Fréttablaðið - 27.12.2014, Blaðsíða 55
7 | 27. desember 2014 | miðvikudagur
AÐRIR NEFNDIR
Björgólfur Jóhannsson, forstjóri
Icelandair Group, hlaut næst-
flest atkvæði í kjöri dómnefndar
Markaðarins á viðskiptamanni
ársins. Björgólfur var í þriðja sæti
í valinu í fyrra og fyrsta sæti árið
þar áður.
Í rökstuðningi nefndarmanna
er hann sagður ótrúlega farsæll í
starfi. Hann haldi liði sínu mjög
vel saman og sé sókndjarfur þótt
hann hafi spilað í vörninni með
fótboltaliðinu á Grenivík forðum
daga. „Ævintýralegur vöxtur Ice-
landair Group hefur haldið áfram á
árinu. Vöxtur hagnaðar hefur hlut-
fallslega fylgt miklum vexti tekna,“
segir annar.
Bent er
á að
Ice-
landair hafi leikið lykilhlutverk í að
markaðssetja Ísland sem áfanga-
stað og svo gera sér mat úr árangri
góðrar markaðssetningar. „Enda
hefur það skilað sér í góðri afkomu
og hækkandi hlutabréfaverði.“
Þriðja og fjórða sæti deila svo
með jafnmörg stig þeir Árni
Oddur Þórðarson, fjárfestir og
forstjóri Marel, og Jón Sigurðs-
son, forstjóri Össurar.
Bent er á gott uppgjör Marel á
þriðja fjórðungi þessa árs. „Árni
virðist vera að ná markmiðum
sínum um að auka sölu og skera
niður á
sama
tíma.
Hann settist í forstjórastólinn í árs-
lok 2013 og það virðist hafa verið
góð ákvörðun fyrir hann sjálfan og
félagið.“
Sömuleiðis er Jón Sigurðsson
sagður hafa leitt hagræðingu og
sókn Össurar á árinu, sem endur-
speglist í að markaðsvirði félagsins
hafi aukist um rúman helming á
árinu. „Stjórnendur félagsins hafa
gert nákvæmlega það sem þeir
sögðust myndu gera og náð mark-
miðum sínum sem hefur komið
fram í hækkandi gengi félagsins
og vaxandi tiltrú á framtíð þess.“
Jón er sagður mjög farsæll í
starfi, Össur sé að
verða nánast
skuldlaust
félag, og
afkoman
sé góð.
2. SÆTI OG 3.–4. SÆTI
Ásdís Kristjánsdóttir, forstöðumaður efnahagssviðs Samtaka atvinnulífsins ● Eggert Þór Aðalsteinsson, sérfræðingur hjá Virðingu ● Gestur G. Gestsson, forstjóri Advania ● Guðrún Hafsteinsdóttir,
markaðsstjóri og einn eigenda Kjöríss og formaður Samtaka iðnaðarins ● Hafliði Helgason, sérfræðingur hjá Framtakssjóði Íslands ● Haraldur Guðmundsson, blaðamaður á Fréttablaðinu ● Hjálmar
Gíslason, stofnandi og framkvæmdastjóri Datamarket ● Hulda Bjarnadóttir, framkvæmdastjóri Félags kvenna í atvinnurekstri ● Jafet S. Ólafsson, fjárfestir ● Jón Hákón Halldórsson, blaðamaður á
Fréttablaðinu ● Kolbrún Jónsdóttir, framkvæmdastjóri Kjölfestu ● Margrét Kristmannsdóttir, framkvæmdastjóri Pfaff ● Margrét Sanders, framkvæmdastjóri hjá Deloitte og formaður Samtaka versl-
unar og þjónustu ● Ólafur Stephensen, framkvæmdastjóri Félags atvinnurekenda ● Óli Kristján Ármannsson, blaðamaður á Fréttablaðinu ● Páll Harðarson, forstjóri Nasdaq Iceland ● Svana Helen
Björnsdóttir, forstjóri Stika ● Thor Thors, framkvæmdastjóri Kóða ● Þóranna Jónsdóttir, forseti viðskiptadeildar Háskólans í Reykjavík.
