Fréttablaðið - 27.12.2014, Blaðsíða 60

Fréttablaðið - 27.12.2014, Blaðsíða 60
HAGVÖXTURINN hvarf árið 2014 ef marka má Hagstofuna. Nær enginn hagvöxtur mældist fyrstu níu mánuði ársins þrátt fyrir uppgang í sjávarút- vegi og ferðaþjónustu og vá er fyrir dyrum gangi slíkar hagvaxtarmæl- ingar eftir. Hávaxtastefna Seðlabank- ans virðist þannig hafa skilað þeim árangri sem búast mátti við. Mikil- vægt er að vextir lækki í 2–2,5 pró- sent sem fyrst til að hleypa krafti í atvinnulífi ð. Á LÍÐANDI ÁRI var almennt launa- fólk látið varðveita stöðugleikann með því að takmarka kauphækk- anir við 2,8 prósent. Aðrir fengu meiri hækkanir og laun milli- stjórnenda í bönkum og fyrirtækjum hækkuðu um sem nemur heildarlaun- um verkamanns milli ára. Hætta er á verkföllum verði sultarkjör launa- fólks ekki leiðrétt. VIÐ ÁRAMÓT stendur heilbrigðiskerfi ð á brauðfótum. Húsakostur er hrörleg- ur og tæki úr sér gengin. Hætta virð- ist á að heilbrigðisstarfsfólk gangi út. VERÐLÆKKUN á olíumörkuðum og atburðir í Rússlandi geta leitt til alþjóðlegrar efnahagskreppu. Þá kann vöxturinn í ferðaþjónustu að stöðv- ast – alla vega í bili. Útfl utningsmark- aðir fyrir íslenskt sjávarfang eru við- kvæmir fyrir efnahagssveifl um. MIKILVÆGT er að segja skilið við hrunið, gera upp slitabúin og afnema gjaldeyrishöft. Ekkert er fast í hendi en miklu skiptir að vel takist til. Mis- tök geta valdið gengishruni og verð- bólguskriðu sem fyrirtæki og heimili þola vart. MIKILSVERÐ TÍÐINDI hafa orðið í verðtryggingarmálum á árinu 2014. Sem oft áður er neytendaverndin frá Evrópu runnin en ekki undan rifjum íslenskra stjórnvalda. Vænta má niður stöðu íslenskra dómstóla um þessi mál árið 2015. HÆSTIRÉTTUR felldi í byrjun desem- ber áfellisdóm yfi r sérstökum sak- sóknara og héraðsdómara sem hafði sakfellt sakborning á grunni ákæru, sem Hæstiréttur sagði ekki studda af gögnum máls. Vísaði Hæstirétt- ur málinu frá héraðsdómi. Fyrir jól sýknaði héraðsdómur í tveimur málum með svipaðri röksemdafærslu og Hæstiréttur hafði beitt nokkrum dögum fyrr. Æðsti dómstóll þjóðar- innar hefur nú talað og héraðsdóm- arar virðast leggja við hlustir. Ríkið hefur nú þurft að greiða 240 millj- ónir í málskostnað fyrir þá sem sér- stakur saksóknari hefur ráðist til atlögu gegn fyrir áeggjan fjármála- fyrirtækja. Árið 2015 getur orðið enn verra fyrir sérstakan saksóknara en 2014. Netfang rit stjorn@markadurinn.is Sími 512 5000 Fax 512 5301 Netfang auglýsingadeildar auglys ing ar@markadurinn.is Veffang visir.is Viðskiptavefur Vísis @VisirVidskipti STJÓRNAR - MAÐURINN @stjornarmadur Stjórnarmaðurinn er ekki mikill áhugamaður um áramótauppgjör, en ætlar þó að láta tilleiðast þetta árið. JÁKVÆÐUSTU TÍÐINDI ÁRSINS 1. Aukin tiltrú á íslenskt efna- hagslíf. Þrátt fyrir að mörgu leyti furðulegt rekstrarumhverfi var þetta árið þar sem Qlik keypti Data- market. Innkoma erlendra aðila á borð við CostCo og tíðindi