Fréttablaðið - 27.12.2014, Page 55

Fréttablaðið - 27.12.2014, Page 55
 7 | 27. desember 2014 | miðvikudagur AÐRIR NEFNDIR Björgólfur Jóhannsson, forstjóri Icelandair Group, hlaut næst- flest atkvæði í kjöri dómnefndar Markaðarins á viðskiptamanni ársins. Björgólfur var í þriðja sæti í valinu í fyrra og fyrsta sæti árið þar áður. Í rökstuðningi nefndarmanna er hann sagður ótrúlega farsæll í starfi. Hann haldi liði sínu mjög vel saman og sé sókndjarfur þótt hann hafi spilað í vörninni með fótboltaliðinu á Grenivík forðum daga. „Ævintýralegur vöxtur Ice- landair Group hefur haldið áfram á árinu. Vöxtur hagnaðar hefur hlut- fallslega fylgt miklum vexti tekna,“ segir annar. Bent er á að Ice- landair hafi leikið lykilhlutverk í að markaðssetja Ísland sem áfanga- stað og svo gera sér mat úr árangri góðrar markaðssetningar. „Enda hefur það skilað sér í góðri afkomu og hækkandi hlutabréfaverði.“ Þriðja og fjórða sæti deila svo með jafnmörg stig þeir Árni Oddur Þórðarson, fjárfestir og forstjóri Marel, og Jón Sigurðs- son, forstjóri Össurar. Bent er á gott uppgjör Marel á þriðja fjórðungi þessa árs. „Árni virðist vera að ná markmiðum sínum um að auka sölu og skera niður á sama tíma. Hann settist í forstjórastólinn í árs- lok 2013 og það virðist hafa verið góð ákvörðun fyrir hann sjálfan og félagið.“ Sömuleiðis er Jón Sigurðsson sagður hafa leitt hagræðingu og sókn Össurar á árinu, sem endur- speglist í að markaðsvirði félagsins hafi aukist um rúman helming á árinu. „Stjórnendur félagsins hafa gert nákvæmlega það sem þeir sögðust myndu gera og náð mark- miðum sínum sem hefur komið fram í hækkandi gengi félagsins og vaxandi tiltrú á framtíð þess.“ Jón er sagður mjög farsæll í starfi, Össur sé að verða nánast skuldlaust félag, og afkoman sé góð. 2. SÆTI OG 3.–4. SÆTI Ásdís Kristjánsdóttir, forstöðumaður efnahagssviðs Samtaka atvinnulífsins ● Eggert Þór Aðalsteinsson, sérfræðingur hjá Virðingu ● Gestur G. Gestsson, forstjóri Advania ● Guðrún Hafsteinsdóttir, markaðsstjóri og einn eigenda Kjöríss og formaður Samtaka iðnaðarins ● Hafliði Helgason, sérfræðingur hjá Framtakssjóði Íslands ● Haraldur Guðmundsson, blaðamaður á Fréttablaðinu ● Hjálmar Gíslason, stofnandi og framkvæmdastjóri Datamarket ● Hulda Bjarnadóttir, framkvæmdastjóri Félags kvenna í atvinnurekstri ● Jafet S. Ólafsson, fjárfestir ● Jón Hákón Halldórsson, blaðamaður á Fréttablaðinu ● Kolbrún Jónsdóttir, framkvæmdastjóri Kjölfestu ● Margrét Kristmannsdóttir, framkvæmdastjóri Pfaff ● Margrét Sanders, framkvæmdastjóri hjá Deloitte og formaður Samtaka versl- unar og þjónustu ● Ólafur Stephensen, framkvæmdastjóri Félags atvinnurekenda ● Óli Kristján Ármannsson, blaðamaður á Fréttablaðinu ● Páll Harðarson, forstjóri Nasdaq Iceland ● Svana Helen Björnsdóttir, forstjóri Stika ● Thor Thors, framkvæmdastjóri Kóða ● Þóranna Jónsdóttir, forseti viðskiptadeildar Háskólans í Reykjavík. Í DÓMNEFND MARKAÐARINS „Meira og minna allt árið 2013 vorum við að tala við fjárfestingarsjóði, aðallega í Bandaríkjunum, í leit að fjármagni í næsta skref uppbyggingar Data market,“ segir Hjálmar Gíslason, stofnandi fyrirtækisins. „Ég hugsa að við höfum talað við um 50 fjárfestingarsjóði allt í allt. Við héldum eitthvað áfram með um það bil 15 og enduðum í viðræðum við þrjá þeirra.“ Í lok árs í fyrra hafi slíkar viðræður verið í gangi og möguleiki á fjárfestingu upp á um fjórar milljónir Bandaríkjadala. „En þá kynnumst við þessu fyrirtæki, sem hafði þá heyrt af okkur úr tveimur mismunandi áttum.“ Hjálmar hafði áður rætt við stjórnarfor- mann Qlik um að koma sem fjárfestir að Datamarket og svo heyrði markaðsstjóri vörusölu hjá Qlik af Datamarket á ráðstefnu Capacent. „Í nóvember hittum við þá á nokkrum fundum til að ræða samstarf og þá kemur upp þessi hugmynd hjá þeim að kaupa okkur bara.