Fréttablaðið - 27.12.2014, Blaðsíða 18
27. desember 2014 LAUGARDAGUR
| HELGIN | 18
Síðastliðin þrjú ár hefur Hjalta-
lín haldið tónleika á Rosenberg
á milli jóla og nýárs. Tónleika-
haldið fer að verða ein af jóla-
hefðunum. „Við erum mörg í
hljómsveitinni og öll á kafi í alls
kyns verkefnum,“ segir Sigríð-
ur Thorlacius, söngkona Hjalta-
lín. „Það er svo mikið að gera hjá
öllum og tveir meðlimir hljóm-
sveitarinnar eru með annan fót-
inn erlendis. En yfir jólin eru
allir heima og þá er gaman að
geta skellt í tónleika.“
Sigríður segir fólk spyrja hvort
Hjaltalín sé hætt en hún segir
það vera fjarri lagi. „Við förum
að undirbúa vinnu á nýju efni
á komandi ári. Við viljum ekki
endalaust vera að spila bara til að
spila, en það gefur okkur mikið
að hittast. Það er alveg ákveð-
in stemning sem fylgir því að
syngja með Hjaltalín og ég sakna
þess oft. Hljómsveitin er á marg-
an hátt nær hjartanu en annað,
þetta er eins og að vera heima hjá
sér.“ erla@frettabladid.is
Á DISK KÓRS AKUREYRAR-
KIRKJU, Ó, ÞÚ HLJÓÐA TÍÐ
með klassísk-
um jólalögum eins og
Hátíð fer að höndum
ein, Jésú, þú ert vort
jólaljós og Það aldin
út er sprungið.
HELGIN
27. desember 2014 LAUGARDAGUR
FARÐU
HLUSTAÐU
LESTU
HORFÐU…
Í KIRKJU og fangaðu jólaand-
ann. Í Bústaðakirkju verður
jólatrésskemmtun barnanna
sem hefst klukkan 14 með jólahelgi-
stund, síðan tekur gleðin völd.
Á SÍÐUSTU MYNDINA í
þríleiknum um hinn fræga
Hobbita. Hún er jólamynd
í Smárabíói og Háskólabíói og er
byggð á ævintýraskáldsögu breska
rithöfundarins J.R.R. Tolkien.
ILLUR FENGUR, sögulega
skáldsögu Finnboga Her-
mannssonar
sem segir frá for-
kastanlegri meðferð
á sauðaþjófi við
Breiðafjörðinn sem
ginntur var suður
til Reykjavíkur á
fölskum forsendum.
Sigurður Atli Sigurðsson,
listamaður
Leikur jólasvein
óumbeðinn
„Ég var að spá í að leika
jólasvein, fara í fyrirtæki og
vera með skemmtiatriði, án
þess að það hafi verið pantað.
Það var ein hugmynd.“
Ólafía Hrönn Jónsdóttir,
leikkona
Útvarpsþáttur
og afmælisboð
„Á laugardaginn ætla ég að fara
í systkinaboð. Á sunnudeginum
ætla ég að vera með útvarps-
þáttinn Sigga og Lolla á Rás 2
og fara svo í afmæli til vinkonu
minnar sem á afmæli.“
Marín Manda Magnúsdóttir,
athafnakona og gleðigjafi
Skrifar lista
„Ég mun eflaust sitja við tölv-
una og skrifa „to do“ lista fyrir
nýja árið en efst á þeim lista
verður að stunda „mindfulness“
svo ég hætti að skrifa svona
lista og verði bara í núinu.“
Páll Óskar Hjálmtýsson, tónlistarmaður
Dansa af mér jólasteikina
Laugardagurinn, hann fer bara í dansleikjahald. Ég
verð eiginlega að frá morgni til kvölds á Spot í Kópa-
vogi með massíft Pallaball til fjögur um morguninn
og hristi þar af mér jólamatinn. Sunnudagurinn fer
svo í það að reyna að sofa út eftir hasarinn.
Koma saman um jólin
Hjaltalín heldur tónleika á Rosenberg í kvöld. Hljómsveitin stefnir á að vinna nýtt efni á nýju ári.
FRÉTTABLAÐ
IÐ
/ERN
IR