Fréttablaðið - 27.12.2014, Blaðsíða 32

Fréttablaðið - 27.12.2014, Blaðsíða 32
 | 4 27. desember 2014 | miðvikudagur Verstu/umdeildustu viðskipti ársins Sala Landsbankans á hlut sínum í Borgun hlýtur þann vafasama heiður að vera talin verstu, eða umdeildustu, viðskipti ársins að mati dómnefndar Markaðarins. Tilkynnt var um söluna 25. nóvember síðastliðinn, en 2.184 milljónir króna fengust fyrir 31,2 prósenta eignarhlut bank- ans í Borgun. Hluturinn var hvorki auglýstur til sölu, né var söluferlið opið. Stjórnmálamenn gagnrýndu vinnulagið og Steinþór Pálsson bankastjóri var í kjölfarið kallað- ur fyrir efnahags- og viðskipta- nefnd Alþingis þar sem hann varði söluna og kvað ásættanlegt verð hafa fengist fyrir hlutinn. Hagnaður bankans af sölunni nam tæpum milljarði króna. Í umræðu og fréttaflutningi af sölunni voru gerðar athuga- semdir við að í hópi kaupenda eru fjárfestar tengdir Bjarna Bene- diktssyni fjármálaráðherra fjöl- skylduböndum, feðgarnir Einar Sveinsson og Benedikt Einarsson. Einar er föðurbróðir Bjarna. Bankinn var minnihlutaeigandi í fyrirtækinu og gat lítið beitt sér vegna úrskurðar Samkeppniseft- irlitsins, sem um miðjan desem- ber upplýsti að lögð hefði verið ríflega eins og hálfs milljarðs króna sekt á bankana og greiðslu- kortafyrirtækin vegna samráðs á greiðslukortamarkaði. Lands- bankinn seldi líka vegna málsins hlut sinn í Valitor á 3,6 milljarða króna. „Á tyllidögum segja stjórnend- ur ríkisbankans að þeir vilji vera í fararbroddi hvað varðar ábyrgar fjárfestingar á Íslandi. Ógegnsætt söluferli á greiðslumiðlunarfyrir- tækinu Borgun hefur hins vegar valdið bankanum orðsporshnekki, meðal annars vegna þess að alls- endis er óvíst hvort bankanum hafi tekist að hámarka verðmæti eignarhlutar síns,“ segir einn dómnefndarmaður í umsögn sinni og bendir á að bankarnir hafi ekki verið þekktir fyrir að selja eignir lágt á undanförnum árum, jafnvel þótt þeir hafi verið undir þrýst- ingi Samkeppniseftirlitsins um að losa eignir. „Því kemur þessi leyndarhyggja Landsbankans á óvart.“ Annar sagði hafa verið erfi tt að fi nna verstu viðskiptin að þessu sinni. „En leiðinlegustu viðskipt- in eru örugglega sala Landsbank- ans á hlut sínum í Borgun, stjórn- málamenn og vissir fjölmiðlar hafa reynt að gera þetta tor- tryggilegt og málið verið blásið út. Landsbankinn fékk gott verð fyrir hlutinn en það hefur alveg gleymst í umræðunni. Hagnaður bankans af sölunni, rúmur millj- arður, rennur sennilega beint í ríkissjóð í næstu arðgreiðslu. En það er ekki sama hver kaupir að mati sumra og málið hefur valdið Landsbankanum óþarfa armæðu. En svona gerist þegar stjórnmála- menn ætla að fara að skipta sér af viðskiptum,“ segir sá og telur end- urspeglast í málinu öllu að ekki sé Landsbankanum til framdráttar að vera alfarið í eigu ríkisins. Dómnefndarfólk var ekki ein- huga í mati sínu á ástæðum þess að viðskiptin hafi verið slæm. Þannig töldu sumir verðið hafa verið ásættanlegt en aðrir of lágt. Allir voru þó sammála um að bankinn hefði orðið illa úti í umræðunni eftir viðskiptin. „Við- skiptin á Borgun eru seljanda og kaupanda í hag en það er svodd- an fnykur af slíkum viðskiptum að manni líkar ekki. Svona við- skiptahættir væru best geymdir í fortíð,“ segir einn. GREIÐSLUMÁTI KYNNTUR Haukur Oddsson, forstjóri Borgunar, keypti sér pylsu þegar snertiposinn var kynntur á Bæjarins bestu í október 2012. STEINÞÓR PÁLSSON Ógagnsætt söluferli sagt valda Landsbankanum orðsporshnekki Flestir álitsgjafa Markaðarins hnutu um sölu Landsbankans á hlut sínum í Borgun. Leynd og ógagnsætt söluferli er sagt skaða bankann. Þá hvílir yfir skuggi samráðssektar sem lögð var á fyrirtæki á greiðslukortamarkaði. 