Fréttablaðið - 27.12.2014, Blaðsíða 16

Fréttablaðið - 27.12.2014, Blaðsíða 16
27. desember 2014 LAUGARDAGURSKOÐUN FRÉTTABLAÐIÐ Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík Sími: 512 5000, ritstjorn@frettabladid.is AÐSTOÐARFRÉTTASTJÓRI: Andri Ólafsson andri@frettabladid.is VIÐSKIPTI: Fanney Birna Jónsdóttir fanney@frettabladid.is HELGARBLAÐ: Erla Björg Gunnarsdóttir erla@frettabladid.is MENNING: Friðrika Benónýsdóttir fridrikab@frettabladid.is VÍSIR: Kolbeinn Tumi Daðason, kolbeinntumi@365.is LJÓSMYNDIR: Pjetur Sigurðsson pjetur@frettabladid.is FRAMLEIÐSLUSTJÓRI: Sæmundur Freyr Árnason sfa@frettabladid.is ÚTLITSHÖNNUN: Silja Ástþórsdóttir siljaa@frettabladid.is ÚTGÁFUFÉLAG: 365 miðlar ehf. STJÓRNARFORMAÐUR: Ingibjörg S. Pálmadóttir FORSTJÓRI: Sævar Freyr Þráinsson ÚTGEFANDI OG AÐALRITSTJÓRI: Kristín Þorsteinsdóttir kristin@frettabladid.is FRÉTTASTJÓRI: Sigurjón M. Egilsson sme@frettabladid.is. Fréttablaðið kemur út í 90.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslun um á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. ISSN 1670-3871 SPOTTIÐ MÍN SKOÐUN: PAWEL BARTOSZEK Sigurjón Magnús Egilsson sme@frettabladid.is Innskot í Fréttablaðið skilar árangri! MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI* Fréttablaðið er mest lesna dagblaðið landsins með glæsilegt forskot á keppinautana. Meðallestur Fréttablaðsins í aldurshópnum 25-54 ára er 73% á höfuðborgarsvæðinu.* Við bendum auglýsendum á að notfæra sér forskotið þegar þeir velja dreifingarleið fyrir fjölpóst sinn. Við dreifum sex daga vikunnar til heimila á stærsta markaðssvæði landsins. Kannaðu dreifileiðir og verð í síma 512 5448 eða í tölvupóstfangi fjolpostur@frettabladid.is *P re nt m ið la kö nn un C ap ac en t o kt ób er –d es em be r 2 01 2 – hö fu ðb or ga rs væ ði 2 5- 54 á ra HAFÐU FJÖLPÓSTINN ÞINN Í FRÉTTABLAÐINU Þarf að hóta fólki til að það standi sig? Það er ekki mælt með því að við ölum upp börn okkar þannig. Við reynum ekki að tala þannig við maka okkar. Ef við erum á vinnustað þar sem okkur er hótað brottrekstri við hvert tækifæri þá líður okkur illa. Almennt virðast popp-upp- eldisbækur frekar hvetja fólk til að beita jákvæðri svörun: Til dæmis: „Dugleg ertu að ganga frá diskunum!“ „Mikið líturðu vel út í dag.“ Eða: „Viðskiptavinurinn var virkilega ánægður með tillögurn- ar sem þú komst með.“ Ég held að flestir kjósi frekar að eiga þannig samskipti. En þau eru ekki bara „aumingjavænni” heldur einnig oftast árangursríkari. En í menntakerfinu virðast margir sannfærðir um að hótan- ir skili í árangri. Dæmi: „Þetta námskeið er hugsað sem sía.“ Í vinnustaðarmyndmálinu væri þetta sambærilegt því að for- stjórinn myndi leggja fyrir verk- efni sem hann vissi að þriðjungur starfsmanna réði ekki við, til að fá hugmynd um það hverja hann ætti að reka í næstu hópuppsögn. Það þætti andstyggileg ráðstöf- un. En þegar kemur að menntun virðast margir telja að ef náms- kerfi síar ekki miskunnarlaust frá alla sem ekki standa sig þá sé fjandinn laus. Fallhótun sem hvatning Örsaga 1: Tertusneið á eldhúsborðinu. „Til hamingju með afmæl-ið,“ segir mamman. „Þú ert flottur strákur og ég er stolt af þér. En mundu: Ef þú klúðrar einhverju massífu, verður fíkill eða nauðgari, þá mun ég hætta að elska þig. Ég mun ekki hringja í þig á afmælinu þínu, ég mun ekki einu sinni heimsækja þig í fang- elsið. En hvað um það, hérna er gjöfin!