Fréttablaðið - 27.12.2014, Blaðsíða 43
Sumarferðir sk ipulegg ja ferðir fyrir fjölskyldur sem vilja gæðaferðir á viðráð-
anlegu verði,“ segir Kristbjörg
Kona Kristjánsdóttir, vörumerkj-
astjóri Sumarferða. Rík áhersla er
lögð á að þarfir fjölskyldufólks hjá
Sumarferðum og eru áfangastað-
ir Sumar ferða valdir með vilja og
þarfir fjölskyldna að leiðarljósi.
Af áfangastöðum Sumarferða má
nefna Almería, Alicante ,Tenerife,
Kanarí og Mallorca. „Við velj-
um hótelin einnig af mikilli kost-
gæfni. Það þarf að hafa í huga að
umhverfið sé fallegt, herbergin
rúmgóð og að börnin hafi nóg við
að vera í hótelgarðinum, svo eitt-
hvað sé nefnt.“
Ferðaskrifstofan býður nú, eftir
nokkurra ára hlé, upp á ferðir til
Mallorca í sumar. „Við einfald-
lega spurðum fólkið okkar hvað
það vildi og þetta var niðurstað-
an,“ segir Kristbjörg og hefur
margt gott að segja um þá sólríku
eyju. „Mallorca er einn vinsæl-
asti áfangastaður sólarlandafara í
Evrópu og ekki að furða því eyjan
býður upp á svo margt f leira en
hótelgarða. Eyjan sólríka er rómuð
fyrir náttúrufegurð, hvort sem fólk
er að leita að fallegri fjallasýn eða
tærum sjó við afviknar strend-
ur. Mallorca státar einnig af fjöl-
breyttri menningu, frá róman-
tískri spænskri sveitamenningu
til heimsborgara legrar borgar-
menningar. Þá er gaman að aka
um sveitirnar, sjá bændur að störf-
um og drekka nýkreistan ávaxta-
safa í forsælu á fjallstindi,“ lýsir
Kristbjörg.
Hótel sem skilja eftir góðar
minningar
Á Mallorca geta viðskiptavin-
ir Sumarferða valið á milli fjölda
vandaðra gististaða á þremur
svæðum á norðausturhluta eyjar-
innar; Alcudia, Playa de Muro og
Can Picafort. „Þessi hluti eyjar-
innar er algjör náttúruperla enda
er svæðið gróið og fallegt. Norð-
ur-Mallorca varð líka sérstak-
lega fyrir valinu vegna þess hve
strendurnar eru hreinar og fal-
legar,“ segir Kristbjörg og bendir
á að ströndin henti sérlega vel fyrir
börn enda sé hún aðgrunn og sjór-
inn hlýr. Í miðbæ Alcudia er boðið
upp á fjölskylduhótel þar sem stutt
er á veitingastaði og verslanir en
í Playa de Muro og Can Picafort
bjóða hótelin upp á sérhannaða og
spennandi hótelgarða og ósvikna
náttúruparadís.
Allir þurfa eitthvað
„Á Mallorca viljum við geta boðið
fjölskyldum upp á afslappandi,
þægilegar og eftirminnilegar upp-
lifanir. Boðið er upp á dagsferðir til
nálægra þorpa á borð við Poll enca
og heimsóknir til höfuðborgar-
innar Palma, sem þykir ein hrein-
asta og fallegasta borgin við Mið-
jarðarhafið og þar er einnig gott að
versla. Þá mæli ég sérstaklega með
að aka um eyjuna og kanna fagurt
umhverfið,“ segir Kristbjörg.
Fjölskyldustefna Sumarferða
nær líka til f lugferðarinnar en
boðið er upp
á mjög barn-
vænt, beint flug
á góðum tíma,
með léttri mál-
tíð og af þrey-
ingu um borð.
„Mall-
orca er málið
f y r i r Ís lend-
inga í sumar.
Þar færðu allt í
einum pakka, frábært veður, fal-
legt og öruggt umhverfi sem og
einstaka gestrisni eyjarskeggja,“
segir Kristbjörg og býður öllum að
leita nánari upplýsinga á sumar-
ferdir.is.
FERÐIR
LAUGARDAGUR 27. DESEMBER 2014
Mallorca, miklu meira en sólarströnd
Mallorca er sannkölluð fjölskylduperla í Miðjarðarhafinu. Sumarferðir bjóða aftur upp á ferðir til Mallorca og verða með vikulegt
beint flug í allt sumar. Rík áhersla er lögð á að uppfylla þarfir fjölskyldufólks hjá Sumarferðum.
Kristbjörg Kona
Kristjánsdóttir
● Frábær hótel
● Náttúrufegurð
● Menningu og sögu
● Æðislega strönd
● Skemmtigarða
● Öruggt umhverfi
● Barnaklúbba
Mallorca Sumarferða er fyrir þá sem vilja:
SOL DE ALCUDIA
Alcudia
Sol de Alcudia er gott þriggja
stjörnu hótel um 500 metra frá
ströndinni í Alcudia. Versl-
anir og veitingastaðir eru í
næsta nágrenni. Í sundlaug-
argarðinum er góð sólbaðsað-
staða með bekkjum, sólhlífum,
sundlaugar bar, veitingastað,
sundlaug og barnalaug.
VIVA BLUE
Playa de Muro
Íbúðahótelið VIVA Blue er á frá-
bærum stað, aðeins 200 metra
frá Muro-ströndinni í Playa de
Muro. Hvað afþreyingu varðar
er af nógu að taka því hægt er að
spila tennis, fótbolta, körfubolta
og bandí/hokkí.
Mallorca er einn
vinsælasti
áfangastaður
sólarlandafara í Evrópu
og ekki að furða því
eyjan býður upp á svo
margt fleira en
sólarstrendur.
Mallorca er
málið fyrir
Íslendinga í sumar. Þar
færðu allt í einum pakka.