Fréttablaðið - 27.12.2014, Síða 53
| ATVINNA |
Óskað er eftir rekstraraðila fyrir Gistiskýlið
Velferðarsvið Reykjavíkurborgar auglýsir eftir áhugasömum aðilum til að taka að sér rekstur neyðargistiskýlis
fyrir karla - Gistiskýlisins. Um er að ræða úrræði sem rekið hefur verið í Reykjavík á undanförnum árum, en
samningur við núverandi rekstraraðila rennur út þann 28. febrúar 2015. Hlutverk Gistiskýlisins er að veita hús-
næðislausum körlum næsturgistingu á grundvelli kröfulýsingar sem fyrir liggur um þjónustuna. Þjónustusamnin-
gur til 3ja ára verður gerður við þann aðila sem valinn verður til að reka þjónustuna.
Leitað er eftir einstaklingum eða félagasamtökum sem hafa reynslu af þjónustu við fólk sem á við marghátt-
aða félagslega erfiðleika að stríða með sérstakri áherslu á reynslu af vinnu með fólki sem á við áfengis- og
vímuefnavanda að etja.
Daglegur rekstur og þjónusta er í höndum þjónustusala, en til daglegs reksturs teljast t.d. starfsmannamál,
almennur rekstur húsnæðis og eldhúss, þvottur og skipting rúmfata á hverjum degi auk annarrar þjónustu.
Reykjavíkurborg leggur til húsnæði fyrir rekstur Gistiskýlisins. Gert er ráð fyrir því að 20 karlar gisti í einu að
meðaltali yfir árið. Sturtu- og hreinlætisaðstaða er fyrir notendur Gistiskýlisins og aðstaða í þvottahúsi er til að
þvo föt sín.
Þjónustutími Gistiskýlisins er a.m.k. frá kl. 17:00 – kl. 10:00 næsta dag, alla daga ársins og þarf þjónustusali að
tryggja að starfsemin sé ætíð mönnuð nægilega mörgum starfsmönnum svo unnt sé að veita þá þjónustu sem
skilgreind er í kröfulýsingu. Að lágmarki eru tveir starfsmenn á vakt á opnunartíma.
Frekari upplýsingar veitir Sigtryggur Jónsson, framkvæmdastjóri Þjónustumiðstöðvar Miðborgar og Hlíða,
sigtryggur.jonsson@reykjavik.is.
Kröfulýsingu er að finna á vefslóðinni http://reykjavik.is/stadir/thjonustumidstod-midborgar-og-hlida
Áhugasamir skili inn umsókn um verkefnið fyrir lok starfsdags þann 14. janúar 2015.
Velferðarsvið
Ertu í stuði?
Hófst þú nám í rafiðngrein,
raf- eða rafvélavirkjun, rafveituvirkjun eða
rafeindavirkjun en laukst því ekki?
Ertu að starfa við þær greinar þrátt fyrir að
hafa ekki lokið sveinsprófi?
Hefur þú hug á að ljúka því námi sem þú hófst?
Kynningarfundur verður á Stórhöfða 27
mánudaginn 5. janúar 2015 kl. 17:00.
“Ertu í stuði?” er verkefni sem ætlað er að finna leiðir
til að meta þá færni sem þátttakendur hafa aflað sér í
námi og starfi.
Markmiðið er að þátttakendur ljúki sveinsprófi.
Nánari upplýsingar er hægt að fá á
heimasíðu Fræðsluskrifstofu rafiðnaðarins
www.rafnam.is - Raunfærnimat
eða í síma 580 5252
VERSLUNARSTJÓRI:
Ber ábyrgð á rekstri verslunarinnar
HÆFNISKRÖFUR:
NETTÓ MJÓDD
SPENNANDI TÆKIFÆRI FYRIR ÖFLUGAN VERSLUNARSTJÓRA!
Kræsingar & kostakjör
www.netto.is
Umsóknir ásamt starfsferliskrá sendist á umsokn@netto.is.
Allar nánari upplýsingar veitir Guðni Erlendsson, starfsmanna-
fulltrúi í síma 421-5400. Umsóknarfrestur er til og með
11. janúar nk. Viðkomandi þyrfti að geta hafið störf sem fyrst.
LAUGARDAGUR 27. desember 2014 15