Í DÓMNEFND MARKAÐARINS
„Meira og minna allt árið 2013 vorum
við að tala við fjárfestingarsjóði,
aðallega í Bandaríkjunum, í leit að
fjármagni í næsta skref uppbyggingar
Data market,“ segir Hjálmar Gíslason,
stofnandi fyrirtækisins.
„Ég hugsa að við höfum talað við
um 50 fjárfestingarsjóði allt í allt. Við
héldum eitthvað áfram með um það
bil 15 og enduðum í viðræðum við
þrjá þeirra.“ Í lok árs í fyrra hafi slíkar
viðræður verið í gangi og möguleiki á
fjárfestingu upp á um fjórar milljónir
Bandaríkjadala. „En þá kynnumst við
þessu fyrirtæki, sem hafði þá heyrt af
okkur úr tveimur mismunandi áttum.“
Hjálmar hafði áður rætt við stjórnarfor-
mann Qlik um að koma sem fjárfestir
að Datamarket og svo heyrði markaðsstjóri vörusölu hjá Qlik af Datamarket á
ráðstefnu Capacent.
„Í nóvember hittum við þá á nokkrum fundum til að ræða samstarf og þá
kemur upp þessi hugmynd hjá þeim að kaupa okkur bara.“ Í það var ágætlega
tekið og skrifað undir viljayfirlýsingu um kaupin í desember í fyrra. Við tóku svo
10 mánaða samningaviðræður. Þar segir Hjálmar aðallega tvennt hafa orðið til
að tefja ferlið. Annars vegar þurfti að endursemja við stærsta viðskiptavin Data-
market, sem hefði getað gengið út úr samningi við fyrirtækið við eigendaskipti.
„Og hinn stóri þátturinn var svo gjaldeyrishöftin,“ segir Hjálmar.
Í fyrsta lagi hafi sú staðreynd ein að hér væru í gildi höft á flæði fjármagns
til og frá landinu kallað á miklar útskýringar og langsetur á fundum, bæði í við-
ræðum við Qlik og einnig fjárfestingarsjóðina sem rætt var við áður. „Þarna fer
hellings tími í að ræða hluti sem hafa ekkert með fyrirtækið eða samninginn
sjálfan að gera.“ Þetta segir Hjálmar oftar en ekki strax gera erlenda fjárfesta
afhuga því að koma nálægt fyrirtækjum.
„Síðan eru hömlur, til dæmis á flutningi hugverkaréttar á milli landa.“ Því hafi
þurft að sækja um undanþágu hjá Seðlabankanum og allt hafi það tekið sinn
tíma þrátt fyrir góðar móttökur og þjónustu þar á bæ. „Svo kom í ljós í sumar
þegar við vorum komin býsna langt með þetta að lagabreyting sem gerð var á
næstsíðasta degi þings í vor gerði að verkum að eitt skrefið í viðskiptunum gat
ekki átt sér stað,“ segir hann, en breytingin sneri að heimild til að flytja úr landi
arðgreiðslur af eignasölu til erlendra eigenda fyrirtækja á Íslandi. Þegar lokað
var þar fyrir glufu í gjaldeyrirhöftunum var um leið lokað á „lögmæt“ viðskipti.
„Og sú staðreynd að umhverfi, sem við vorum þegar smeyk við, væri kannski
líka að breytast, gerði að verkum að eftir það vorum við mjög passasöm með
alla hluti.“
Að mati Hjálmars fóru um fjórir mánuðir af ferlinu í viðræðunum við Qlik
ýmist í bið eftir undanþágum eða hægagang vegna þess hversu varlega var
farið og því hafi þurft að bíða eftir ráðgjöf tengdri gjaldeyrishöftunum.
VIÐRÆÐURNAR VIÐ QLIK TÓKU NÆRRI ÁRTilhneigingar í þessa átt segir
Hjálmar enn til staðar, svo sem
með því að halda hér úti litlum
gjaldmiðli sem sveiflist að ein-
hverju marki með útflutningi
afurða stóru útflutningsveg-
anna, þá sé viðhaldið umhverfi
sem henti til dæmis sjávarút-
vegi betur að því leyti heldur
en þekkingargeiranum. Í þekk-
ingargeiranum séu margfeldis-
áhrifin þó mest, enda geiranum
ekki settar skorður af takmörk-
uðum auðlindum. „Um þetta tala
allir fallega, en þessar greinar
eiga sér samt enga sterka mál-
svara inni á þingi eða í ríkis-
stjórn á meðan hinar grein-
arnar eiga það greinilega, sér-
staklega sjávarútvegurinn og
iðnaðurinn.“
Þá er vitað að innan gjald-
eyrishafta hafa þekkingar- og
sprotafyrirtæki verið í vand-
ræðum með að afla fjár til
áframhaldandi vaxtar og þá
kannski sér í lagi landvinninga
utan landsteinanna og hafa
nokkur af þeim sökum verið seld
úr landi undanfarin ár. Hjálmar
segir hins vegar stöðuna sum-
part ólíka hjá Data market þótt
fyrirtækið hafi vissulega verið
selt.
NÝTA SLAGKRAFT QLIK
„Í okkar tilfelli er ekki bara
að koma nýr eigandi að fyrir-
tækinu heldur er hann líka að
fjárfesta hér og fara í uppbygg-
ingu. Við erum að fara í frek-
ar miklar og brattar manna-
ráðningar og stækkun hér á
næsta ári,“ segir hann. Þetta
ferli verði hafið strax í janúar,
febrúar, en um þessar mundir
leitar Datamarket líka að hent-
ugu nýju húsnæði. „Hér verð-
ur öflug starfsemi hjá Qlik þar
sem við tökum yfir þróunina á
þeirra vöru,“ bætir Hjálmar við.
Datamarket þróaði sérhæfða
tækni til að safna og samræma
gögn úr ólíkum áttum, meðan
Qlik hefur þróað viðskipta-
greindarhugbúnað sem vinnur
með innri gögn fyrirtækja. „En
til að taka góðar ákvarðanir í
rekstri þarf fólk bæði að horfa
til þess hvað er að gerast inni í
fyrirtækjum og hvað á sér stað
utan þeirra,“ segir Hjálmar og
kveður seinni þáttinn dálítið
hafa orðið út undan í viðskipta-
greindarhugbúnaði. „Þetta
snýst um að færa þetta saman í
eina lausn, þannig að stjórnend-
ur hafi greiðan aðgang að ytri
gögnum til að setja í samhengi
við það sem er að gerast inni í
fyrirtækinu.“
Datamarket á Íslandi er svo
sú eining innan Qlik sem annast
þessa samþættingu og stækk-
ar hér og starfar að verkefninu.
„Ég er svo í forsvari fyrir þetta
og núna tekur við tímabil þar
sem við samþættum tæknina
okkar og höldum um leið áfram
að þjónusta þá viðskiptavini sem
við vorum komin með.“ Þegar
samþættingunni lýkur segir
Hjálmar áhersluna svo verða
lagða á að selja nýja hugbúnað-
arlausn í gegnum söluhluta Qlik.
„Þetta er gjörsamlega týpískt
fyrir sprotafyrirtæki sem búið
hefur til verðmæta tækni og er
keypt þess vegna. Munurinn hér
er sá að við göngum inn í fyrir-
tæki sem er með 34 þúsund við-
skiptavini og 400 sölumenn. Við
vorum tveir að selja hjá Data-
market.“
Að fenginni reynslu segir
Hjálmar skort á áherslu á mark-
aðssetningu og sölustarf líkast
til einn þeirra þátta sem líkleg-
ir séu til að hamla vexti sprota-
fyrirtækja. „Sjái maður við-
skiptaáætlun frá sprotafyrir-
tæki á Íslandi er yfirleitt gert
ráð fyrir tíu tæknimönnum áður
en ráðinn er sölumaður og tutt-
ugu áður en ráðnir eru tveir.“
Í fyrirtækinu sem Datamarket
gengur inn í núna segir Hjálmar
að um helmingur starfsmanna
sinni viðskiptavinum þess með
einum eða öðrum hætti.
