Fréttablaðið


Fréttablaðið - 27.12.2014, Qupperneq 86

Fréttablaðið - 27.12.2014, Qupperneq 86
27. desember 2014 LAUGARDAGUR| LÍFIÐ | 54 „Mín aðkoma verður sem leikstjóri fyrir tilfallandi kvikmynduð aug- lýsingaverkefni á Íslandi, að öðru leyti haldast mínir hagir óbreyttir í öðrum verkefnum erlendis og eigin rekstri,” segir Harald Haralds- son, leikstjóri og listamaður. Hann hefur nú gengið til liðs við fyrir- tækið Sagafilm. „Þetta samstarf er nokkuð nýtilkomið og verður spennandi að hefjast handa strax á nýju ári.” Harald er búsettur í New York og hefur unnið jöfnum höndum að auglýsingum, tónlistarmyndbönd- um og gagnvirkum listaverkum. Hann hefur skapað sér gott orð sem leikstjóri með framsækinn stíl sem sækir oft innblástur í list og tækni, til dæmis í auglýsingu hans fyrir Símann og Samsung þar sem iðnaðarvélmenni voru forrituð til að stjórna upptökuferlinu. „Okkar samstarf verður ekki drifið áfram af tækni heldur frekar fyrsta flokks auglýsingaframleiðslu og kvik- myndagerð sem á erindi við fólk. Samanborið við mín fyrri verkefni þá held ég að okkar samstarf verði að vissu leyti hefðbundnara, en engu að síður með mínum stílbrigð- um sem oft eru vissulega innblásin af tækni,” segir Harald. - þij Harald gengur til liðs við Sagafi lm Leikstjórinn Harald Haraldsson sem býr í New York hefur tekið til starfa hjá fyrirtækinu. HARALD HARALDSSON hefur skapað sér gott orð sem leikstjóri. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN ➜ Harald er búsettur í New York og hefur unnið að auglýs- ingum, tónlistarmyndböndum og gagnvirkum listaverkum. „Við tókum upp þessa skemmtilegu hefð fyrstu jólin eftir hrunið. Fyrst var þetta bara hugmynd um að gefa ódýra og skemmtilega jólagjöf en hefur undið upp á sig,“ segir Birgitta Rún Svein- björnsdóttir. Hún kemur úr músíkalskri fjölskyldu þar sem allir syngja saman inn á upptöku fyrir hver jól. „Við höfum öll verið í músík á einhvern hátt. Mamma hefur verið í kór, bróðir minn hefur verið í mörgum hljómsveitum, stjúppabbi minn er náttúrutalent og svo hef ég verið í söngnámi og svona,“ útskýrir Birgitta Rún. Bróðir hennar, Magnús Ingi Sveinbjörnsson sér um að stýra upptökum, útsetja þær og hljóð- blanda áður en þær eru gerðar opinberar. Stof- unni á heimili fjölskyldunnar er breytt í hljóðver í einn dag skömmu fyrir jól og er mikið hlegið og skemmt sér við upptökurnar. Fjölskyldan kallar sig Lambo Jambo þegar hún bregður sér í líki hljómsveitar. Þau velja alltaf lög sem henta fyrir hvert ár en fyrstu jólin var lagið Don’t Worry Be Happy fyrir valinu. „Þetta lag var viðeigandi á þeim tíma. Í hitteðfyrra tókum við svo upp lagið When I Think of Angels því þá misstum við fjölskyldan afar kæra vinkonu og sungum lagið til þess að minn- ast hennar.“ Í fyrstu var lagið sem fjölskyldan tók upp sett á geisladisk og gefið sem jólagjöf til vina og ætt- ingja. „Mamma er orðin svo alþjóðleg og á svo marga vini út um allan heim að hún sendir jóla- kveðjur í gegnum YouTube og notar lögin sem við tökum upp undir þannig að við leyfum vinum og ættingjum að njóta í gegnum YouTube í dag,“ bætir Birgitta Rún við. Í ár tóku þau upp lagið, Oh Happy Day og gerðu það að sínu en Birgitta Rún vill meina að þeirra útgáfa sé mjög hress og skemmtileg. Fjölskyldan á leyndan aðdáanda sem hefur að ákveðnu leyti eignað sér eitt myndbandið þeirra. „Það er einhver útlenskur gaur búinn að setja lag frá okkur inn á sinn „account“ og það er komið í 600.000 „views“. Þetta var Abba-lag og gaurinn fílar greinilega Abba. Við þekkjum hann ekki neitt en það er bara fyndið,“ segir Birgitta Rún og hlær. Hún hvetur fólk til þess að taka upp sínar eigin hefðir og siði því jólin snúist um að eiga gleði- stund með fjölskyldunni. „Þetta er líka uppáhalds hefðin okkar allra.