Fréttablaðið - 27.12.2014, Page 36
FÓLK|
ÁNÆGÐ
Erna Hauksdóttir er
virkilega sátt við þá
ákvörðun sína að hætta
sem talsmaður ferða-
þjónustunnar og fara í
háskólanám. „Maður
þarf að finna sér eitt-
hvað áhugavert að gera
við starfslok,“ segir hún.
MYND/ERNIR
einnig gott fyrir samtökin að fá nýja ásýnd. Þetta
var því hárrétt ákvörðun. Mér þótti engu að síður
alltaf gaman í vinnunni. Svo kemur að þeim tíma-
punkti að breytinga er þörf. Mig langaði allt í einu
að fara að gera eitthvað allt annað.“
LÚXUSVANDAMÁL
Erna segist hafa fylgst með umræðunni um ferða-
þjónustuna þótt hún hafi sagt skilið við hana.
„Stundum hugsa ég bara um það sem ég er að gera
þá stundina og nenni þá ekki að lesa blöðin. Það
er mikill lúxus fyrir mig að geta sleppt því. Það
er sömuleiðis mikill lúxus að þurfa ekki að hafa
skoðanir á öllum hlutum. Nú get ég haft þá skoðun
sem mér sýnist,“ segir Erna og hlær en óneitanlega
fylgdi töluvert fjölmiðlakarp starfi hennar hjá ferða-
þjónustunni.
„Ég er að langflestu leyti ánægð með þróunina í
ferðamálum á Íslandi. Sérstaklega er ég ánægð með
það verkefni sem við lögðum mikla áherslu á síð-
ustu árin áður en ég hætti. Það var að auka ferða-
þjónustuna yfir vetrartímann. Ég er þess vegna
voða glöð og stolt þegar ég sé að 31% aukning hafi
orðið á komu ferðamanna í nóvember. Áður fyrr fór
allur sumarágóðinn í að reyna að halda fyrirtækj-
unum opnum yfir veturinn. Þessi mikla aukning á
veturna er mikið gleðiefni.“
GJALD INN Í LANDIÐ
„Það sem mér finnst ekki hafa gengið nægilega vel
er uppbygging helstu ferðamannastaða og verndun
þeirra. Við höfum rætt þetta vandamál í mörg ár en
voðalega lítið hefur breyst til batnaðar. Það hefði
átt að setja þetta mál í einhvern farveg fyrir löngu.
Ferðaþjónustan skilar miklu í þjóðarbúið og þessir
hlutir eiga að vera í lagi. Við vorum búin að ræða
lausnir fram og til baka, þar á meðal náttúrupassa,
en engin leið virðist góð. Það vill engin ein atvinnu-
grein í ferðaþjónustu taka að sér að innheimta
skatt. Hvorki hótel né flugfélög. Það er ósköp
eðlilegt að enginn vilji hækka hjá sér verð til að inn-
heimta skatt. Ég hef þó alltaf talið bestu lausnina
að selja inn í landið. Það virðist vera erfitt að koma
því á vegna ESB en við ættum að taka þann slag
engu að síður. Einfalt er að framkvæma gjaldtöku
á þann hátt og mikilvægt að gjaldið sé lágt. Þetta
mál er eitthvert það flóknasta sem við höfum haft á
borðinu og engin einföld leið sjáanleg.“
AMMAN OG MATARBOÐIN
Erna á sjö barnabörn og hefur mikla ánægju af því
að stússast með þeim. „Þau koma mikið hingað til
okkar,“ segir Erna en hún er gift Júlíusi Hafstein,
sendiherra og fyrrverandi borgarfulltrúa Sjálf-
stæðisflokksins. „Ég er hefðbundin þegar kemur
að jólahaldi. Það hafa verið rjúpur á borðum á að-
fangadag frá því ég man eftir mér og svo var einnig
núna. Við erum svo heppin að hafa veiðimenn í fjöl-
skyldunni. Við breyttum fyrirkomulaginu hjá okkur
fyrir þremur árum þegar börnin okkar kusu að vera
á sínu heimili á aðfangadag. Við hjónin borðum
heima en förum síðan í heimsóknir til barnanna
eftir matinn og skiptumst á gjöfum. Tengdafor-
eldrar mínir gerðu þetta líka á sínum tíma og mér
fannst það alltaf sniðugt. Þá fær maður að upplifa
jólin með börnum sínum og barnabörnum.
