsjóðs,
voru afhent í sjöunda sinn í gær.
Í ár fengu sex hljómplötur
verðalaunin; Óbó, Pink Street
Boys og Hekla Magnúsdóttir
fyrir frumburði sína, en Hekla
gefur sjálf út sex laga stuttskífu
sína. Pönk-dauðarokksveitin Börn
var verðlaunuð fyrir sína fyrstu
breiðskífu, en sveitin hefur áður
gefið út smáskífur undir heit-
inu Norn. Kippi Kanínus hlaut
Kraumsverðlaun fyrir sína þriðju
breiðskífu, Temperaments, og
Anna Þorvaldsdóttir, sem á að
baki hljómplötur ein síns liðs og
í samfloti með öðrum, fyrir Aeri-
al. Verðlaunin voru afhent í húsa-
kynnum Kraums í Vonarstræti
4B.
Kraumsverðlaununum og
Kraumslistanum, 20 platna
úrvalslista verðlaunanna sem
þeim fylgir, er ætlað að kynna og
styðja við plötuútgáfu íslenskra
hljómsveita og listamanna með
því að verðlauna og vekja sér-
staka athygli á því sem er nýtt
og spennandi. Einnig þeim verk-
um sem þykja skara fram úr í
gæðum, metnaði og frumleika.
Verðlaunin eru ekki bundin neinni
ákveðinni tónlistarstefnu og þeim
fylgja engir undirflokkar.
Verðlaunin snúast ekki um eina
ákveðna verðlaunaplötu held-
ur að verðlauna þær sex hljóm-
plötur sem hljóta verðlaunin og
jafnframt að beina kastljósinu að
Kraumslistanum í heild sinni.
Kraumsverðlaunin koma oft á
óvart. Bæði þekktir og óþekktari
listamenn á uppleið hafa hlotið
verðlaunin fyrir verk sín frá því
þau voru fyrst veitt árið 2008.
Alls hefur 31 hljómplata hlotið
þessa viðurkenningu. Í mörgum
tilvikum hafa þær plötur og lista-
menn sem hlotið hafa Kraums-
verðlaun hlotið aukna athygli í
kjölfar þeirra, og látið enn frekar
á sér kræla í íslensku og alþjóð-
legu tónlistarlífi árin á eftir. - fb
KRAUMSVERÐLAUNIN 2014
● Anna Þorvaldsdóttir – Aerial
● Börn – Börn
● Hekla Magnúsdóttir – Hekla
● Kippi Kanínus – Temperaments
● Óbó – Innhverfi
● Pink Street Boys - Trash from the
Boys
Sex fl ytjendur hlutu
Kraumsverðlaunin
Hin árlegu Kraumsverðlaun voru afh ent í gær. Líkt og undanfarin ár hlutu sex
plötur verðlaunin. Anna Þorvaldsdóttir og Kippi Kaninus á meðal verðlaunahafa.
KIPPI KANÍNUS Raftónlistarmaðurinn er á meðal þeirra sem hlutu
verðlaunin. FRÉTTABLAÐIÐ/HÖRÐUR
plata hefur fengið
Kraumsverðlaunin31
Vinamargt beykitré í
Álfagarði í Hellisgerði
Dagskrá með myndlistarsýningu og kyrrðarstund.
ANNA ÞORVALDS-
DÓTTIR Anna hlaut
Kraumsverðlaunin
fyrir plötu sína
Aerial. Hún á að
baki hljómplötur ein
síns liðs og í sam-
floti með öðrum.
FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
ÁLFAGARÐURINN Ragnhildur stendur hér við beykitréð sem hún heldur mikið upp á.
FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
TÍST VIKUNNAR
Halldór
Armand
@HalldorArmand
Að ganga til liðs
við ISIS eru einhver þau
kröftugustu mótmæli sem
ég get ímyndað mér gegn
aðför íslenskra stjórnvalda að
kvikmyndabransanum.
