Fréttablaðið - 27.12.2014, Blaðsíða 30

Fréttablaðið - 27.12.2014, Blaðsíða 30
 | 2 27. desember 2014 | miðvikudagur S ala Datamarket til Qlik Technolog- ies í Bandaríkjunum sem gekk í gegn í október síðastliðnum var með nokkrum yfi rburðum valin viðskipti ársins af dómnefnd Markaðarins og Stöðvar 2. Qlik er fyrirtæki skráð á markað Nasdaq í New York í Bandaríkjunum en er sænskt að uppruna og enn með starfsemi þar í landi. Í skýrslu Qlik til kauphallarinnar í New York kemur fram að kaupverðið á Datamark- et hafi verið 11,8 milljónir Bandaríkjadala en geti hækkað um 1,7 milljónir dala í 13,5 milljónir, náist ákveðin markmið og áfangar í þróun sem lýst sé í kaupsamningi. Í krónum talið hleypur upphæðin frá um 1.440 millj- ónum til nálægt 1.660 milljóna króna, svona eftir því við hvaða gengi er miðað. Miðað við þær fjárhæðir gætu um 390 til 450 milljón- ir króna komið í hlut Hjálmars Gíslasonar, framkvæmdastjóra og stofnanda Datamarket. Hann stofnaði fyrirtækið árið 2008 og lagði þá upp með „tvær hendur tómar og eigið hyggju- vit“, eins og því hefur verið lýst. Þegar kom að sölu var hlutur Hjálmars í fyrirtækinu 27 prósent og var hann næststærsti hluthafi nn. Viðræður hófust fyrir ári Stærsti hluthafi nn var hins vegar fjárfesting- arsjóðurinn Frumtak sem fór með 40 prósenta hlut og fær því í sinn hlut 580 til 660 milljón- ir króna. Þá átti fjárfestingarfélagið Investa 7,6 prósent (fær 110 til 125 milljónir), Meson Holding, fjárfestingarfélag Vilhjálms Þor- steinssonar, 5,7 prósent (82 til 95 milljónir), og Frosti Sigurjónsson alþingismaður rúm fjögur prósent (fær þá 57 til 67 milljónir króna). Þegar salan var kynnt greindi Hjálmar Gíslason frá því að þjónusta fyrirtækisins hér á landi myndi ekki breytast og að fjár- fest yrði í frekari þróun hér. „Við kynntumst þessu fyrirtæki, Qlik Technologies, fyrir um það bil ári síðan,“ sagði hann í viðtali við Stöð 2 1. nóvember síðastliðinn. „Þeir höfðu áhuga á tækni sem við höfðum byggt upp. Við höfum allt þetta ár verið í þessum viðræðum sem leiddu til þessarar sölu.“ Hvatning fyrir aðra Einn dómnefndarmanna sagði söluna á Data- market til Qlik sýna hvaða gríðarlegu verð- mæti liggi í íslensku hugviti og þeim krafti sem búi í vel menntuðu fólki sem vinni að því hörðum höndum að virkja hugvit sitt og skapa verðmæt hugverk sem séu eftir sótt jafnt hér heima sem erlendis. Annar sagði „svo sem“ hægt að velja söluna á Datamarket sem bestu viðskiptin. „1.440 milljónir er gott söluverð 2 Sala Hagamels á hlut í Högum Fjárfestarnir Hallbjörn Karlsson og Árni Hauksson seldu í febrúar hlut sinn í Högum, sem þeir áttu í gegnum félagið Hagamel, fyrir rúmlega 3,2 milljarða króna. Söluverð hlutarins var um fjórfalt kaupverð hans. Í Kjarnanum voru þeir félagar með þessu sagðir hafa innleyst mesta hagnað einkafjár- festa eftir bankahrun, en Hagar voru jafnframt fyrsta fyrirtækið sem skráð var í Kauphöllina eftir hrun. Rökstuðningur „Árni Hauksson og Hallbjörn Karlsson seldu í febrúar 77 milljónir hluta í Högum á genginu 42. Þeir höfðu keypt hlutina í sama mánuði þremur árum áður á genginu 10. Markaðsverðmæti hlutarins sem þeir seldu var um 3,2 milljarðar króna en markaðsverð hlutarins var 770 milljónir þegar hann var keyptur. Þeir Árni og Hall- björn fjórfölduðu því fjárfestingu sína.