Á jóladagskvöld er ég alltaf með tuttugu manns
í mat, fjölskyldu Júlíusar og börnin okkar. Þá býð
ég upp á kalkúnabringur. Á gamlárskvöld koma
bræður mínir til okkar og við eldum saman. Við
erum ekki búin að ákveða hvað verður í matinn
núna,“ segir Erna. „Við tökum garðhúsgögnin inn í
stofu og þá geta allir setið til borðs. Það er óskap-
lega skemmtileg stemning. Í mínum huga snúast
jólin um samveru fjölskyldunnar. Ég kem úr stórri
fjölskyldu og vil hafa marga í mat,“ segir Erna enn
fremur en hún hefur gaman af matseld og er frábær
kokkur. „Börnin mín og barnabörn koma oft til
okkar í mat.“
GAMAN AÐ FERÐAST
Þegar Erna er spurð hvað sé henni minnisstæðast
frá árinu sem er að líða, svarar hún: „Ætli það sé
ekki þegar sjöunda barnabarnið kom í heiminn.
Það eru alltaf mikil gleðitíðindi. Svo er auðvitað
æðislegt að vera kominn aftur í háskóla. Það er
gaman að sjá allar þessar rafrænu breytingar
sem orðið hafa í skólastarfinu. Ég hef líka ferðast
mikið á árinu sem hefur í alla staði verið frábært.
Okkur finnst gaman að ferðast, sérstaklega til
Spánar, Frakklands og Ítalíu. Í haust fórum við í lítið
sveitaþorp á Spáni þar sem bróðir minn hélt upp á
sextugsafmæli sitt. Það var virkilega ánægjulegt. Ég
tel að það sé afar mikilvægt að hafa eitthvað fyrir
stafni þegar maður hættir að vinna og gera eitt-
hvað skemmtilegt,“ segir hún.
„Einn af hápunktum ársins var þegar bókin „Það
er kominn gestur“ kom út á vegum SAF í nóvember.
Þetta er saga ferðaþjónustunnar, mjög flott bók
sem ég fékk að fylgja fram að útgáfunni en okkur
hefur lengi langað til að leggja í slíkt verk. Á næsta
ári vonast ég til þess að við getum haldið verðbólg-
unni í skefjum, að það verði þokkalegur vöxtur í
þjóðfélaginu og lítið atvinnuleysi. Sjálf hef ég bara
væntingar um áframhaldandi skemmtilegt líf á
næsta ári með fjölskyldu og vinum.“ ■ elin@365.is
FLÓKIN STAÐA
„Það er ósköp
eðlilegt að eng-
inn vilji hækka
hjá sér verð til að
innheimta skatt.
Ég hef þó allt-
af talið bestu
lausnina að selja
inn í landið. Það
virðist vera erf-
itt að koma því á
vegna ESB en við
ættum að taka
þann slag engu
að síður.“
One week flat
Minnkar Þembu og losar vind úr
meltingunni á viku!
Meltingin er nánast fullkomin eftir
að ég fór að nota OptiBac Probiotics
gerlana og ég get ekki hugsað
mér að vera án þeirra
Marta Eiríksdóttir jógakennari“
”
@OptiBac www.facebook.com/optibaciceland
RAFTÆKJAVERSLUN • SÍÐUMÚLA 2 • SÍMI 568 9090 • WWW.SM.IS
FÁÐU ÞRÁÐLAUSAN
AÐGANG AÐ
TÓNLISTINNI Í ÖLLUM
HERBERGJUM
Sonos er kerfi þráðlausra hátalara og hljómtækja. Það sameinar
stafræna tónlistarsafnið þitt og útvarpsstöðvar í einu appi sem þú
getur stjórnað frá hvaða síma eða spjaldtölvu sem er.
HELGIN
FÓLK ER KYNNINGARBLAÐ sem býður aug lýsendum að kynna vörur og
þjónustu í formi viðtala og umfjallana ásamt hefðbundnum auglýsingum. Blaðið
fylgir Fréttablaðinu daglega.
Útgefandi: 365 miðlar | Ábyrgðarmaður: Jón Laufdal | Hönnun: Silja Ástþórsdóttir
Sölumenn: Bryndís Hauksdóttir, bryndis@365.is, s. 512 5434
Kolbeinn Kolbeinsson, kkolbeins@365.is, s. 512 5447