“ Í það var ágætlega tekið og skrifað undir viljayfirlýsingu um kaupin í desember í fyrra. Við tóku svo 10 mánaða samningaviðræður. Þar segir Hjálmar aðallega tvennt hafa orðið til að tefja ferlið. Annars vegar þurfti að endursemja við stærsta viðskiptavin Data- market, sem hefði getað gengið út úr samningi við fyrirtækið við eigendaskipti. „Og hinn stóri þátturinn var svo gjaldeyrishöftin,“ segir Hjálmar. Í fyrsta lagi hafi sú staðreynd ein að hér væru í gildi höft á flæði fjármagns til og frá landinu kallað á miklar útskýringar og langsetur á fundum, bæði í við- ræðum við Qlik og einnig fjárfestingarsjóðina sem rætt var við áður. „Þarna fer hellings tími í að ræða hluti sem hafa ekkert með fyrirtækið eða samninginn sjálfan að gera.“ Þetta segir Hjálmar oftar en ekki strax gera erlenda fjárfesta afhuga því að koma nálægt fyrirtækjum. „Síðan eru hömlur, til dæmis á flutningi hugverkaréttar á milli landa.“ Því hafi þurft að sækja um undanþágu hjá Seðlabankanum og allt hafi það tekið sinn tíma þrátt fyrir góðar móttökur og þjónustu þar á bæ. „Svo kom í ljós í sumar þegar við vorum komin býsna langt með þetta að lagabreyting sem gerð var á næstsíðasta degi þings í vor gerði að verkum að eitt skrefið í viðskiptunum gat ekki átt sér stað,“ segir hann, en breytingin sneri að heimild til að flytja úr landi arðgreiðslur af eignasölu til erlendra eigenda fyrirtækja á Íslandi. Þegar lokað var þar fyrir glufu í gjaldeyrirhöftunum var um leið lokað á „lögmæt“ viðskipti. „Og sú staðreynd að umhverfi, sem við vorum þegar smeyk við, væri kannski líka að breytast, gerði að verkum að eftir það vorum við mjög passasöm með alla hluti.“ Að mati Hjálmars fóru um fjórir mánuðir af ferlinu í viðræðunum við Qlik ýmist í bið eftir undanþágum eða hægagang vegna þess hversu varlega var farið og því hafi þurft að bíða eftir ráðgjöf tengdri gjaldeyrishöftunum. VIÐRÆÐURNAR VIÐ QLIK TÓKU NÆRRI ÁRTilhneigingar í þessa átt segir Hjálmar enn til staðar, svo sem með því að halda hér úti litlum gjaldmiðli sem sveiflist að ein- hverju marki með útflutningi afurða stóru útflutningsveg- anna, þá sé viðhaldið umhverfi sem henti til dæmis sjávarút- vegi betur að því leyti heldur en þekkingargeiranum. Í þekk- ingargeiranum séu margfeldis- áhrifin þó mest, enda geiranum ekki settar skorður af takmörk- uðum auðlindum. „Um þetta tala allir fallega, en þessar greinar eiga sér samt enga sterka mál- svara inni á þingi eða í ríkis- stjórn á meðan hinar grein- arnar eiga það greinilega, sér- staklega sjávarútvegurinn og iðnaðurinn.“ Þá er vitað að innan gjald- eyrishafta hafa þekkingar- og sprotafyrirtæki verið í vand- ræðum með að afla fjár til áframhaldandi vaxtar og þá kannski sér í lagi landvinninga utan landsteinanna og hafa nokkur af þeim sökum verið seld úr landi undanfarin ár. Hjálmar segir hins vegar stöðuna sum- part ólíka hjá Data market þótt fyrirtækið hafi vissulega verið selt. NÝTA SLAGKRAFT QLIK „Í okkar tilfelli er ekki bara að koma nýr eigandi að fyrir- tækinu heldur er hann líka að fjárfesta hér og fara í uppbygg- ingu. Við erum að fara í frek- ar miklar og brattar manna- ráðningar og stækkun hér á næsta ári,“ segir hann. Þetta ferli verði hafið strax í janúar, febrúar, en um þessar mundir leitar Datamarket líka að hent- ugu nýju húsnæði. „Hér verð- ur öflug starfsemi hjá Qlik þar sem við tökum yfir þróunina á þeirra vöru,“ bætir Hjálmar við. Datamarket þróaði sérhæfða tækni til að safna og samræma gögn úr ólíkum áttum, meðan Qlik hefur þróað viðskipta- greindarhugbúnað sem vinnur með innri gögn fyrirtækja. „En til að taka góðar ákvarðanir í rekstri þarf fólk bæði að horfa til þess hvað er að gerast inni í fyrirtækjum og hvað á sér stað utan þeirra,“ segir Hjálmar og kveður seinni þáttinn dálítið hafa orðið út undan í viðskipta- greindarhugbúnaði. „Þetta snýst um að færa þetta saman í eina lausn, þannig að stjórnend- ur hafi greiðan aðgang að ytri gögnum til að setja í samhengi við það sem er að gerast inni í fyrirtækinu.