“ 3 Samkomulag Lands-bankans og slitastjórnar LBI um lánalengingu Samkomulag um lengingu á skilmálum skuldabréfa Landsbankans sem gefin voru út í október 2009 sem náðist í byrjun desember- mánaðar er sagt fyrsta skrefið í afnámi fjármagnshafta. Samkomulagið felur í sér breytingar á greiðsluferli skuldabréfa að jafn- virði 226 milljarða króna og lengingu þeirra frá október 2018 til október 2026. Rökstuðningur „Þarna var um að ræða gríð- arlega mikilvægt skref í léttingu hafta – þó að höftum verði aldrei algjörlega aflétt með íslensku krónuna. Þetta samkomulag kemst á listann því sennilega er ekkert eitt sem er eins skaðlegt viðskiptalífinu og höftin.“ „Afborganir bankans til þrotabús gamla Landsbankans eru stór hluti af heildarendur- greiðslum erlendra lána þjóðarbúsins næstu árin. Með samkomulaginu virðist sem endur- greiðsluferill erlendra skulda sé í heild orðinn vel viðráðanlegur.“ Frábært að sjá frumkvöðul fylgja eftir góðri hugmynd alla leið í sölu Íslenska fyrirtækið Datamarket var í október selt upplýsingatæknifyrirtækinu Qlik Technologies Inc. í Bandaríkj- unum fyrir 11,8 til 13,5 milljónir Bandaríkjadala. Sagt stofnað á erfiðum tímum og góður hagnaður innleystur. ÓLI KRISTJÁN ÁRMANNSSON olikr@frettabladid.is 2. OG 3. SÆTI Í BESTU VIÐSKIPTUM ÁRSINS Ferðaþjónustan á Íslandi í heild sinni „Ferðaþjónustan á Íslandi í heild sinni á rétt á því að verma toppsætið enda værum við Íslendingar í mjög slæmri stöðu ef vöxtur hennar og gjaldeyrissköpun væri ekki það sem hún er. Vaxtarverkirnir eru þó nokkrir og svört atvinnustarfsemi og gróðabrask skaða um stund ímynd ferðaþjónustunnar. En fag- mennskan fer vaxandi og framtíðin er björt ef rétt er haldið á spilum.“ Sala á kvóta og skipi Stálskipa „Hjónin í Stálskipum ákváðu að bregða búi fyrir aldurs sakir þegar þau seldu kvóta og skip fyrir um tíu milljarða króna. Söluhagnaður var gríðarlegur. Þau einbeita sér nú að fjárfesting- um í fasteignum og rekstri innanlands.“ Sala Framtakssjóðsins á Icelandair „Kaup Framtakssjóðs Íslands í Icelandair voru mikið gagnrýnd á sínum tíma og margir drógu framtíðarmöguleika félagsins í efa. Framtaks- sjóðurinn seldi síðasta hlut sinn í félaginu á árinu og var hagnaður af þessum viðskiptum ríflega 11 milljarðar.“ Kaup Straums á fimmtungshlut í MP banka „Kaup Straums á lykilhlut í MP voru gerð í óþökk margra hluthafa MP banka. Þótt enn sé of snemmt að álykta um ágæti viðskiptanna virðist sem að Straumur hafi fengið bréfin langt undir innra virði hlutafjár MP banka. Straumur er óþægilegur meðeigandi sem mun þrýsta á nauðsynlega hagræðingu og aukna arðsemi innan íslenska bankakerfisins.“ Salan á Promens „Segi það með blendnum hug þó. Þetta var líklega fín ávöxtun fyrir eigendurna, þ.e. Framtakssjóðinn og Landsbankann, en af yfir- lýsingum stjórnenda félagsins að ráða hefðu þeir þó frekar kosið að ná að fjármagna félagið til frekari vaxtar, en reyndist það erfitt eða ill- mögulegt vegna fjármagnshafta.