Fréttablaðið - 12.12.2014, Síða 84
12. desember 2014 FÖSTUDAGUR| SPORT | 54
FÓTBOLTI Blikinn Kristinn Stein-
dórsson varð í gær annar íslenski
leikmaðurinn sem semur við lið í
bandarísku MLS-deildinni í knatt-
spyrnu frá endurstofnun henn-
ar árið 1996. Kristinn gerði fjög-
urra ára samning við Columbus
Crew sem er frá samnefndri borg
í Ohio-ríki, en Kristinn hefur spil-
að síðustu þrjú ár með Halmstad í
Svíþjóð. Þjálfari liðsins er Banda-
ríkjamaðurinn Gregg Berhalter
sem þjálfaði Hammarby í Svíþjóð
frá 2012-2013.
„Ég spilaði á móti Hammarby
með Halmstad þegar við vorum í
1. deildinni í Svíþjóð. Hann þekk-
ir mig síðan þá og hefur verið að
fylgjast með mér,“ segir Kristinn í
viðtali við Fréttablaðið. „Nú þegar
ég var orðinn samningslaus hafði
hann samband við mína umboðs-
menn og þannig fór boltinn að
rúlla,“ segir hann.
Lítur vel út
Aðeins Guðlaugur Victor Pálsson
hefur verið á mála hjá MLS-liði,
en hann spilaði með New York Red
Bulls. Þekkingin á deildinni er því
eðlilega ekki mikil á meðal Íslend-
inga.
„Mér fannst þetta spennandi
þegar þetta kom upp þó ég vissi
ekki mikið um deildina. Ég var
aðeins efins fyrst. En um leið og
ég var búinn að tala við þjálfarann
og kynna mér félagið þá var þetta
aldrei spurning í mínum huga,“
segir Kristinn, sem á þó eftir að
heimsækja borgina.
„Þeir voru bara að klára tíma-
bilið núna og fóru svo í frí. Ég hef
rætt við þjálfarann og fengið upp-
lýsingar um félagið. Svo hef ég
horft á nokkra leiki og séð tilþrif á
YouTube. Þetta lítur mjög vel út.“
Á eftir að líða vel
Columbus er ríflega 800 þúsund
manna borg og deila tvö atvinnu-
mannalið áhuga íþróttaunnenda.
Það er NHL-liðið Columbus Blue
Jackets og The Crew eins og fót-
boltaliðið er kallað. Fótboltaáhugi
er gríðarlega mikill í borginni og
leikir Crew vel sóttir. Liðið var það
fyrsta sem fékk völl sérhannaðan
fyrir knattspyrnuleiki og þar spil-
ar bandaríska liðið oft.
„Það náttúrlega hjálpar að þarna
er ekki NFL-lið sem tekur áhuga
frá fótboltaliðinu sem gerir þetta
mjög spennandi. Það er allt á
réttri leið þarna. Ég hef verið að
kynna mér hugmyndafræði liðs-
ins og hvernig það vill gera hlut-
ina. Það sem ég hef séð og heyrt
líkar mér. Ég held mér eigi eftir að
líða vel þarna,“ segir Kristinn, en
hvað varðar fótboltann þá hentar
hann þessum skjóta og marksækna
kantmanni mjög vel.
„Ég veit að liðið vill vera mikið
með boltann sem hentar mér mjög
vel. Það var með næstflestar send-
ingar í deildinni á síðustu leik-
tíð. Liðið spilar leikkerfið 4-2-3-1
og þessir þrír fyrir aftan fram-
herjann eiga að koma „inn á völl-
inn“ og skapa hluti þaðan. Það er
gott fyrir mig, en í Svíþjóð var ég
meira hefðbundinn kantmaður.“
Dreymir um landsliðið
Kristinn hefur verið í lykilhlut-
verki hjá Halmstad í sænsku
úrvalsdeildinni undanfarin tvö
ár og skoraði átta mörk á síðustu
leiktíð. Hann hefur ekki enn feng-
ið tækifæri í landsliðshópi Lars
og Heimis, en vonast til að þessi
félagaskipti hjálpi til við það.
„Ákvörðunin var ekki tekin með
mið af landsliðinu, en ég held klár-
lega að þetta skref muni hjálpa
mér. Ég verð í betra umhverfi og
betri deild tel ég tvímælalaust.
En svo er bara undir mér komið
að standa mig. Þó ákvörðunin sé
ekki tekin í von um að fá landsliðs-
kall þá held ég að þetta eigi eftir
að auka möguleikana á því. Það
er náttúrlega það sem maður von-
ast eftir. Það hefur verið draum-
ur lengi að fá fyrsta leikinn með
landsliðinu,“ segir Kristinn, sem
er ánægður með þau skref sem
hann hefur tekið á ferlinum.
Hann fór úr Pepsi-deildinni í
sænsku 1. deildina og upp með
sínu liði í sænsku úrvalsdeildina.
Og nú fær hann tækifæri í stórri
deild. „Ég er mjög sáttur við þetta
og held að þetta sé ekki of stórt
skref. Ég hef fulla trú á því að
ég geti haft áhrif þarna strax og
hjálpað liðinu.“
Kall frá Beckham?
Í fyrradag fór fram hálfgert
nýliðaval í MLS-deildinni þar sem
nýju liðin tvö, New York City FC
og Orlando City SC, fengu að velja
sér tíu leikmenn hvort frá hinum
liðunum til að stækka leikmanna-
hópa sína. Eftir nokkur ár kemur
nýtt lið í Miami inn í deildina og
fær að gera það sama, en eigandi
þess er David Beckham.
„Hver veit nema maður endi þar.
Það væri ekki leiðinlegt að sitja
inni í klefa og svo kæmi Beckham
að segja manni að maður hefði stað-
ið sig vel,“ segir Kristinn og hlær.
„En fyrsta skrefið er auðvitað
bara að komast í liðið hjá Crew og
standa mig þar. Þjálfarinn hefur
sagst hafa fulla trú á mér. Ég ætla
að reyna að gera mitt besta þarna
og allt annað er aukatriði,“ segir
Kristinn. tomas@365.is
Séð tilþrif á YouTube
Knattspyrnumaðurinn Kristinn Steindórsson gekk í raðir bandaríska MLS-liðsins
Columbus Crew í gær. Hann er spenntur fyrir nýju verkefni í nýju landi.
VESTURFARI Kristinn gerði fjögurra ára samning við bandaríska MLS-liðið Columbus Crew í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Ég verð í betra
umhverfi og betri deild
tel ég tvímælalaust.
Kristinn Steindórsson, nýr leikmaður
MLS-liðsins Columbus Crew.
JÓLATILBOÐ
69.900
120X200 CM
JÓLATILBOÐ
111.120
140X200 CM
JÓLATILBOÐ
135.920
160X200 CM
FÓTBOLTI Martin Rauschenberg, danski miðvörðurinn sem spilað hefur með
Stjörnunni í Pepsi-deild karla í fótbolta undanfarin tvö ár, stefnir á að
spila í Noregi eða Svíþjóð á næstu leiktíð. Hann var á reynslu hjá Lille-
ström en semur þó ekki við liðið sem Rúnar Kristinsson þjálfar nú.
„Mér gekk vel hjá Lilleström og þeir voru ánægðir með mig.
En síðan ákvað þjálfarinn að hætta og félagið er líka í fjárhags-
vandræðum. Umboðsmaður minn er byrjaður að leita að nýju
liði,“ segir Rauschenberg við Bold.dk.
Miðvörðurinn telur ólíklegt að lið í heimalandinu semji
við hann og því komi hin Norðurlöndin frekar til greina.
Hann útilokar ekki að koma aftur til Stjörnunnar eða Ís-
lands, en það er ekki fyrsti kostur.
„Ég loka samt engum dyrum. Ég get fengið góðan samning
og fínan peninga á Íslandi þar sem mér hefur gengið svo vel
síðustu ár. Ég er að leita á markaðnum en ef ég finn ekkert
gæti ég farið aftur til Íslands,“ segir Martin Rauschenberg.
Ísland ef allt annað bregst
HANDBOLTI FH varð í gærkvöldi sjöunda liðið sem tryggir sér farseðil-
inn í átta liða úrslit Coca Cola-bikars karla í handbolta þegar liðið lagði
Fram að velli í Safamýri, 28-24. FH náði forystunni eftir tíu mínútna
leik og lét hana aldrei af hendi. Staðan í hálfleik var 12-14 fyrir gestina
úr Hafnarfirðinum.
Magnús Óli Magnússon var skæðastur í liði FH, en hann skoraði sjö
mörk úr ellefu skotum og Benedikt Reynir Kristinsson setti sex mörk úr
horninu. Ágúst Elí Björgvinsson varði ekki nema átta skot í markinu.
Hjá Fram var Stefán Baldvin Stefánsson markahæstur með sjö mörk
og Garðar B. Sigurjónsson skoraði fimm. Kristófer Fannar Guðmunds-
son byrjaði í markinu og varði níu skot, en Valtýr Már Hákonarson átti
öfluga innkomu og varði sex af þeim níu skotum sem hann fékk á sig.
ÍBV, Valur, Stjarnan, Akureyri, Afturelding, Haukar, ÍR og FH eru nú
komin í átta liða úrslitin og á bara eftir að koma í ljós hvort ÍBV2 eða
Þróttur fylgir þeim. Annað hvort þeirra verður eina neðri deildar liðið í
pottinum þegar dregið verður til átta liða úrslitanna. - tom
FH sjöunda liðið í átta liða úrslitin
MARK Magnús Óli Magnússon skorar eitt af sjö
mörkum sínum fyrir FH. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
SPORT