“ Datamarket á Íslandi er svo sú eining innan Qlik sem annast þessa samþættingu og stækk- ar hér og starfar að verkefninu. „Ég er svo í forsvari fyrir þetta og núna tekur við tímabil þar sem við samþættum tæknina okkar og höldum um leið áfram að þjónusta þá viðskiptavini sem við vorum komin með.“ Þegar samþættingunni lýkur segir Hjálmar áhersluna svo verða lagða á að selja nýja hugbúnað- arlausn í gegnum söluhluta Qlik. „Þetta er gjörsamlega týpískt fyrir sprotafyrirtæki sem búið hefur til verðmæta tækni og er keypt þess vegna. Munurinn hér er sá að við göngum inn í fyrir- tæki sem er með 34 þúsund við- skiptavini og 400 sölumenn. Við vorum tveir að selja hjá Data- market.“ Að fenginni reynslu segir Hjálmar skort á áherslu á mark- aðssetningu og sölustarf líkast til einn þeirra þátta sem líkleg- ir séu til að hamla vexti sprota- fyrirtækja. „Sjái maður við- skiptaáætlun frá sprotafyrir- tæki á Íslandi er yfirleitt gert ráð fyrir tíu tæknimönnum áður en ráðinn er sölumaður og tutt- ugu áður en ráðnir eru tveir.“ Í fyrirtækinu sem Datamarket gengur inn í núna segir Hjálmar að um helmingur starfsmanna sinni viðskiptavinum þess með einum eða öðrum hætti. Um leið tekur Hjálmar fram að sjálfur sé hann kolsekur um að hafa gert sömu mistök. „Hefði ég haft tök á að hitta sjálfan mig fyrir fjórum árum hefði ég ráðlagt mér að byggja hraðar upp söluhlutann. En ég veit ekki hvort ég hefði tekið mark á því,“ segir hann glettinn. Björgólfur, Jón og Árni Oddur Birna Einarsdóttir bankastjóri Íslandsbanka „Búin að vinna þrekvirki frá hruni – og við hljótum að vera komin það langt að það megi viður- kenna góða bankamenn á ný!“ Grímur Sæmundsen forstjóri Bláa lónsins „Það voru ekki alltof margir sem höfðu trú á þessu dundi úti í hrauni, eins og einhver góður bankastjóri nefndi Bláa lónið einu sinni. Grímur kemur til fyrir- tækisins þegar það er örlítið og hefur stýrt þessum mikla vexti af mikilli framsýni.“ Rakel Sölvadóttir stofnandi Skema „Rakel hefur byggt upp áhugavert sprotafyrirtæki sem fer nýjar leið- ir í hagnýtingu upplýsingatækni í þágu menntunar og fræðslu. Hún hefur unnið brautryðjendastarf í að gera kornunga krakka að frumkvöðlum.“ Kristján Loftsson forstj. Hvals/stjórnarform. HB Granda „Skráning HB Granda á aðallista Kaup- hall- ar Íslands var ein af stærstu fréttum viðskiptalífsins á árinu […] HB Grandi og Hampiðjan, sem eru bæði að stórum hluta í eigu Kristjáns, voru meðal hástökkv- ara ársins á hlutabréfamarkaði en hvort félag um sig hækkaði um rúm 66 prósent.“ Björgólfur Thor Björgólfsson fjárfestir „Kláraði eitt af stærri skuldaupp- gjörum síðari tíma og endaði árið með comeback-i og bók í reyfarastíl – Actavis upp um 54 prósent á árinu!“ María Rúnarsdóttir í stjórn Mint Solutions „Fyrirtækið fékk 680 milljóna króna fjárfestingu frá hollenskum og frönskum fjárfestingarsjóðum í sumar.“ Eggert Claessen framkvæmdastjóri Frumtaks „Frumtak hefur verið eini umtalsverði áhættufjárfestingar- sjóðurinn á Íslandi allt frá hruni. Sjóðurinn er allstór hluthafi í flestum sprotafyrirtækjum landsins sem nú eru að springa út, svo sem Meniga, Controlant og Völku. Frumtak fékk líka fyrsta stóra „exitið“ sitt á árinu þegar DataMarket var selt Qlik.“ Skúli Mogensen forstjóri WOW air „Skúli hefur byggt upp öflugt flugfélag sem veitir Icelandair verðuga samkeppni.“ Í okkar tilfelli er ekki bara að koma nýr eigandi að fyrirtækinu heldur er hann líka að fjár- festa hér og fara í uppbyggingu. Við erum að fara í frekar miklar og brattar mannaráðningar. SEÐLABANKINN Dráttur vegna gjaldeyris-hafta átti sinn þátt í að tíu mánuði tók að ljúka sölunni á Datamarket til Qlik. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.