Um leið tekur Hjálmar fram
að sjálfur sé hann kolsekur
um að hafa gert sömu mistök.
„Hefði ég haft tök á að hitta
sjálfan mig fyrir fjórum árum
hefði ég ráðlagt mér að byggja
hraðar upp söluhlutann. En ég
veit ekki hvort ég hefði tekið
mark á því,“ segir hann glettinn.
Björgólfur, Jón og Árni Oddur Birna Einarsdóttir
bankastjóri Íslandsbanka
„Búin að vinna þrekvirki frá hruni
– og við hljótum að vera komin
það langt að það megi viður-
kenna góða bankamenn á ný!“
Grímur Sæmundsen
forstjóri Bláa lónsins
„Það voru ekki alltof margir sem
höfðu trú á þessu dundi úti í
hrauni, eins og einhver góður
bankastjóri nefndi Bláa lónið
einu sinni. Grímur kemur til fyrir-
tækisins þegar það er örlítið og
hefur stýrt þessum mikla vexti af
mikilli framsýni.“
Rakel Sölvadóttir
stofnandi Skema
„Rakel hefur byggt upp áhugavert
sprotafyrirtæki sem fer nýjar leið-
ir í hagnýtingu upplýsingatækni í
þágu menntunar og fræðslu. Hún
hefur unnið brautryðjendastarf
í að gera kornunga krakka að
frumkvöðlum.“
Kristján Loftsson
forstj. Hvals/stjórnarform.
HB Granda
„Skráning HB Granda
á aðallista
Kaup-
hall-
ar
Íslands var ein af stærstu fréttum
viðskiptalífsins á árinu […] HB
Grandi og Hampiðjan, sem eru
bæði að stórum hluta í eigu
Kristjáns, voru meðal hástökkv-
ara ársins á hlutabréfamarkaði
en hvort félag um sig hækkaði
um rúm 66 prósent.“
Björgólfur Thor
Björgólfsson
fjárfestir
„Kláraði eitt af stærri skuldaupp-
gjörum síðari tíma og endaði
árið með comeback-i og bók í
reyfarastíl – Actavis upp um 54
prósent á árinu!“
María Rúnarsdóttir
í stjórn Mint Solutions
„Fyrirtækið fékk 680 milljóna
króna fjárfestingu frá hollenskum
og frönskum fjárfestingarsjóðum
í sumar.“
Eggert Claessen
framkvæmdastjóri Frumtaks
„Frumtak hefur verið eini
umtalsverði áhættufjárfestingar-
sjóðurinn á Íslandi allt frá hruni.
Sjóðurinn er allstór hluthafi
í flestum sprotafyrirtækjum
landsins sem nú eru að springa
út, svo sem Meniga, Controlant
og Völku. Frumtak fékk líka fyrsta
stóra „exitið“ sitt á árinu þegar
DataMarket var selt Qlik.“
Skúli Mogensen
forstjóri WOW air
„Skúli hefur byggt upp öflugt
flugfélag sem veitir Icelandair
verðuga samkeppni.“
Í okkar tilfelli
er ekki bara að
koma nýr eigandi að
fyrirtækinu heldur
er hann líka að fjár-
festa hér og fara í
uppbyggingu. Við
erum að fara í frekar
miklar og brattar
mannaráðningar. SEÐLABANKINN Dráttur vegna gjaldeyris-hafta átti sinn þátt í að tíu mánuði tók
að ljúka sölunni á Datamarket til Qlik.
FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR