Fréttablaðið - 27.12.2014, Blaðsíða 24
27. desember 2014 LAUGARDAGUR| HELGIN | 24
Bestu
erlendu
myndir
ársins
Fréttaljósmyndarar hafa á árinu sem er
að líða sjaldnast látið sig vanta þegar
stóratburðir gerast og fært heimsbyggð-
inni myndir af styrjöldum, hamförum,
flóttafólki, kosningum, mótmæla-
fundum, hryðjuverkum og hversdags-
atburðum af öllu tagi.
STRÍÐ Í SÝRLANDI Ekkert lát er á styrjöldinni í Sýrlandi, sem geisað hefur síðan í mars 2011 þegar fyrstu átökin hófust milli stjórnvalda og mótmælenda. Hátt á þriðja þúsund manns eru látnir, meira en þrjár milljónir
flúnar úr landi og um fimm milljónir á vergangi innanlands. Myndin er tekin í borginni Aleppo þann 9. júlí eftir loftárás stjórnarhersins. Maður ber tvær stúlkur burt frá vettvangi eyðileggingarinnar. NORDICPHOTOS/AFP
Á FLÓTTA TIL EVRÓPU Á hverju ári reyna tugir þúsunda manna að komast til Evrópusambandsins frá Afríkulöndum og Mið-Austurlöndum.
Þúsundir láta lífið á leiðinni yfir Miðjarðarhafið. Þessir menn eru að reyna að klifra yfir rammgirt landamæri spænsku borgarinnar Melilla, sem
er á norðurströnd Marokkós, í von um að komast þaðan yfir sundið til Spánar. NORDICPHOTOS/AFP
HJÚKRUNARKONA LEIÐIR EBÓLUSMITAÐA STÚLKU Í MONRÓVÍU,
HÖFUÐBORG LÍBERÍU Ebólufaraldurinn, sem geisað hefur í nokkrum
ríkjum vestanverðrar Afríku, er á hægu undanhaldi en hefur á árinu
kostað nærri sjö þúsund manns lífið.
SJÁLFSTÆÐISVILJI Í KATALÓNÍU Þann 11. september héldu
Katalóníubúar sína árlegu þjóðhátíð. Stemningin þetta árið var óvenju
mikil og góð vegna vaknandi vona um að þjóðaratkvæðagreiðsla í
nóvember myndi leiða til sjálfstæðis og aðskilnaðar frá Spáni. Þeir
draumar rættust þó ekki.
MÓTMÆLI LÝÐRÆÐISSINNA Í HONG KONG Lögreglumenn hvíla
sig eftir að hafa skotið táragashylkjum á tugi þúsunda mótmælenda,
sem sætta sig ekki við að kínversk stjórnvöld ráði því hverjir verði í
framboði til kosninga í Hong Kong. Myndin er tekin í lok september,
stuttu eftir að mótmælin hófust.