Fréttablaðið - 27.12.2014, Blaðsíða 13
LAUGARDAGUR 27. desember 2014 | FRÉTTIR | 13
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
6
75
70
OPNUNARTÍMI UM HÁTÍÐIRNAR
Vínbúðirnar á höfuðborgarsvæðinu, Akureyri, Reykjanesbæ og Selfossi
Laugardagur 27. desember 11.00 - 18.00
Reykjanesbær og Selfoss 11.00 - 16.00
Sunnudagur 28. desember Lokað
Mánudagur 29. desember 11.00 - 18.00
Skeifan, Dalvegur og Skútuvogur 10.00 - 20.00
Þriðjudagur 30. desember 11.00 - 20.00
Skeifan, Dalvegur og Skútuvogur 10.00 - 20.00
Miðvikudagur 31. desember 10.00 - 14.00
Fimmtudagur 1. janúar – nýársdagur Lokað
Föstudagur 2. janúar 11.00 - 19.00
Skeifan, Dalvegur og Skútuvogur 10.00 - 20.00
Laugardagur 3. janúar 11.00 - 18.00
Reykjanesbær og Selfoss 11.00 - 16.00
Sunnudagur 4. janúar Lokað
Mánudagur 5. janúar Talning
Sjá nánar um opnun einstakra búða á vinbudin.is
Nánari upplýsingar um opnunartíma er að finna á vinbudin.is
NEW YORK Fjölskylda, vinir og
samstarfsfélagar úr lögreglunni
í New York komu saman í gær
til þess að minnast annars af
tveimur lögreglumönnum sem
féll fyrir hendi byssumanns í
Brooklyn í síðustu viku. Hinn fer-
tugi Rafael Ramos var lagður til
hinstu hvílu. Hann var kvænt-
ur, faðir tveggja drengja. Fjöldi
fólks var viðstaddur athöfnina.
Ramos og samstarfsmaður hans í
lögreglunni voru skotnir til bana.
Byssumaðurinn hafði áður hótað
því að skjóta lögreglumenn. Bar-
ack Obama, forseti Bandaríkj-
anna, hefur fordæmt ódæðið. - jhh
Var tveggja barna faðir:
Lögreglumanni
fylgt til grafar
HARMI SLEGNIR ÍBÚAR Almenningi
í New York er brugðið vegna lögreglu-
morðanna. NORDICPHOTOS/AFP
ÍRLAND Dómari í yfirrétti í Dublin
hefur dæmt að það megi slökkva á
öndunarvél sem heldur heiladauðri
óléttri átján ára gamalli stúlku
á lífi. Fjölskylda konunnar vildi
að vélin yrði tekin úr sambandi.
Læknar höfðu ekki viljað verða
við óskum um að slökkva á vélinni
vegna þess að þeir voru óvissir um
lagalega stöðu hins ófædda barns.
Konan var úrskurðuð heiladauð
þann 3. desember síðastliðinn.
Það var niðurstaða dómstólsins að
litlar líkur væru á því að barnið
myndi fæðast á lífi. - jhh
Ólétt kona fær að deyja:
Slökkt verður
á öndunarvél
BANDARÍKIN Fyrrverandi Banda-
ríkjaforseti, George Bush eldri,
varði jólunum á spítala í Houston
í Texas eftir að hann hafði kom-
ist í andnauð. Talsmaður Bush
segir þó að hann hafi átt „frábær-
an dag“ og að hann væri „í góðu
stuði“.
Á spítalanum fékk Bush heim-
sókn frá eiginkonu sinni, Barböru,
og fleiri fjölskyldumeðlimum.
Jean Becker, sem var herráðs-
foringi undir stjórn Bush á sínum
tíma, segir að Bush ætti að vera
orðinn hraustur eftir nokkra
daga. - þij
Bush átti erfitt með öndun:
Bush eldri á
spítala um jólin
TRÚMÁL Agnes M. Sigurðardóttir, biskup Íslands, segir að
draga verði úr þjónustu kirkjunnar á næsta ári útaf niður-
skurði. Margar kirkjur liggi ennfremur undir skemmdum þar
sem ekki fæst fjármagn til að standa undir viðhaldi.
Sóknargjöld voru skorin niður um 25 prósent á árunum eftir
hrun og hefur kirkjan kallað eftir því að þessi niðurskurður
verði leiðréttur. Í skýrslu sem sérstakur starfshópur um fjár-
mál kirkjunnar skilaði til innanríkisráðherra í ágústmánuði
síðastliðnum kemur fram að nauðsynlegt sé að hækka sóknar-
gjöld um rúmar 600 milljónir. Í fjárlögum næsta árs er hins
vegar gert ráð fyrir að sóknargjöld hækki um 100 milljónir.
Í bréfi sem Agnes M. Sigurðardóttir, biskup Íslands, sendi
Sigmundi Davíð Gunnlaugssyni forsætisráðherra í lok síðasta
mánaðar og fréttastofa RÚV birti á aðfangadag er niðurskurð-
urinn sagður vera óréttmætur og fullyrt að sóknir landsins
muni ekki geta staðið af sér enn eitt ár niðurskurðar.
Biskup segir að nú þegar sé komið að þolmörkum. „Það
hefur verið skorið niður til viðhalds í kirkjunum og kirkjurn-
ar eru okkar menningarverðmæti og við þurfum að huga að
þeim. Eins hefur verið skorið niður í starfinu vegna þess að
söfnuðirnir, sóknirnar borga ekki laun prestanna heldur ann-
arra starfsmanna. Organistans, æskulýðsfulltrúans, kirkju-
varðarins og svo framvegis.
Þar hefur verið skorið niður eins og hægt er og nú er komið
að þolmörkum. Það er ekki hægt að skera meira niður og
hvaða skilaboð erum við að senda út í þjóðfélagið þegar við
erum að skera niður barna- og æskulýðsstarf?“ spyr biskup.
- hks
Sérstakur starfshópur um fjármál kirkjunnar telur að nauðsynlegt sé að hækka sóknargjöld um rúmar 600 milljónir króna:
Biskup segir að draga verði úr þjónustu kirkjunnar
VILL MEIRI PENING Biskup Íslands segir að kirkjan geti
ekki staðið af sér meiri niðurskurð. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK
SLAPPUR George Bush eldri ásamt eig-
inkonu sinni, Barböru, árið 2012. MYND/AP