“ gunnarleo@frettabladid.is Fjölskyldan tekur upp lag um hver jól Fjölskylda á Seltjarnarnesinu tók upp skemmtilegan sið eft ir hrun og tekur upp lag til þess að gefa vinum og ættingjum í jólagjöf. Lögin fara einnig á netið. SAMRÝND Fjölskyldan tekur upp nýtt lag fyrir hver jól og hefur vakið mikla lukku. MYND/EINKASAFN Það er einhver útlenskur gaur búinn að setja lag frá okkur inn á sinn account og það er komið í 600.000 views. Þetta var Abba lag og gaurinn fílar greinilega Abba. Við þekkjum hann ekki neitt en það er bara fyndið. BJÖRGÓLFUR VERÐUR JESÚS Nú styttist óðum í Áramótaskaup Sjónvarpsins og að venju bíður þjóðin spennt eftir að sjá hvaða atburðir ársins rata þar inn. Samkvæmt heimildum var eitt atriði Skaupsins tekið upp á Stjörnutorgi Kringlunnar. Þar má sjá Þorstein Bachmann í hlutverki Björgólfs Thors í gervi frelsarans sjálfs, sem veitir fólki blessun, þar sem hann hefur lokið við að greiða allar sínar skuldir. Að lokum breytir hann sódavatni í vín. - asi DAZED FÍLA FUFANU Hið virta tímarit Dazed and Confused hefur birt grein um Airwaves-hátíðina. Það kunni best að meta sveitina Fufanu. „Lögin þeirra og í raun öll hljómsveitin hljóma ókláruð og hrá en þannig að það vekur forvitni ef eitthvað er, en dirfska þeirra og hæfi- leikar eru það sem gerði þá að uppáhalds íslensku hljómsveit okkar sem við sáum þessa helgi,“ segir blaðamaður. Þá segir um dj. flugvél & geimskip: „Þrátt fyrir smábyggða líkams- gerð og hikandi röddu hefur hún sterka og sannfærandi sviðs- framkomu.“ - þij HARPA NORÐURLJÓS Sunnudag 4. janúar kl. 17:00 Miðaverð kr. 3.800 / 2.800 NÝÁRSTÓNLEIKAR STÓRSVEITAR REYKJAVÍKUR Styrkt af Miðar á midi.is  harpa.is  í miðasölu Hörpu GLÆSILEGIR GALATÓNLEIKAR Leikin verða mörg af þekktustu lögum merkustu stórsveita swing stílsins ss Benny Goodman, Artie Shaw, Jimmy Lunceford, Charlie Barnet, Tommy Dorsey, Les Brown, Glenn Miller, Duke Ellington og Count Basie. GESTASÖNGVARAR Diddú og Páll Óskar Nútímamenn STJÓRNANDI Sigurður Flosason TROÐA UPP MEÐ TÓFU Hljómsveitirnar Rökkurró og Oyama gáfu báðar út breiðskífur á árinu og munu sveitirnar því fagna liðnu ári á Kexi Hosteli í kvöld ásamt hinni nýju hljómsveit Tófu, sem hefur að geyma meðlimi úr Rökkurró og hljómsveitinni For a Minor Reflection. Rökkurró heldur í tónleikaferð um Evrópu í byrjun næsta árs og má því búast því að hún verði í fantaformi í kvöld, ásamt þeim Oyama sem fengu einróma lof fyrir plötu sína Coolboy, og Tófu, sem verður gaman að heyra í í fyrsta skipti. Tófa spilar hresst pönk og eru þetta aðrir tónleikar sveitarinnar síðan hún kom fram með Oyama á Iceland Airwaves. - þij Save the Children á Íslandi „Ég hætti að trúa á jólasveininn þegar ég var sex ára. Mamma mín fór með mig í búðina til að sjá hann og hann bað mig um eigin- handaráritun.“ BARNASTJARNAN SHIRLEY TEMPLE, LÍKLEGA EIN FRÆGASTA BARNASTJARNA ALLRA TÍMA. HÚN LÉST Í FEBRÚAR Í ÁR, 85 ÁRA AÐ ALDRI.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.