“ „Hvað er að? Er þetta ekki leik- urinn sem þig langaði í?“ Örsaga 2: Strönd við Karíbahaf- ið. Ylvolgt hafið sleikir tærnar á unga parinu. Fingur þeirra f léttast. Þau horfa á sjón- deildarhring- inn. „ Ég elsk a þ i g ,“ s e g i r ungi maðurinn. „Athöfnin var frábær og ég er svo glaður yfir að við skulum hafa komið hingað. Ég hlakka til að eyða ævinni með þér. En þú mátt samt vita að ef þú nærð ekki að verða ólétt þá mun ég fara frá þér. Og ef þú heldur framhjá mér þá mun ég skilja við þig. Á stundinni.“ „Af hverju ertu svona skrítin? Hvað sagði ég nú?“ Örsaga 3: „Kæra samstarfs- fólk, gleðileg jól!“ sagði for- stjórinn með rauðvínsglas í hendi. „Þetta er búið að vera viðburðaríkt ár en ég held að við getum öll litið aftur með nokkru stolti. Mig langar svo bara að ítreka það sem ég segi á vikulegu fundunum okkar. Ég vona að hvert og eitt ykkar muni standa sig í vinnunni, því ef þið gerið það ekki, ef þið mætið illa, náið ekki að leysa verkefnin á réttum tíma eða ef viðskiptavinir kvarta undan ykkur þá verðið þið samstundis rekin. Enginn er óhultur. Skál!“ „Ég sagði skál! Af hverju skál- ar enginn?“ Þarf að fella fólk? H ér urðu kosningar, sagði stjórnarþingmaður fyrir ekki svo löngu. Það er rétt, Íslendingar kusu sér nýtt þing vorið 2013. Ný ríkisstjórn tók við völdum. Og hennar eru völdin, það er hennar að ráða fram úr þeim vanda sem þjóðin stendur frammi fyrir, ekki síst þeim sem ríkisstjórnin ratar sjálf í. Fólkið sem skipar ríkisstjórn Íslands situr þar af fúsum og frjálsum vilja. Til þessa fólks verður að gera strangar og miklar kröfur. Aðeins eitt getur leyst læknaverkfallið. Og það eru peningar. Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra er gjaldkeri hinna sameiginlegu sjóða okkar. Hann verður að gera betur, hann verður að finna þá peninga sem eru lausn hins ömurlega verkfalls lækna. Hann á engan annan kost. Það er hans, og hans samstarfsfólks, að gera það sem gera þarf. Þetta gengur ekki lengur, löngu er nóg komið. Afleiðingar ráðaleysisins kosta svo sannarlega líka peninga, mikla peninga. Ekki er lengur hægt að guma af góðu heilbrigðiskerfi. Það skaðast nánast hvern dag. Læknar hætta og yfirgefa okkur. Það er ömurlegt að fylgjast með þessu. Við verðum að gefa þeim full- yrðingum gaum, að heilbrigðiskerfi okkar hafi hrakað í gæðum. Í fréttum, í viðtölum og eflaust víðar hefur málsmetandi fólk fullyrt þetta. Á aðeins örfáaum árum hefur íslenska heilbrigðis- kerfið fallið úr fyrsta flokki og jafnvel niður í þriðja. Það gerðist ekki vegna þess að læknar og annað starfsfólk sé síðra nú en áður. Nei, það gerðist vegna þess að verr er að öllu búið. Niður- rifið hófst meðan flestir Íslendingar, ekki síst stjórnmálamenn þess tíma, töldu að