Fréttablaðið - 27.12.2014, Blaðsíða 34
| 6 27. desember 2014 | miðvikudagur
Viðskiptamaður ársins
Einungis einu sinni áður í
sögu blaðsins hefur komið
fyrir að sami maður væri
maður ársins og á bak við
bestu viðskiptin, en sú varð
raunin 2009 þegar skrán-
ing Össurar, þar sem Jón
Sigurðsson er forstjóri, í
dönsku kauphöll-
ina var talin bestu
viðskiptin og Jón
og Hilmar Veigar
Pétursson hjá CCP
deildu toppsætinu
í valinu á manni
ársins.
SAGAN ENDURTEKUR SIG
„Mér fannst nú frekar merkilegt
að niðurstaðan yrði þessi,“ segir
Hjálmar Gíslason, stofnandi og
framkvæmdastjóri upplýsinga-
tæknifyrirtækisins Datamark-
et, sem dómnefnd Markaðarins
valdi viðskiptamann ársins. Þá
var salan á Datamarket til Qlik
í Bandaríkjunum einnig valin
viðskipti ársins (líkt og fjallað
er um á síðu 2 í blaðinu). „En það
er gaman að því að þessi geiri
fái athygli.“
Hjálmar leggur áherslu á að
hann hafi verið afar heppinn
þegar kom að því að draga með
sér fólk að verkefninu. „Bæði
fólkið sem ég fékk til að vinna
með mér í Datamarket og að
við náðum að byggja upp mjög
sterkt teymi þótt það hafi verið
lítið.“ Starfsmenn segir hann
aldrei hafa verið fleiri en fimm-
tán talsins og fyrirtækið hafi
verið nálægt þeirri stærð í rúmt
ár. „En ég leyfi mér að fullyrða
að við framleiðum á við þrjátíu
manna fyrirtæki bara vegna
þess hve við höfum náð saman
góðu fólki og góðum takti í það
sem við erum að gera.“ Hjálm-
ar, sem lagði upp með verk-
efnið 2008, segir kjarnahópinn
sem kom að Datamarket 2009
og 2010 og hafi verið allan tím-
ann, vera fólk af því tagi sem
öðrum finnist gaman að vinna
með vegna þess að læra megi af
því. „Það hefur hjálpað til við
að stækka hópinn og fá fleiri
sterka og góða einstaklinga að
þessu.“
STERKA MÁLSVARA VANTAR
Þá segir Hjálmar fjárfestana
og stjórnina sem fyrirtækið
hafi fengið ekki síður skipta
máli. „Ég hef margoft sagt að
okkar verðmætasti fjárfestir sé
Hilmar Gunnarsson sem var sá
sem átti frumkvæðið að fyrstu
fjármögnuninni sem við feng-
um utan frá og hefur á nokkrum
tímapunktum komið mjög sterkt
með okkur inn í ferlið, bæði
varðandi fyrstu skrefin út fyrir
landsteinana og í sölumálum og
svo með því að aðstoða okkur
og vera okkur innan handar
þegar kom að sjálfri sölunni og
viðræðunum við Qlik.“ Stjórn
fyrirtækisins segir Hjálmar að
hafi verið mjög virk og hjálpað
hafi til að þar komi að fólk með
fjölbreyttan bakgrunn og mikla
reynslu. „Allt er þetta fólk sem
farið hefur í gegnum að byggja
upp og selja fyrirtæki.“
Velgengni, uppbyggingu og
sölu Datamarket segir Hjálm-
ar því langt í frá að vera eins
manns verk. „Hópurinn allur er
að baki og forréttindi að fá að
vinna bæði með fólkinu sem var
með í að byggja upp fyrirtæk-
ið innan frá og líka þeim sem
komu að því að utan.“
Þótt vissulega séu allir geir-
ar að meira eða minna leyti
að breytast í þekkingariðnað,
þá segir Hjálmar ljóst að við-
skiptaumhverfið hér henti geir-
unum misjafnlega. „Áherslurn-
ar eru ólíkar. Lengi vel var það
þannig að sjávarútvegurinn
réð það miklu að gengisfelling-
ar voru gerðar handvirkt þegar
illa gekk og með því var bein-
línis verið að lækka laun lands-
manna, með því að fella gengið.“
Gjaldeyrishöftin töfðu söluferli
Datamarket um fjóra mánuði
Qlik, sem nýverið festi kaup á Datamarket, hyggur á umtalsverða fjárfestingu og eflingu starfsemi Datamarket
hér á landi. Hjálmar Gíslason, stofnandi Datamarket og framkvæmdastjóri, stýrir samþættingu hugbúnaðar
fyrirtækjanna sem fyrir dyrum stendur. Á fyrstu vikum nýja ársins verður fleira fólk ráðið til fyrirtækisins.
FLÓKNUM SAMNINGUM LOKIÐ Hjálmar Gíslason, framkvæmdastjóri og stofnandi Datamarket, segir grunnhugmyndina að baki fyrirtækinu, að setja fram með stöðluðum hætti gögn úr ólíkum áttum, aldrei hafa breyst. Í þrígang hafi hins
vegar breyst hverjum ætti að selja afurðina. Fyrst var ætlunin að beina sjónum að smærri notendum, svo markaðs- og rannsóknafyrirtækjum, og síðan fólki innan fyrirtækja sem vinnur með gögn. „Síðan smellur þetta allt með Qlik,“
segir hann. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Hjálmar Gíslason segir að þótt oft
sé talað um Ísland sem heppileg-
an tilraunamarkað vegna smæðar
landsins þá fylgi því bæði kostir
og gallar. „Hér er fljótlegt að koma
hlutum í dreifingu, sjá hvernig þeir
ganga og þar fram eftir götunum,“
segir hann en bendir um leið á
að ókostur sé hversu óvenjulegur
íslenski markaðurinn er vegna
þess hvað hann er lítill. „Hér eru
alltaf einhver tengsl til staðar.
Þokkalega tengt fólk getur komist
á fund með framkvæmdastjóra
hvaða fyrirtækis sem er á Íslandi
með tiltölulega stuttum fyrirvara.
Þannig virkar þetta ekki annars
staðar.“ Hér vanti því ákveðinn
skilning á mikilvægi sölumennsku
sem atvinnugreinar. „Eftir því sem
ég hef meira lært um sölu- og
markaðsmál hefur virðing mín
aukist fyrir því fólki sem stundar
þau störf.“
Aðra hættu við smáan markað
segir Hjálmar svo að á honum
hætti fólki til að fara út með of
breiðar lausnir. „Það eitt að vera
hér með tvo kúnna kallar á tiltölu-
lega fjölbreytta lausn,“ segir hann.
Hér dytti engum í hug að byggja
fyrirtæki á því að búa til hugbúnað
sem gagnaðist Hörpu einni, enda
kaupandinn bara einn. En á þúsund
sinnum stærri markaði, eins og í
Bandaríkjunum, þar sem þá má gera
ráð fyrir þúsund Hörpum, sé það
fullkomlega raunhæft. „Þá er maður
kominn með hillu sem sennilega er
þokkalega stór.“
SÉRSTAÐA ÍSLANDS HJÁLPAR EKKI ALLTAF TILVIÐTAL
Óli Kristján Ármannsson
olikr@frettabladid.is
Hjálmar Gíslason
FRUMKVÖÐULL í umsögn eins dómnefndarmanns Markaðarins er
Hjálmar Gíslason, stofnandi og framkvæmdastjóri Datamarket,
sagður „nörd af guðs náð” sem náð hafi að byggja hér upp fyrir-
tæki með sérstöðu á alþjóðavettvangi.