Kött Grá Pje
@KottGraPje
Við Kurt Vonnegut
hefðum orðið
algjörir homies. Hann fyndni
gaurinn, ég bömmandi sígó
gaurinn. M-kenning, möguleik-
arnir.
Andri Snær
Magnason
@AndriMagnason
Skattur á náttúru
og bækur - Sjálfstæðisflokk-
urinn að hefna sín á vinstri
grænum.
Sunna Ben
@SunnaBen
Ég vil fara á
námskeið í R&B
dönsum sömdum fyrir karl-
menn, ég vil læra að engjast
eins og Tyrese og Usher! Ekki
halda að ég sé að grínast!
Unnur
Eggertsdóttir
@UnnurEggerts
Mundi ekki hvað
eldgosið sem er í gangi (er
það búið?) heitir svo nú halda
nokkrir Kanar að það heiti
Baggalútur. #fyrstasemmér-
dattíhug
Tilnefningar til Golden Globe-
verðlaunanna voru tilkynntar í
gær og er Íslendingurinn Jóhann
Jóhannsson tónlistarmaður meðal
tilnefndra. Jóhann er tilnefndur
fyrir bestu frumsömdu tónlist-
ina í kvikmyndinni The Theory of
Every thing, sem fjallar um námsár
eðlisfræðingsins Stephens Hawk-
ing við Cambridge-háskóla og
samband Hawkings við fyrrver-
andi eiginkonu sína, Jane Wilde.
The Theory of Everything hlaut
alls fjórar tilnefningar en myndin
er einnig tilnefnd sem besta kvik-
myndin, Eddie Redmayne tilnefnd-
ur sem besti dramaleikarinn og
Felicity Jones tilnefnd sem besta
dramaleikkonan.
Redmayne þykir hljóta talsverða
samkeppni í sínum flokki en þar er
Benedict Cumberbatch einnig til-
nefndur fyrir The Imitation Game.
Flestar tilnefningar í ár hlaut kvik-
myndin Birdman sem leikstýrt er
af Alejandro González Iñárritu.
Birdman er tilnefnd er til alls sjö
Golden Globe-verðlauna: sem besta
myndin í flokknum gamanmyndir
eða söngleikir, fyrir bestu tónlist-
ina, Michael Keaton sem besti leik-
arinn í flokki gamanmynda og söng-
leikja og besta handritið. Einnig
voru Edward Norton og Emma Stone
tilnefnd sem besti leikari og
leikkona í aukahlutverkum.
Golden Globe-verðlaunin
verða veitt ellefta janúar á
næsta ári, þetta er í sjötug-
asta og annað skipti sem
hátíðin er haldin og munu
Tina Fey og Amy Poehler
verða kynnar í þriðja sinn.
Jóhann Jóhannsson tilnefndur til Golden Globe
Kvikmyndin The Theory of Everything hlýtur fj órar tilnefningar en hátíðin er nú haldin í sjötugasta og annað sinn.
TILNEFNDUR Jóhann Jóhannsson
hlaut tilnefningu fyrir bestu frum-
sömdu tónlistina.
BESTI LEIKARINN
Eddie Redmayne
er tilnefndur fyrir
hlutverk sitt sem
Stephen Hawking
í The Theory of
Everything.
Tónlistarkonan Björk
Guðmundsdóttir var árið
2000 tilnefnd til tvennra
Golden Globe-verðlauna.
Björk var tilnefnd sem
besta dramaleikkonan
fyrir kvikmyndina Dancer
in the Dark og einnig
fyrir besta frumsamda
lagið úr kvikmyndinni,
I’ve seen it all, sem
samið var ásamt
Lars von Trier leik-
stjóra og Sjón.
Björk tilnefnd
LÍFIÐ
12. desember 2014 FÖSTUDAGUR
Ég hef alltaf
heimsótt þetta tré
og þótt vænt um
það frá því ég
var krakki.