2 Stofnun sjónvarpsstöðvanna Miklagarðs og Bravó Sjónvarpsstöðvar Konunglega kvikmyndafélags- ins, sem Sigmar Vilhjálmsson fór fyrir, hófu göngu sína um miðjan mars á þessu ár. Þær voru ekki langlífar því öllum starfsmönnum var sagt upp í apríllok. Um miðjan maí var tilkynnt um yfirtöku 365 á stöðvunum og að Mikligarður yrði lagður niður.„Ekki góð hugmynd fyrir framleiðslufyrir- tæki að fara í samkeppni við viðskiptavini sína og þá á alveg eftir að ræða óraunhæfar tekju- og kostnaðaráætlanir,“ segir í umsögn eins dómnefndar- manns. „Algjört vanmat frá upphafi og vart hægt að klúðra hlutum með meiri bravúr,“ segir annar. „Fá þó prik fyrir að viðurkenna ruglið hratt og bakka út.“ 3 Skuldaleiðrétting heimilanna Allmargir dómnefndar- menn nefndu skuldaleið- réttingu ríkisstjórnar- flokkanna sem mesta afleik ársins á viðskiptasviðinu. „Ef það átti að eyða 80 milljörðum þá hefði verið ágætt að setja þá peninga til dæmis í nýjan Landspítala sem hefði nýst landsmönnum öllum,“ sagði einn. Annar benti á að með aðgerðinni hafi miklar fjárhæðir runnið að stórum hluta til fólks sem ekki hafi þurft á þeim að halda. „Fjármunina hefði betur mátt nýta til að lækka skuldir ríkissjóðs (og þar með álögur á einstaklinga og fyrirtæki) og til að renna styrkari stoðum undir heilbrigðiskerfið og menntakerfið,“ sagði sá. ÖNNUR OG ÞRIÐJU VERSTU VIÐSKIPTI ÁRSINS Viðskiptin með Fjarðarlax og Skeljung „Fólk á einfaldlega ekki að færa sig hinum megin borðsins í miðjum við- skiptum.“ Kaup Björns Leifssonar á hlut í DV „Viðskipti Björns Leifssonar hafa verið umdeild og áskriftum að blaðinu fækk- aði umtalsvert í kjölfarið.“ Ákvörðun þeirra sem ekki stóðu við tilboð í hlutabréfaútboði HB Granda „Bréfin hafa síðan hækkað um ríflega þriðjung (eru nú 37,5 en útboðsverðið var 27,7).“ Uppbygging ríkisins á innviðum í Helguvík „Hvenær ætla stjórnvöld að hætta að henda peningum í óskuldbindandi og oft raunar mjög ólíkleg plön erlendra fyrirtækja og læra að treysta markaðn- um fyrir því að leysa þessi mál?“ Baðhúsið/Reginn „Of mikið klúður frá A til Ö … sjálfsagt af beggja hálfu. Sýnir hversu lítið rými fyrirtæki hafa í viðskiptum við stóru eignarhaldsfélögin. Báðir hafa mis- reiknað sig illa í þessu öllu saman.“ Viðskipti með innflutta matvöru sem ekki urðu vegna verndarstefnu „Öll viðskiptin með innflutta mat- vöru sem neytendur misstu af vegna ofurtolla og innflutningshamla. Líka viðskiptin sem íslensk fyrirtæki misstu af í útlöndum af svipuðum ástæðum; MS hefði til dæmis getað selt ennþá meira skyr á Evrópumarkaði ef ekki væri fyrir háa tolla.“ Flutningur Fiskistofu til Akureyrar „Skólabókardæmi um hvernig á alls ekki að gera hlutina — gamaldags pólitík í sinni verstu mynd. Framsókn sjálfri sér lík, en dapurlegt ef Sjálf- stæðisflokkurinn ætlar að kóa með.“ ANNAÐ SEM VAR NEFNT ÓLI KRISTJÁN ÁRMANNSSON olikr@frettabladid.is LANDSBANKINN Í JÓLABÚNINGI Fólk á hraðferð í jólaönnum við höfuðstöðvar Landsbankans í Austurstræti í Reykjavík. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM SIGMAR VILHJÁLMSSON Hagnaður bankans af sölunni, rúmur millj- arður, rennur senni- lega beint í ríkissjóð í næstu arðgreiðslu. En það er ekki sama hver kaupir að mati sumra og málið hefur valdið Lands- bankanum óþarfa armæðu.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.