“ Verðtryggð húsnæðislán „Hagfelld verðbólguþróun og leiðréttingarpakki stjórnvalda á leiðinni.“ ANNAÐ SEM VAR NEFNT Sérhæfing Qlik liggur í að matreiða gögn þannig að auðvelt sé að vinna með þau og nota til ákvarðanatöku, að því er fram kemur á vef fyrirtækisins. Qlik var stofnað í Lundi í Svíþjóð árið 1993 og ætlaði sér þá að hjálpa fyrirtækjum, stórum (jafnvel risum á heimsvísu) sem smáum, að leysa vandamál. Félagið segir að núna reiði um 33 þúsund viðskiptavinir í yfir hundrað löndum sig á þjónustu þess. „Við höfum verið í fararbroddi í að leita leiða til að breyta gögnum yfir í nytsamar upplýsingar,“ segir í kynningarefni Qlik og vísað til þess að hugbúnaður félagsins, Qlik View, sé leiðandi á meðal gagnaúr- vinnslutækja fyrir fyrirtæki. Lagt sé upp úr því að búnaðurinn sé notendavænn, úrvinnsla gagna víðtæk og sjónræn og til staðar á margvíslegum tækjum og auðveldi fólki þannig að vinna saman að verkefnum. Félagið hefur verið skráð í kaup- hallarkerfi Nasdaq frá árinu 2010. En þótt höfuðstöðvarnar séu í Bandaríkjunum þá sagði Hjálmar Gíslason í tilkynningu um söluna á Datamarket að Qlik héldi norrænum einkennum sínum og að engin skörun væri þar á fyrirtækjamenningu. HVERS KONAR FYRIRTÆKI ER QLIK? FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM fyrir fyrirtæki sem velti 180 milljón krónum á síðasta ári og skilaði tapi,“ sagði sá. Annar dómnefndarmaður sagðist hafa daðrað við að nefna sem bestu viðskipti árs- ins endurtekin met í fjölda ferðamanna til landsins og stóraukna kortaveltu erlendra ferðamanna. „En ég ætla samt að tilnefna kaup upplýsingatæknifyrirtækisins Qlik á öllu hlutafé í Datamarket. Það er stórkost- legur árangur fyrir stofnendur fyrirtækis- ins og hvatning fyrir íslensk sprotafyrirtæki og frumkvöðla.“ Enn einn benti á að stofnendur Datamark- et hefðu byggt upp fyrirtæki sitt við erfi ðar aðstæður og í gjaldeyrishöftum eftir hrun og hefðu selt með góðum hagnaði. „Um leið hefur Datamarket gegnt mikilvægu samfélags- legu hlutverki á Íslandi við að gera fl ókin töl- fræðileg gögn aðgengileg og skiljanleg fyrir almenning.“ Með hugvit og úthald að vopni Jafn eftirtektarverður árangur frumkvöðuls með fyrirtæki sitt vekur athygli enda fór það svo að Hjálmar Gíslason var líka valinn við- skiptamaður ársins af dómnefnd Markaðar- ins og Stöðvar 2 og er tekinn tali í miðopnu blaðsins. „Frábært að sjá frumkvöðul fylgja eftir góðri hugmynd alla leið í exit með stæl,“ sagði einn. „Hjálmar Gíslason ákvað í upphafi hrunsins að stofna sprotafyrirtæki sem ynni gagnlegar upplýsingar úr gögnum sem myndast innan fyrirtækja. Fyrirtækið hefur vaxið jafnt og þétt og fékk Vaxtarsprotann 2014,“ segir annar og bendir á að eigendur Datamarket hafi hagnast vel við söluna til stórfyrirtæk- is á alþjóðavettvangi sem velt hafi sem nemi 58 milljörðum króna á síðasta ári. „Hjálmar er nörd af guðs náð og hefur með hugvit og úthald að vopni náð að byggja upp á Íslandi fyrirtæki með sérstöðu á alþjóðavettvangi.“ Viðskipti ársins
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.