af lög- legri Netflix-þjónustu benda einnig til að hér séu hlutirnir ekki jafn slæmir og sumir halda fram. 2. Ferðaþjónustan. Heimilin og fyrir tækin fara ekki varhluta af þeim tæplega milljón gestum sem hingað koma, og er óhætt að segja að til sé á Íslandi fjöldinn allur af stöndugum fyrirtækjum í ferða- þjónustu. Nægir þar að nefna gamla kunningja eins og Icelandair og 66°N en einnig nýrri á borð við bændagistingu og hipstera úr 101 sem leigja miðbæjarholur gegnum AirBnB. NEIKVÆÐUSTU TÍÐINDI ÁRSINS 1. Skuldaleiðréttingin. Óskynsam- leg, retróspektív og popúlísk aðgerð sem nýtist sumum en var fjármögn- uð af öllum. Skapaði óvissu og eftir- væntingu, þegar staðfestu og stöð- ugleika var þörf. 2. Nýju fötin saksóknarans. Svo virðist sem of hátt hafi verið reitt til höggs í hrunmálunum, þar sem hver sýknudómurinn hefur rekið annan – nú síðast í svokölluðu Mile- stone-máli. Einnig hefur verktaka hjá saksóknaranum vakið undran, enda greiðslur til ríkisstarfsmanna í fullu starfi í meira lagi ríflegar. Áhugavert verður að fylgjast með þróun í máli Vincents Tchenguiz gegn Kaupþingi o.fl. en mál manna er að í því kunni að leynast gögn sem sýni vinnubrögð íslenskra ákæruyfirvalda í vafasömu ljósi. Stundum þarf sannleikurinn að koma að utan. ÞAÐ SEM STJÓRNARMAÐURINN VILL SJÁ GERAST Á NÝJU ÁRI 1. Afnám gjaldeyrishafta. Einungis með því að minnast á orðið „gjald- eyrishöft“ fá erlendir fjárfestar fyrir hjartað. Afnám haftanna er því nauðsynlegt skref. Til að svo megi verða þarf hugrakka stjórn- málamenn. Vonandi eigum við slíka hauka í horni. 2. Tíðindi berist af skiptum bankabúanna. Fyrst hægt var að ljúka skiptum á Lehman Brothers á skikkanlegum tíma, hlýtur að mega spýta í lófana. Heiðar Már er a.m.k. orðinn óþolinmóður og hefur farið fram á gjaldþrotaskipti yfir Glitni. Ágæt byrjun væri t.d. ef Kaupþing hæfi eignasölu, en bankinn hefur ekki selt eign í Bretlandi síðan snemma árs 2011! 3. Bætt umhverfi fyrir frumkvöðla. Á Íslandi eru gjaldeyrishöft, hér kostar 630 þúsund að stofna einka- hlutafélag (200 krónur í Bretlandi) og engar skattaívilnanir eru í boði fyrir sprotafjárfesta. Þessu, og öðru í sama dúr, þarf að breyta. Nú árið er (næstum) liðið Blikur á lofti um áramót Sk jó ða n FARSÆLT KOMANDI ÁR Við áramót óskum við hvert öðru farsældar á komandi ári. En hvernig lítur árið 2014 út þegar við horfum um öxl? Verðbólgan hefur ekki verið minni í 60 ár, kaupmáttur óx um meira en 5% og vextir fara lækkandi. Árið 2014 var farsælla, bæði fyrir þjóðarbúið og heimilin, en flestir þorðu að vona. Það dylst engum að krefjandi verkefni bíða nýs árs. Vonandi berum við gæfu til að læra af reynslunni og sameinast um skynsamlegar lausnir með stöðugleika að leiðarljósi. Með samstilltu átaki verður 2015 það farsæla komandi ár sem við óskum okkur öll. SAMTÖK ATVINNULÍFSINS BORGARTÚNI 35 REYKJAVÍK WWW.SA.IS
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.