hér væri komið heimsins mesta góðæri og það myndi ríkja hér um alla eilífð. Þá byrjaði bakslagið. Bjarni Benediktsson, Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, Krist- ján Þór Júlíusson og þið öll hin, þetta er enn að gerast og nú á ykkar vakt. Þið óskuðuð eftir að fá að leiða þessi mál og árangur- inn, eða réttara sagt, árangursleysið blasir við öllum, og það með stórskaðlegum afleiðingum. Þið verðið að gyrða ykkur í brók. Núna. Ráðherrar í ríkisstjórn Íslands mega dást að persónulegri upphefð í eigin hugarheimi, en þeir verða þess á milli að gæta sín og vera í augnhæð við okkur hin. Annað gengur ekki. Nýfengnar brjóstnælur eru einskis virði meðan eins er ástatt fyrir okkur og dæmin sanna. Hér urðu kosningar, sagði stjórnarþingmaðurinn. Eins er hægt að segja, að ekki aðeins hafi orðið læknaverkfall, hér er læknaverkfall og frá fyrsta degi þess lá fyrir hver lausnin á því er. Í mánuði hefur aum samninganefnd ríkisins setið sáttafundi, umboðslaus með öllu. Á meðan blæðir heilbrigðiskerfinu og með hverju augnabliki sem fer í aðgerðarleysi ráðherranna versnar staðan og það mun taka langan tíma, mörg ár, að laga það sem þegar hefur tapast. Lækningar eiga og verða að vera fremst í for- gangsröðinni. Ráðherrar Íslands. Þið verðið að gera betur. Þá fyrst kann að verða við hæfi að bera orðu, þá sem er mest allra hér á landi, en þangað til er hún einskis virði, frekar til háðungar en vegsauka. Frá fyrsta degi læknaátakanna var bara ein lausn: Ráðherrar Íslands verði í augnhæð Hér er einn punktur sem gjarnan heyrist í umræðunni um fyrir-komulag náms í fram- haldsskóla: „Viljum við hafa þetta eins og í Svíþjóð þar sem menn ná alltaf? Viljum við minnka brott- fall með því að minnka kröfur? Værum við ekki með því að geng- isfella námið?“ Allar ráðstafan- ir sem fjölga þeim sem klára eitt- hvert nám gengisfella það. En þetta er ekki spurning um að þeir sem skari fram úr í hverjum árgangi upplifi sig meira spes við það að aðrir sitji eftir. Ef við fáum betra menntakerfi með því að „minnka kröfur“ þá eigum við að gera það, sama þótt einhverjum finnist hans skírteini minna virði í kjölfarið. Hver er valkosturinn? Að láta fólk endurtaka ár eða námskeið? Sam- kvæmt nýsjálenska kennslufræð- ingnum John Hatt ie er varla til verri kennslufræðileg ráðstöfun en sú að láta nemanda sitja eftir í bekk. Áfallið fyrir 8 ára barn er svipað því að missa foreldri. Sem betur fer hefur þeim löndum sem beita þessu úrræði í grunnskóla fækkað. Hafa menntakerfi þessara landa beðið hnekki? Varla. Ég er ekki að segja að fólk eigi ekki að fá mishá- ar einkunnir. Ég er ekki að segja að einkunnir eigi engu að stjórna um framgang námsins. Það mun alltaf vera betra að vera betri námsmaður. En ákvörðunin um það hvort við látum síðri námsmenn dvelja lengur í framhaldsskóla eða leyfum þeim að útskrifast þaðan þótt við vildum að þeir kynnu meira snýst um hvað sé best fyrir þá tilteknu nemendur. Ekki um hvað öðrum kunni að finn- ast asnalegt. Ha, viltu að allir nái?
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.