Fréttablaðið - 27.12.2014, Side 23
LAUGARDAGUR 27. desember 2014 | HELGIN | 23
FLÓKIN SAM-
SKIPTI. Elma
Stefanía, Vigdís
Hrefna og Atli
Rafn sem Ásta
Sóllilja, Rósa og
Bjartur.
Ásta Sóllilja kveikir upp í maskín-
unni, Hallbera raular lagstúf fyrir
munni sér.
Ásta Sóllilja: Ég vakna áður en
dagurinn rís yfir blóðið. Það er
kalt. Ég bít saman tönnunum.
Kveiki upp í maskínunni. Hendur
mínar… stúlkuhendur… með
grófu bláleitu hörundi. Ég er
orðin stór stúlka. Ég kveiki
eldinn. Baðstofan fyllist af reyk.
Engin leið til baka. Óskastundin.
Unaður margfaldaður með
flæðandi kvöl. Þúsund marg-
faldað með miljón. Eins og ég
hafi verið skorin með beittum
hníf, sundurslitin og marin.
Slátrað. Líkaminn eins og blóð-
runnið sundurhlutað kjöt. Aldrei,
aldrei. Hversvegna lét ég hann…
Hversvegna hallaði ég mér upp
að honum þegar hann slökkti
ljósið?
Bjartur kemur inn. Hlustar á Ástu
í þögn.
Bræður mínir eru ekki bræður
mínir lengur, ég er ekki systir
þeirra. Þeir geta ekki skilið það
sem kom fyrir mig. Enginn. Ég
stend ein utan við allan heim
og skyldleika. Þannig mun ég
deyja. Pabbi… Hversvegna þurfti
endilega að leynast með mér líf
undir kviðnum á tíkinni. Hvers-
vegna tókstu hana ekki með þér
í eftirleitina?
Bjartur fer.
Ég hélt það væri gleðin sjálf,
þegar hann… Ég gleymdi þér
pabbi, gleymdi öllu, ég reyndi að
komast burt en ég gat það ekki.
Komst ekki. Burt. Burt. Maður
kemst ekki burt, það er lífið.
➜ Sektarkennd
Ástu Sóllilju
SEKTARKENND Elma Stefanía í
hlutverki Ástu Sóllilju. MYND: EDDI
SJÁLFSTÆTT FÓLK EFTIR HALLDÓR LAXNESS ER JÓLASÝNING ÞJÓÐLEIKHÚSSINS 2014