Fréttablaðið - 27.12.2014, Blaðsíða 64
27. desember 2014 LAUGARDAGUR| HELGIN | 32
ÁTTI TÍSKUPALLANA
Það var engin önnur er litla systir Kardashian-systranna, Kendall Jenner,
sem kom öllum á óvart og átti tískupallana á tískuvikunum á árinu. Á stuttum
tíma hefur Jenner skapað sér flottan feril sem fyrirsæta meðal þeirra bestu.
Stúlkan sem hóf feril sinn fyrir fjórum árinu í Teen Vogue þrammar nú tískupalla
fyrir merki eins og Chanel, Givenchy, Marc Jacobs, Diane von Furstenberg og Dolce &
Gabbana. Í nóvember tilkynnti hún svo aðdáendum sínum, sem skipta tugum þúsunda,
í gegnum Instagram að hún væri nýtt andlit Estée Lauder-merkisins.
TÍSKUÁRIÐ 2014
NORMCORE
OG HVÍTIR SKÓR
Tískan á árinu sem er að renna sitt skeið var fjölbreytt að
venju. Hönnuðir flökkuðu milli tískuhúsa, raunveruleika-
stjarna átti tískupallana en þangað rötuðu líka skyndi-
bitakeðjur og hinn venjulegi klæðaburður fékk uppreist
æru. Farið er yfir hvað bar hæst á tískuárinu sem leið.
KOMU OG FÓRU
Eins og gengur og
gerist voru einnig
sviptingar í tísku-
heiminum á árinu.
Þar bar hæst að hið
franska og forn-
fræga tískuhús Louis
Vuitton fékk nýjan
skipstjóra, Nicholas
Gesquiére tók við
af Marc Jacobs
við góðar undir-
tektir. Þá fékk nýi
Íslandsvinurinn John
Galliano nýja vinnu eftir að hann var
rekinn frá Christian Dior árið 2011.
Galliano frumsýnir nýja línu sína fyrir
Maison Martin Margiela í janúar og
er mikil eftirvænting fyrir endur-
komu hans í tískuheiminn. Annar
sem sló í gegn í nýju hlutverki á árinu
var Jeremy Scott fyrir Moschino
en hann þykir færa merkinu ferskan
blæ– til dæmis kom hann skyndibita-
keðjum aftur á tískuradarinn í nafni
Moschino.
Álfrún Pálsdóttir
alfrun@frettabladid.is
#NORMCORE
Þessi bylgja fór að gera vart við sig
snemmsumars. Sumir vilja kenna
þessa tískustefnu við vinsældir
hljómsveitarinnar Future Island, en
söngvari sveitarinnar, Samuel T.
Herring, smellpassar inn í stefnuna
sem snýst í raun um að klæða sig
á eins óeftirtektarverðan hátt og
hugsast getur. Stílistar, bloggarar og
fleiri tískutappar tóku þessari stefnu
fagnandi og klæddust smekkbuxum,
skyrtum hnepptum upp í háls og
sniðlausum flíkum á árinu. Eitt af-
sprengi þessarar stefnu er vinsældir
hvítu klassísku Stan Smith-striga-
skónna frá Adidas og Birkenstock-
inniskónna sem voru skór sumarsins
2014 ef litið er yfir götutískumyndir
ársins. Spurning hvort þessi venju-
lega tíska haldi áfram 2015?
DROTTNING RAUÐA
DREGILSINS
Hin unga leikkona
Lupita Nyong’o
stal senunni í
hvert sinn sem
hún mætti á rauða
dregilinn á árinu en
kjólaval hennar var óaðfinnanlegt. Sá
sem stóð upp úr var Prada-kjóllinn
sem leikkonan klæddist á Óskars-
verðlaunahátíðinni í sérstökum
Naíróbí-bláum lit en hún toppaði alla
lista yfir best klæddu konur kvölds-
ins. Nyong’o var andlit Miu Miu-her-
ferðarinnar í byrjun árs, hún prýddi
forsíðu júlíheftis ameríska Vogue
(önnur afríska konan í sögunni) og
er nýtt andlit Lancôme-snyrtivöru-
rrisans.
KIMYE Á
FORSÍÐU VOGUE
Það varð uppi fótur og fit þegar
forsíða aprílheftis ameríska Vogue
lak út en hana prýddu hjónin Kim
Kardashian og rapparinn Kanye
West. Mörgum fannst forsíðan
ósmekkleg og fyrir neðan virðingu
Vogue, en forsíðumynd hjá þeim
þykir með eftirsóttari fjölmiðla-
plássum. Nokkrum mánuðum síðar
talaði ritstýran, Anna Wintour, um
umdeildu forsíðuna í viðtali þar sem
hún sagði eftirfarandi: „Ég held að ef
við værum alltaf smekkleg og settum
bara smekklegt fólk á forsíðuna þá
yrðum við frekar leiðinlegt tímarit!
Enginn myndi tala um okkur. Það er
mjög mikil-
vægt að
fólk tali um
okkur.“
KONUNGUR FÉLL FRÁ
Oscar de la Renta dó á árinu, 82
ára að aldri. Hönnuðurinn var frægur
fyrir íburðarmikla kjólahönnun.
Honum skaut upp á stjörnuhimininn
þegar Jacqueline Kennedy, þáverandi
forsetafrú Bandaríkjanna, klæddist
hönnun hans en Oscar de la Renta
var í miklu uppáhaldi hjá stjörnum
jafnt og kóngafólki.