Fréttablaðið - 12.12.2014, Page 78

Fréttablaðið - 12.12.2014, Page 78
12. desember 2014 FÖSTUDAGUR| LÍFIÐ | 48 Skýringar Stendur í stað síðan í síðustu viku Fellur um sæti síðan í síðustu viku Hækkar á lista síðan í síðustu viku Nýtt á lista Listarnir eru teknir saman fyrir Félag hljómplötuframleiðenda. Þátttakendur í Lagalistanum Bylgjan, FM957, Xið 977, Rás 2 og K100,5. Auk þess er tekið mið af sölu og spilun á Tónlist.is og spilun á Spotify. Verslanir í Tónlistanum Skífan, Hagkaup, Penninn/Eymundsson, 12 tónar, Harpa, Smekkleysa plötubúð, Elko, Samkaup, Kaupfélag Skagfirðinga, Lucky Records, Vefverslun Record Records, N1 og tonlist.is LAGALISTINN TÓNLISTINN 5.12.2014 ➜ 11.12.2014 1 Ýmsir SG jólalögin 2 Helgi Björns Eru ekki allir sexý 3 Skálmöld Með vættum 4 Páll Rósinkranz 25 ár 5 Ýmsir Fyrir börnin 6 Ýmsir Pottþétt jól (2014) 7 Óskalög þjóðarinnar 8 Gissur Páll Aría 9 Raggi Bjarna 80 ára 10 Ýmsir Pottþétt 63 1 Jón Jónsson Gefðu allt sem þú átt 2 Hozier Take Me To Church 3 Amabadama Gaia 4 Ed Sheeran Thinking Out Loud 5 Ásgeir Trausti Stormurinn 6 Máni Orrason Fed All My Days 7 Kaleo All The Pretty Girls 8 George Ezra Blame It On Me 9 Mark Ronson/Bruno Mars Uptown Funk 10 Meghan Trainor Lips Are Movin Í dag fer fram stjórnarfundur STEFs, Sambands tónskálda og eigenda flutningsréttar en eftir fundinn verða upplýsingar birtar um síðustu úthlutunina á STEF- gjöldum, sem Dr. Gunni gerði athugasemdir við á miðvikudags- kvöld. Hann greindi frá því á Face- book-síðu sinni að hann hefði fengið greitt fyrir útvarpsspilun á síðasta ári en þá átti hann eitt vinsælasta lag landsins, Glaðasti hundur í heimi. Fyrir það fékk hann 114.594 krónur greiddar. „Ég er löngu hættur að skilja STEFið. Ég fékk minna núna sam- tals en í fyrra þegar ég átti engan nýjan hittara, eða nýja plötu, heldur fékk eitthvað uppsóp. Maður heldur samt bara kjafti því þetta er allt alveg óskiljan- legt helvíti,“ ritar Gunni. Guðrún Björk Bjarnadóttir, framkvæmdastjóri STEFs, vill bjóða Gunna í heimsókn til að fara í gegnum málin með honum. „Það er reyndar verkefni sem við höfum verið með í gangi und- anfarin tvö ár að leggja mikla áherslu á gegnsæi og fræðslu, meðal annars með því að hafa alla ársreikninga- og skýrslur STEFs á heimasíðunni okkar,“ segir Guð- rún. Gjöldin sem Gunni vísar í eru þau síðustu sem félagið deilir út til félagsmanna á árinu en það er gert alls ellefu sinnum á ári. „Auðvitað finnst okkur leiðin- legt ef mönnum finnst þeir eiga skilið að fá úthlutað meira en þeir fá í raun en þetta er náttúrulega bara byggt á þeim tekjum sem við fáum frá viðkomandi miðli. Þeim tekjum er deilt niður á upp- lýsingar um spilanir frá sama Býður Dr. Gunna í heimsókn til STEFs STEF gefur út skýrslu um úthlutanir félagsins í dag en tónlistarmaðurinn Dr. Gunni var ekki par sáttur við STEF-gjöldin fyrir lagið Glaðasti hundur í heimi. Næstkomandi miðvikudag