Fréttablaðið - 27.12.2014, Qupperneq 2
27. desember 2014 LAUGARDAGUR| FRÉTTIR | 2
Voðmúlastaðakapella
VINSÆLASTA MYNDIN Rangt var farið með nafn mannsins sem átti mynd af
Voðmúlastaðakapellu í ljósmyndasamkeppni Fréttablaðsins og Vísis. Myndin var
valin vinsælasta myndin af lesendum og birtist hún í Fréttablaðinu á aðfangadag
jóla. Ljósmyndarinn heitir Sigurður Jónsson. Beðist er velvirðingar á mistökunum.
VIÐSKIPTI Metfjöldi ferðamanna
dvelur á Íslandi um jólin, eða um
60 þúsund manns. Meiri eftirspurn
er eftir verslun og þjónustu og víða
mynduðust langar biðraðir ferða-
manna í miðborginni fyrir utan
þá fáeinu staði sem höfðu opið á
aðfangadagskvöld og jóladag.
Yaman Brikhan, eigandi veitinga-
staðarins Ali Baba, er einn þeirra
sem urðu við aukinni eftirspurn
og ákvað að hafa opið yfir öll jólin.
Hann sá ekki sérstaka ástæðu til
þess í fyrra en í ár var staðurinn
fullur bæði á aðfangadagskvöld og
jóladag.
„Það var alveg brjálað að gera
allan aðfangadag, sérstaklega frá
klukkan fjögur til sjö. Ég afgreiddi
um það bil sex hundruð manns,“
segir Yaman frá. „Venjulega hef
ég haft lokað frá klukkan fjögur
á aðfangadag en það er svo mikið
af ferðamönnum í bænum. Ég fæ
mikið af símtölum frá hótelum um
hvort það sé opið hjá mér og ákvað
því að hafa opið.“
Hann segist ekki hafa kallað út
aukamannskap til að anna eftir-
spurninni heldur haft snarari hand-
tök. „Við vorum þrjú að afgreiða
þegar mest var og það gekk vel. Það
voru ekki eingöngu ferðamenn sem
komu til okkar í mat á aðfangadag,
einhverjir Íslendingar vildu líka
kebab í jólamatinn.“
Yamam er upphaflega frá Sýr-
landi en fluttist hingað til lands
fyrir rúmum fjórtán árum. Hann
opnaði veitingastað sinn fyrir fimm
árum og hefur notið velgengni.
Hann segir ekki mikið mál fyrir
sig eða fjölskylduna að vinna yfir
jólin. Hann líti á slíka vinnu sem
samhjálp við kristna Íslendinga sem
vilji halda jólin hátíðleg. „Við erum
múslimar og höldum ekki jól. Jólin
skipta okkur litlu máli þótt auð-
vitað finnist okkur gott að fá svo-
lítið meiri tíma með fjölskyldunni.
Ég er frá Sýrlandi og þar eru bæði
kristnir og múslimar. Þegar okkar
trúarhátíðir eru, þá vinna kristnir
og þegar það eru jól, þá vinnum við.
Þetta er samhjálp.“
176 þúsund fleiri erlendir ferða-
menn hafa farið frá landinu en á
sama tímabili í fyrra, eða alls um
915.465. Um er að ræða 23,8% fjölg-
un ferðamanna milli ára frá áramót-
um í samanburði við sama tímabil
í fyrra.
Mest hefur fjölgun ferðamanna
orðið frá N-Ameríku og Bretlandi:
N-Ameríkumönnum hefur fjölg-
að um 33,7%, Bretum um 32,0%,
Mið- og S-Evrópubúum um 17,9%
og ferðamönnum frá öðrum mörk-
uðum um 29,5%. Norðurlandabúum
hefur hins vegar ekki fjölgað í sama
mæli eða um 8,9%.
kristjanabjorg@frettabladid.is
Sex hundruð keyptu
kebab á aðfangadag
Yaman Brikhan, eigandi kebabstaðarins Ali Baba í Veltusundi, þurfti að hafa snör
handtök á veitingastað sínum. Hann afgreiddi sex hundruð viðskiptavini á að-
fangadag. Metfjöldi ferðamanna dvelur í höfuðborginni yfir jólin.
SAMHJÁLP Yaman er múslimi og finnst sjálfsagt að vinna á jólum á meðan kristnir
Íslendingar halda jól sín hátíðleg. FRÉTTABLAÐIÐ/ ANDRI MARÍNÓ KARLSSON
STRAUMUR FERÐAMANNA Þeir
ferðamenn sem halda jól á Íslandi
þurfa þjónustu. Það var mikið að gera á
þeim veitingastöðum sem höfðu opið á
aðfangadagskvöld og jóladag.
FRÉTTABLAÐIÐ/ ANDRI MARÍNÓ KARLSSON
REYKJAVÍK Dagur B. Eggertsson
borgarstjóri vill ekki tjá sig um
ummæli Þórsteins Ragnarssonar,
forstjóra Kirkjugarða Reykjavík-
ur, um að brýn þörf sé á nýjum
garði í Reykjavík.
„Ég treysti því að borgaryfir-
völd hugi að því núna því það má
engan tíma missa. Það tekur um
sex ár að útbúa nýjan kirkju-
garð,“ sagði Þórsteinn í kvöld-
fréttum Stöðvar 2 á jóladag. „Það
væri nokkuð hastarlegt ef höfuð-
borgin hefði ekki rými fyrir kis-
tugrafir í náinni framtíð.“
Að hans mati blasir það við að
fara verður með hina látnu út úr
sveitarfélaginu ef ekki verður
brugðist við mjög hratt. - sa
Dagur um nýjan kirkjugarð:
Borgarstjóri vill
ekki tjá sig
➜ Tólf hestar
fundust drukknaðir
í Bessastaðatjörn
sunnudaginn 21.
desember. Jóhann
Kolbeins er
formaður
Hesta-
manna-
félags-
ins
Sóta.
Bergur Þorri Benja-
mínsson, málefna-
fulltrúi Sjálfsbjargar,
er ósáttur við nýjar
reglur um ferðaþjón-
ustu fatlaðra. Ákvæði
um hámarksferðir í
mánuði mismuna fötluðum að hans
mati.
Páll Winkel fangelsis-
málastjóri sagðist í samtali
við Fréttablaðið telja það
fjarstæðukennt að íslensk
stjórnvöld geti samið um
að íslenskir fangar afpláni
í fangelsum erlendis. Lang-
ur biðlisti er eftir afplánun hér á landi. Norsk
og hollensk stjórnvöld hafa samið um að
242 norskir fangar fái að afplána í Hollandi.
Kristín Helga Guð-
mundsdótir er verk-
efnisstjóri Konukots. Í
Konukoti var tekið vel á
móti konum sem ekki áttu
í önnur hús að venda á
jólunum.
Reykjavíkurborg,
Félagsstofnun
stúdenta og Háskóli
Íslands undirrituðu
í vikunni viljayfir-
lýsingu um byggingu
650 nýrra stúdenta-
íbúða á háskólasvæðinu og í nágrenni
þess. Kristín Ingólfsdóttir er
háskólarektor.
LÖGREGLUMÁL Ekið var yfir leiði í Gufuneskirkjugarði
í Grafarvogi, fyrir og um hátíðirnar, og þau skemmd.
Vitað er um tvö tilvik hið minnsta og í öðru þeirra sat
bíllinn fastur á leiði og var skilinn þar eftir. Talið er að
um fimmtán leiði hafi skemmst við athæfið.
„Þegar við komum að var búið að rífa annað aftur-
dekkið, nánast búið að affelga það,“ segir Halldóra
Ólafsdóttir en hún kom að bílnum sem hafði verið yfir-
gefinn. Augljóst var á verksummerkjum að töluvert
hafði gengið á.
„Við höfum séð þetta nokkrum sinnum áður og því
miður kemur þetta reglulega fyrir,“ segir Helena Sif
Þorgeirsdóttir, yfirverkstjóri Gufuneskirkjugarðs.
Tjónið sé að mestu tilfinningalegt fyrir aðstandend-
ur en einnig sé það fjárhagslegt fyrir kirkjugarðinn.
Það þurfi að tyrfa og lagfæra bæði legsteina og krossa.
Þórsteinn Ragnarsson, forstjóri Kirkjugarða Reykja-
víkur, segir að málið muni verða kært til lögreglu og
gefi ökumennirnir sig ekki fram muni fara fram saka-
málarannsókn.
Umsjónarmenn kirkjugarðsins biðla til þeirra sem
hafa einhverjar upplýsingar um málið að koma þeim
til lögreglu. - skh, lb, jóe
Ökumenn spóluðu á ökutækjum í Gufuneskirkjugarði og löskuðu mörg leiði:
Skemmdir unnar á kirkjugarði
FIMM Í FRÉTTUM BRCA-GEN OG HÖNNUNARHÚSGÖGN
GLEÐIFRÉTTIN
HELGISPJÖLL Aðkoman var ekki falleg en bílar höfðu skemmt
um fimmtán leiði. MYND/HELEN SIF
Sjávarútvegsskólanum þakkað
Allsherjarþing Sameinuðu þjóðanna hefur samþykkt ályktun þar sem framlag
Sjávarútvegsskóla stofnunarinnar á Íslandi er þakkað. Viðurkenningin beinist einkum
að framlagi skólans í þágu smárra eyþróunarríkja. Sjávarútvegsskóli Háskóla Sam-
einuðu þjóðanna er rekinn sem hluti af framlagi Íslands til þróunarmála og hefur
verið starfræktur síðan 1998. Þar hafa um 300 sérfræðingar í sjávarútvegsmálum
í þróunarlöndum hlotið sex mánaða þjálfun hérlendis og hafa yfir þúsund manns
tekið þátt í námskeiðum sem skólinn hefur þróað og haldið í samstarfslöndunum.
Skólinn er rekinn samkvæmt þríhliða samningi Hafrannsóknastofnunar og utan-
ríkisráðuneytisins við SÞ.
BJÖRGUN Þyrla Landhelgisgæsl-
unnar fór með ellefu ára gamla
stúlku frá Hvolsvelli á Land-
spítalann í Fossvogi eftir að hún
skall af snjóþotu á húsvegg.
Stúlkan var að renna sér á
snjóþotu við bæinn Ytri-Skóga
undir Eyjafjöllum og endaði
sleðaferðin á húsvegg. Höggið
var talsvert og hraðinn mikill.
Hún handleggsbrotnaði og hlaut
höfuðáverka sem gáfu tilefni til
þess að flytja hana með hraði
suður. Slysið varð um hálffjögur-
leytið. Sjúkrabifreið flutti stúlk-
una á Hvolsvöll og þaðan var hún
flutt með þyrlu til Reykjavíkur
og var komin þangað um korter í
sex. - kbg
Flutt með þyrlu frá Hvolsvelli:
Skall á húsvegg
af snjóþotu