Fréttablaðið - 12.12.2014, Side 86
12. desember 2014 FÖSTUDAGUR| SPORT | 56
Ég er alveg kölluð
mamma en rosalega oft
bara gamla.
Birna Valgarðsdóttir, 38 ára leikmaður
Keflavíkur í kvennakörfunni
KÖRFUBOLTI Birna Valgarðsdóttir
lék sinn fyrsta leik í efstu deild
kvenna fyrir meira en 22 árum og
á dögunum varð hún sá leikmað-
ur sem hefur spilað flesta leiki í
efstu deild kvenna á Íslandi. Birna
var búin að eiga stigametið í nokk-
urn tíma en nú er hún efst á báðum
listum.
„Ég er rosalega glöð að hafa
náð þessu,“ segir Birna en ætlar
hún að fara með metin þannig að
enginn nái þeim. „Ég veit það nú
ekki alveg því það geta komið upp
einhverjir demantar sem nenna
að þrauka jafnlengi og ég,“ segir
Birna.
Staða Birnu hjá Keflavíkurlið-
inu er þó afar sérstök því hún er
18 og hálfu ári ári eldri en næst-
elsti íslenski leikmaður Keflavík-
urliðsins.
Halda henni ungri
„Ég þarf að halda í við þessar
ungu stelpur og þær halda manni
ungum þessar elskur,“ segir Birna
hlæjandi. Hún fær alveg að vita af
því á æfingum að hún er 18 árum
eldri en sú næstelsta.
„Ég er alveg kölluð mamma
en rosalega oft bara gamla. Þær
skjóta því aðeins á mig,“ segir
Birna en það eru átján ár á milli
hennar og Lovísu Falsdóttur sem
er elst af hinum íslensku leik-
mönnum liðsins. Lovísa og Birna
eru þær einu sem hafa haldið upp
á tvítugsafmælið.
Smellpassar inn í hópinn
„Ég er einu ári eldri en mamma
tvíburanna. Það segir eitthvað,“
grínast Birna með en hún á við
þær Söru Rún og Bríeti Sif Hin-
riksdætur sem eru í stóru hlut-
verki í liðinu þrátt fyrir að vera
bara 18 ára. Finnur Birna sig alveg
með svona ungum stelpum? „Ég
smellpassa inn í þennan hóp eins
og flís við rass,“ segir Birna og
hún heldur áfram að spila.
„Númer eitt, tvö og þrjú er
þetta alveg svakalega gaman. Það
er erfitt hætta. Félagsskapurinn
er líka svakalega stór partur af
þessu. Ég er búin að gera þetta í
öll þessi ár og það á ekki alveg við
mig að verða eitthvert sófadýr. Það
fer kannski að líða að því en ekki
alveg ennþá,“ segir Birna.
Vann sér aftur sæti í liðinu
Birna byrjaði tímabilið rólega,
kom inn af bekknum og fékk oft
ekki mikið að spila. Hún hefur
hins vegar fengið fleiri mínútur
eftir því sem liðið hefur á tíma-
bilið.
„Ég ætlaði ekki að vera eitt
tímabil á bekknum. Ég fór bara að
lyfta af krafti, tók á því af krafti
og reyndi að koma mér í gírinn.
Það er að skila sér,“ segir Birna
sem er aftur komin í byrjunarlið
Keflavíkurliðsins.
Birna varð Íslands- og bikar-
meistari með Keflavíkurliðinu
vorið 2013 og flestir bjuggust við
að það væri tímapunktur fyrir
hana að hætta.
Hugsar um að vinna einn í viðbót
„Það hefði verið voða gaman að
enda sem tvöfaldur meistari en
þegar þú ert orðinn eldri þá snýst
þetta svo mikið um félagsskapinn
og að hafa gaman af þessu,“ segir
Birna og hungrið í næsta titil
rekur hana líka áfram. „Ég get
kannski gert aðeins betur og náð
í eitthvað aðeins meira. Ég hugsa
því meira um að taka einn í viðbót
en eitthvað annað,“ segir Birna.
Birna hefur breytt leikstíl sínum
mikið eftir því sem árunum hefur
fjölgað og er ekki eins leikmaður í
dag og hún var fyrir tíu árum.
„Það er tvennt ólíkt. Ég þarf
ekkert að skora eða gera eitt-
hvað svakalegt eins og ég gerði á
mínum yngri árum. Nú er ég þarna
að hjálpa þeim að spila vörnina, að
taka fráköst og miðla reynslunni.
Það er skemmtilegt hlutverk og ég
er ánægð með það,“ segir Birna.
Sigurður Ingimundarson tók
aftur við Keflavíkurliðinu í
sumar og fékk Birnu til að halda
áfram. „Ég var að spá í að hætta
af því að ég lenti í svo leiðinlegum
meiðslum á síðasta tímabili,“ segir
Birna. Sigurður var duglegur að
hringja í hana og svo var hún bara
komin á fullt.
Birna lætur ekkert í ljós þótt að
skrokkurinn kvarti. „Ég fel þetta.
Ég bít á jaxlinn í leikjum og svo
getur maður varla labbað þegar
maður kemur heim. Það er þess
virði þannig lagað séð,“ segir Birna
en hún veit þó ekki hverjar afleið-
ingarnar af þessu verða þegar hún
eldist og er hætt í boltanum.
Skagfirðingur í húð og hár
„Það eru allir að segja við mig:
Ertu ekki að fara hætta? Þú ert
orðin svo gömul. Ég svara á móti
að þetta snúist ekki um það,“ segir
hún.
Birna spilaði sinn fyrsta leik í
efstu deild með Tindastóli haust-
ið 1992 en er hún ekki löngu orðin
Keflvíkingur eftir átján ára tíma-
bil þar?
„Ég segi alltaf að ég sé Skagfirð-
ingur í húð og hár en ég er með
Keflavíkurhjarta,“ segir Birna að
lokum. ooj@frettabladid.is
Átján árum eldri en sú næstelsta
Birna Valgarðsdóttir er nú bæði leikja- og stigahæsti leikmaður úrvalsdeildar kvenna í körfubolta frá upphafi . Birna tók leikjametið af
Hafdísi Helgadóttur á dögunum en Birna hafði áður náð stigametinu af Önnu Maríu Sveinsdóttur. Er á sínu 22. tímabili í efstu deild.
ALLTAF JAFN GAMAN Birna Valgarðsdóttir og hin bandaríska Carmen Tyson- Thom-
as fylgjast hér með ungu stelpunum í liðinu. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
ENN Í TOPPFORMI Birna Valgarðsdóttir í leiknum á móti Val á miðvikudagskvöldið
en það var hennar 364. leikur í efstu deild. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
FLESTIR LEIKIR Í
ÚRVALSDEILD KVENNA:
Birna Valgarðsdóttir 364
Hafdís Helgadóttir 362
Þórunn Bjarnadóttir 351
Sigrún Skarphéðinsdóttir 332
Hildur Sigurðardóttir 330
Anna María Sveinsdóttir 324
Guðbjörg Norðfjörð 284
Alda Leif Jónsdóttir 275
Linda Stefánsdóttir 259
Kristrún Sigurjónsdóttir 247
Kristín Blöndal 243
Pálína Gunnlaugsdóttir 242
Birna Valgarðsdóttir
38 ÁRA GÖMUL
364 LEIKIR OG 5.207 STIG Í
ÚRVALSDEILD
Spilaði sinn fyrsta úrvalsdeildarleik 9. október
1992 en þá var enn 21 mánuður þar til að
elsti íslenski leikmaður Keflavíkurliðsins í dag
fæddist.
Er að spila sitt sautjánda tímabil í röð og
átjánda tímabil alls með Keflavík.
Hefur spilað með fjórum félögum í efstu deild
- Tindastól (28 leikir, 419 stig), Breiðabliki (18
leikir, 169 stig), Grindavík (15 leikir, 203 stig) og
svo Keflavík (303 leikir, 4.416 stig).
Hefur verið í sigurliði í 267 af 364 leikjum
sínum í efstu deild.
Hinir 11 íslensku leikmennirnir
17,8 ÁRA AÐ MEÐALTALI
639 LEIKIR OG 3.429 STIG Í
ÚRVALSDEILD
Sara Rún Hinriksdóttir (18 ára) 95 leikir/1252
Sandra Lind Þrastardóttir (18 ára) 94/355 stig
Lovísa Falsdóttir (20 ára) 93/182
Hallveig Jónsdóttir (19 ára) 90/462
Bríet Sif Hinriksdóttir (18 ára) 72/244
Marín Laufey Davíðsdóttir (19 ára) 67/574
Ingunn Embla Kristínardóttir (19 ára) 38/292
Thelma Dís Ágústsdóttir (16 ára) 38/42
Elfa Falsdottir (16 ára) 27/2
Emelía Ósk Gunnarsdóttir (16 ára) 14/22
Irena Sól Jónsdóttir (17 ára) 11/2
BIRNA OG „BÖRNIN“ HENNAR Í KEFLAVÍKURLIÐINU
GOLF Tveir íslenskir kylfingar verða meðal þátt-
takenda á lokaúrtökumótinu fyrir Evrópumótaröð
kvenna í golfi en það hefst á miðvikudag í næstu
viku. Valdís Þóra Jónsdóttir tryggði í gær sinn þátt-
tökurétt á lokamótinu með því að hafna í 8.-10. sæti á
úrtökumóti í Marokkó en 42 efstu kylfingarnir kom-
ust áfram.
„Ég var ekki að spila vel í dag og gerði margt illa.
En það var í raun engin pressa á mér þannig séð og
því var það bara fínt að geta klárað þennan lélega
hring,“ sagði Valdís Þóra í samtali við Fréttablaðið í
gær. „Maður gat átt von á því að það kæmi einn léleg-
ur hringur hjá mér.“ Valdís Þóra spilaði lokahring-
inn á sjö höggum yfir pari en á fjórtán höggum yfir
pari samtals. Hún lék því fyrstu þrjá keppnisdagana
á samtals sjö höggum yfir pari.
Valdís Þóra komst einnig á lokastig úrtökumóta-
raðarinnar í fyrra en náði ekki að vinna sér þátt-
tökurétt á sjálfri Evrópumótaröðinni. Hún segir
mikilvægt að búa að þeirri reynslu. „Maður skalf á
beinunum í fyrsta teig í fyrra en ég fann ekki fyrir
neinu stressi í ár. Það getur hins vegar verið að maður
verði aðeins á nálum í næstu viku en ekkert í líkingu
við það sem maður upplifði í fyrra.“
Ólafía Þórunn Kristinsdóttir, ríkjandi Íslandsmeist-
ari í golfi, var þegar búin að tryggja sér þátttökurétt
á lokamótinu og Valdís Þóra segir að það verði gott að
hafa annan íslenskan kylfing með sér í mótinu.
„Það hjálpar alltaf að hafa einhvern með sér sem
maður þekkir en þar að auki ætlar Tinna Jóhanns-
dóttir [fyrrum Íslandsmeistari] að fljúga út og vera
kylfuberi fyrir mig. Það verður mjög gott að njóta
hennar aðstoðar,“ segir hún. - esá
Ekkert stress í þetta skiptið
Valdís Þóra Jónsdóttir komst áfram á lokaúrtökumótið fyrir Evrópumótaröðina.
VALDÍS ÞÓRA Mun freista þess annað árið í röð að vinna sér
þátttökurétt á Evrópumótaröðinni. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL
FA
S
TU
S
_E
_5
5
.1
2
.1
4
Síðumúli 16 | 108 Reykjavík | Sími 580 3900 | www.fastus.is
Verslun opin mán - fös 8.30 - 17.00
Beittur
í hnetusteikina
Santouko stálhnífur
Kr. 27.062,-