verður haldinn skiptimarkaður á Lofti hosteli í Bankastræti. Hann er opinn öllum og er fólk hvatt til þess að koma með föt, bækur eða aðra hluti sem ekki koma þeim að notum en nýst gætu öðrum. „Þetta hefur verið gert frá opnun hostelsins og gengið betur og betur eftir því sem fleiri vita af þessu,“ segir Aníta Eldjárn Kristjánsdóttir, viðburðastjóri Lofts hostels. Á markaðnum kennir ýmissa grasa. „Þetta eru ekki bara föt heldur líka bækur eða bara eitt- hvert dót sem fólk heldur að gæti nýst öðrum,“ segir hún og bætir við að fólki sé frjálst að koma með hvað sem er svo lengi sem það sé í nothæfu ástandi. „Þetta er kjörið tækifæri fyrir fólk að finna bókina til þess að lesa um jólin eða jafnvel ef það vantar eitthvað í jóladressið.“ Skiptimarkaðurinn er skipu- lagður af sjálfboðaliðum frá Europ ean Voluntary Service. „Hjá okkur koma þeir og hjálpa okkur að halda vinnustaðnum grænum. Þeir taka alla starfs- menn í „green training“ og sjá til þess að allir á vinnustaðnum séu meðvitaðir um náttúruna. Við erum með Svansvottun og þá gilda ákveðnar reglur um flokk- un á rusli og svona.“ Skiptimarkaðurinn hefst klukkan fjögur á miðvikudaginn- næstkomandi. - gló Bíður jólabókin á skiptimarkaði? Í næstu viku verður skiptimarkaður á Loft i hosteli. Öllum er frjálst að taka þátt. VIÐBURÐASTJÓRI Mögulega leynist jólaflíkin á skipti- markaðnum. MYND/ANÍTA ELDJÁRN Samúel Jón Samúelsson tón- listarmaður svaraði færslu Gunna á Facebook. „Aðalatriðið er fyrir höfunda að sjá til þess að verkin þeirra séu skráð og síðan bara fylgjast með því, það fá allir sent yfirlit yfir hvaða lag greiðir hversu mikið,“ segir Samúel í samtali við Fréttablaðið. „Það er einnig gott að fylgjast með yfirlitinu. Auð- vitað geta verið mistök í svona útreikningum líka þannig það er bara sjálfsagt að hafa samband við skrifstofuna ef menn halda að það sé eitthvað skrýtið í gangi. En ég get nú svo sem ekki sagt neitt, ég elska sjálfur að tuða í netheimum,“ segir Samúel. Elskar að tuða í netheimum DR. GUNNI Löngu hættur að skilja Stefið. Hann fékk tæpar 115 þúsund krónur fyrir hið vinsæla lag Glaðasti hundur í heimi. FRÉTTABLAÐIÐ/ARNÞÓR GUÐRÚN BJÖRK BJARNADÓTTIR Segir greiðslur geta sveiflast frá einu ári til annars. miðli þannig að það getur sveifl- ast aðeins frá einu ári til annars. Það er auðvitað ekki gott ef okkar eigin meðlimum finnst þeir ekki skilja hvernig þeirra eigin samtök vinna,“ segir Guðrún. Hún bætir við að rekstur félagsins sé þann- ig uppbyggður að öllu sé úthlut- að þegar búið er að taka tillit til rekstrarkostnaðar. „Það má sjá í okkar ársreikningum að við erum að úthluta um 80 prósentum af öllum þeim tekjum sem við inn- heimtum.“ torduringi@frettabladid.is Þetta er kjörið tækifæri fyrir fólk að finna bókina til þess að lesa um jólin eða jafnvel ef það vantar eitthvað í jóladressið.

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.