Fréttablaðið - 12.12.2014, Page 76
12. desember 2014 FÖSTUDAGUR| LÍFIÐ | 46
PIXIES
11. júní Laugardalshöll
Þessi gamalkunna rokkhljómsveit
sýndi hvað í hana er spunnið á tón-
leikum sínum í Höllinni. Hver rokk-
slagarinn á fætur öðrum hljómaði
og söngvarinn Black Francis öskraði
á áreynslulausan hátt.
MASSIVE ATTACK
21. júní Laugardalur
Enska hljómsveitin var aðalnúmer
tónlistarhátíðarinnar Secret Solstice
sem var haldin í fyrsta sinn í Laugar-
dalnum. Tónleikarnir heppnuðust
vel og fólk var með snjallsímana á
lofti þegar lagið Teardrops tók að
hljóma.
TOM ODELL
26. júní Harpa
Hinn 23 ára breski tónlistar-
maður og píanósnillingur tróð
upp í Eldborgarsalnum í sumar við
góðar undirtektir. Honum skaut
upp á stjörnuhimininn á síðasti ári
þegar hann gaf út plötuna Long Way
Down.
NEIL YOUNG
7. júlí Laugardalshöll
Kanadíska goðsögnin steig á svið í
fyrsta sinn á Íslandi ásamt hljóm-
sveitinni Crazy Horse og voru
tónleikarnir hluti af hátíðinni All
Tomorow’s Parties. Young var í fínu
formi og spilaði nokkur af sínum
bestu lögum, þar á meðal Heart of
Gold.
PORTISHEAD
11. júlí Ásbrú
Triphop-hljómsveitin frá Bristol á
Englandi stóð svo sannarlega undir
væntingum á hátíðinni All Tomorr-
ow’s Parties sem var haldin í annað
sinn á Ásbrú í sumar. Sannkölluð
veisla, bæði fyrir augu og eyru.
INTERPOL
12. júlí Ásbrú
Þessir tónleikar á ATP-hátíðinni voru
þeir fyrstu hjá bandarísku rokksveit-
inni á Íslandi og tókust einkar vel.
Hljómsveitin var dugleg við að spila
lög af tveimur fyrstu plötum sínum,
sem eru í uppáhaldi hjá flestum
aðdáendum hennar.
BRYAN ADAMS
9. og 10. ágúst Harpa
Hjartaknúsarinn kanadíski sýndi
allar sínar bestu hliðar á tvennum
tónleikum. Adams var á ferðalagi
um heiminn ásamt píanóleikara á
svokölluðum Bare Bones-túr. Nutu
íslensku áhorfendurnir mikillar ná-
lægðar við söngvarann, sem hrósaði
hljóminum í Eldborgarsalnum.
JUSTIN TIMBERLAKE
24. ágúst Kórinn
Stórtónleikarnir voru hluti af tón-
leikaferð bandaríska popparans um
heiminn. Þeir heppnuðustu einkar
vel, enda höfðu þeir verið skipulagðir
í þaula. Þessir sautján þúsund manna
tónleikar voru sendir út í beinni
útsendingu á vefsíðunni Yahoo.
UB40
19. september Harpa
Hljómsveitin var ákaflega vinsæl á
níunda áratugnum og í byrjun þess
tíunda með lögum á borð við Red Red
Wine, I’ve Got You Babe og I Can’t
Help Falling in Love. Að sjálfsögðu
spilaði hún sín bestu lög í Eldborgar-
salnum við góðar undirtektir.
THE KNIFE
8. nóvember Harpa
Þetta voru síðustu tónleikarnir á ferli
hins sænska raftónlistardúetts, sem
hafði ákveðið að leggja upp laupana
að þeim loknum. Mikill fjöldi fólks
var samankominn í Silfurbergi til að
verða vitni að þessum tímamótum.
FLAMING LIPS
9. nóvember Vodafonehöllin
Bandaríska hljómsveitin The Flaming
Lips spilaði á lokatónleikum Iceland
Airwaves-hátíðarinnar. Þetta var í
annað sinn sem hún kom hingað
því hún spilaði einnig árið 2000 á
Airwaves-hátíðinni. Tónleikarnir í
Vodafonehöllinni heppnuðust einkar
vel og voru mikið sjónarspil.
SLASH
6. desember Laugardalshöll
Fyrrverandi gítarleikari bandarísku
rokksveitarinnar Guns N’Roses sýndi
snilldartilþrif á tónleikunum og
spilaði lög á borð við Paradise City og
Sweet Child O’Mine. Myles Kennedy
sá um sönginn, sem minnti mjög á
Axl Rose, söngvara Guns N’Roses.
Justin Timberlake, Neil Young og
tíu til viðbótar skemmtu Íslendingum
Fjöldi frægra erlendra tónlistarmanna og hljómsveita steig á svið á Íslandi árið 2014. Fjölmennustu tónleikarnir voru með popparanum
Justin Timberlake sem spilaði í Kórnum fyrir framan um sautján þúsund manns. Hér er listi yfi r tólf af eft irminnilegustu tónleikunum.
FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL
NORDICPHOTOS/GETTY
NORDICPHOTOS/GETTY
SLASH
THE KNIFE
JUSTIN TIMBERLAKE
NEIL YOUNG
PIXIES
MASSIVE ATTACK
PORTISHEAD
BRYAN ADAMS
TOM ODELL
THE FLAMING LIPS
FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁNFRÉTTABLAÐIÐ/ANDRI MARÍNÓ
FRÉTTABLAÐIÐ/ANDRI MARÍNÓ
FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR