Fréttablaðið - 12.12.2014, Page 92
12. desember 2014 FÖSTUDAGUR| LÍFIÐ | 62
„Þetta kom allt voðalega skjótt
upp. Ég var fríi í Orlando með fjöl-
skyldunni þegar haft var samband
við mig og ég beðinn um að taka
þátt í þessu. Það var á föstudegi og
á mánudeginum vorum við komin
til Madríd,“ segir Jón Jónsson tón-
listarmaður.
Hann var óvænt beðinn um að
syngja í HM-laginu fyrir heims-
meistaramót karla í handbolta sem
fer fram í Katar í janúar. „Ísland
kemst óvænt inn á HM þarna á
föstudeginum og svona tíu mín-
útum síðar fékk ég tölvupóst frá
einhverri píu í LA sem er tón-
listarráðgjafi og bað mig að vera
með. Þá hafði hún einhvern veg-
inn fundið mig á netinu og fannst
ég kjörinn í þetta verkefni,“ segir
Jón.
Lagið heitir Live it, Win it og
verður frumflutt þann 18. desem-
ber. „Ég var svo bara mættur til
Madríd þarna á mánudeginum,
allt í einu kominn í eitthvert risa
stúdíó og búinn að eignast tvo nýja
vini, einhvern Svía og Frakka,“
segir hann, en í laginu syngja full-
trúar frá hverri þjóð sem tekur
þátt í mótinu eða alls 24.
„Þetta eru allt stjörnur í sínum
löndum og gaman að segja frá því
að þarna var mættur enginn annar
en Alexander Ryback fyrir hönd
Hvíta-Rússlands. Það vita ekki
allir að hann er Hvítrússi en ekki
Norðmaður,“ segir Jón, sem heldur
út til Katar í janúar til þess að taka
þátt í flutningi á laginu við setn-
ingarathöfn mótsins.
„Það verður áhugavert að fara
þangað, þetta er allt annað en það
sem við þekkjum, enda ein ríkasta
þjóð heims miðað við höfðatölu,“
segir hann. Það verður einnig sér-
staklega spennandi fyrir popp-
arann að fara út, þar sem mágur
hans er að spila á mótinu. „Þeim
úti fannst það alveg hreint magn-
að, að maður tvíburasystur minn-
ar (Ásgeir Hallgrímsson) væri í
liðinu,“ segir Jón. Það er annars
nóg að gera hjá honum þessa dag-
ana því hann gaf út plötuna Heim
á dögunum og er á fullu að undir-
búa tónleika í Austurbæjarbíói 19.
desember. adda@frettabladid.is
Syngur í HM-laginu
Tónlistarmaðurinn Jón Jónsson var valinn til að syngja í lagi sem samið var fyrir
heimsmeistaramót karla í handbolta sem verður haldið í Katar í janúar.
SKEMMTILEGT TÆKIFÆRI Jón hlakkar mikið til þess að fara út til Katar til að taka
þátt í flutningi HM-lagsins. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Ég var svo bara
mættur til Madríd þarna
á mánudeginum, allt í
einu kominn í eitthvert
risa stúdíó og búinn að
eignast tvo nýja vini,
einhvern Svía og Frakka.
„Þetta hefur verið í þróun síðan í
september. Ég gaf vinkonu minni
mynd af fjallinu okkar heima í
afmælisgjöf, en við erum báðar að
austan,“ segir Elísabet Sara Emils-
dóttir en í framhaldi afmælis-
gjafarinnar fóru hjólin að snúast.
„Ég vissi í rauninni ekkert hvað ég
ætlaði að gera með þetta en byrjaði
að fá fyrirspurnir,“ segir Elísabet
sem fór í kjölfarið að vinna að ljós-
myndaseríunni Tindum.
Elísabet tekur allar myndirn-
ar af fjöllunum sjálf og það tekur
talsverðan tíma að ferðast um og
ná góðum myndum í sómasamlegu
veðri. „Núna er ég búin að gera sjö
fjöll og það eru fleiri væntanleg.“
Myndirnar koma í takmörkuðu
upplagi. „Þetta eru grafískt unnar
ljósmyndir. Ljósmynd í grunninn og
svo mynstra ég þær. Hver og ein er
með sínu eigin mynstri sem verður
til út frá hæð og lögun fjallsins.“
Elísabet segist verða vör við
að fólk vilji fá myndir af fjöllum
sem það hafi persónulega teng-
ingu við. „Ég er alin upp á Seyðis-
firði og það er svolítið svona per-
sónulegt fyrir fólk að eiga eitthvað
frá heimabyggðinni uppi á vegg.
Marga langar að eiga eitthvað
sem minnir þá á heimahagana.“
Myndir Elísabetar er hægt að fá í
verslunum Mýrarinnar, Gullabúinu
á Seyðisfirði og versluninni Level í
Mosfellsbæ. - gló
Grafískt unnar myndir af fj öllum
Elísabet Sara Emilsdóttir gerði ljósmyndaseríuna Tinda í kjölfar afmælisgjafar.
Þetta eru grafískt
unnar ljósmyndir. Ljósmynd
í grunninn og svo mynstra
ég þær. Hver og ein er með
sínu eigin mynstri sem
verður til út frá hæð og
lögun fjallsins.
ELÍSABET
Hefur þróað
hugmyndina
að mynd-
unum síðan
í september.
FRÉTTABLAÐIÐ/
STEFÁN
„Ég var svona fimm ára og átti
flöskugrænan kjól úr óræðu efni
með hvítum blúndukraga. Hann
er enn til enda mátti ég bara vera
í honum í þrjár mínútur í senn á
meðan það var tekin mynd.“
Viktoría Blöndal, sviðshöfundur og nemi
JÓLAFÖTIN
SHAPE
B Y N AT U R E ’ S B E D D I N G
JÓLATILBOÐ
375.955
2X80X200 CM
„Mér bauðst að setja upp jólasýn-
ingu í galleríinu Betra veðri fyrir
desember. Úr varð hugvekja um
sýnir einstaklinga á dánarbeði
sínum,“ segir Freyja Eilíf Loga-
dóttir myndlistarkona.
„Langamma mín lést 2003 og
hún var alltaf að tala um mann
sem stóð hjá rúminu hjá henni,
sem var eins og tölva og hún
skildi ekkert af hverju við sáum
hann ekki,“ segir hún, en þann-
ig kviknaði hugmyndin. „Ég las
bók um rannsóknir á dauðastund-
inni og um sýnir á dánarbeði. Þar
talar fólk um að hafa séð látna fjöl-
skyldumeðlimi koma og sækja þá,
það fyllist vellíðunartilfinningu og
óttast ekki dauðann,“ segir Freyja.
Hún valdi nokkrar og fjölbreytt-
ar sýnir sem henni þóttu áhuga-
verðar og út frá þeim vann hún
verkið. „Einn lýsti þessu eins og
loftleysi í geimnum og annar líkt
og hann væri í sandeyðimörk.
Aðrir heyrðu hljóð sem líktust
tónlist, sem var samt ekki tónlist.
Flestir töluðu samt um þessi göng
eða gátt,“ segir Freyja.
Verkið er gluggi sem myndar
göng sem liggja út í geim. Í þeim
eru speglar sem skapa þrep
sem leiða í aðra vídd. „Hver
veit, kannski er heiminum bara
stjórnað af tölvum þarna hinum
megin, eins og amma sagði,“ segir
Freyja. Sýningin í Betra veðri,
Laugavegi 41, verður opin út des-
ember. - asi
Vinnur verk út frá mismunandi dauðasýnum
Freyja Eilíf Logadóttir sýnir óvenjulegt verk byggt á sýnum fj ölda einstaklinga um dauðann.
Langamma mín lést
2003 og hún var alltaf að
tala um mann sem stóð
hjá rúminu hjá henni.
VERKIÐ Í GLUGGANUM Freyja Eilíf
Logadóttir myndlistarkona við verk sitt
Sýnir á dánarbeði. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR