Fréttablaðið - 27.12.2014, Síða 30
| 2 27. desember 2014 | miðvikudagur
S
ala Datamarket til Qlik Technolog-
ies í Bandaríkjunum sem gekk í
gegn í október síðastliðnum var
með nokkrum yfi rburðum valin
viðskipti ársins af dómnefnd
Markaðarins og Stöðvar 2. Qlik er
fyrirtæki skráð á markað Nasdaq í New York
í Bandaríkjunum en er sænskt að uppruna og
enn með starfsemi þar í landi.
Í skýrslu Qlik til kauphallarinnar í New
York kemur fram að kaupverðið á Datamark-
et hafi verið 11,8 milljónir Bandaríkjadala
en geti hækkað um 1,7 milljónir dala í 13,5
milljónir, náist ákveðin markmið og áfangar
í þróun sem lýst sé í kaupsamningi. Í krónum
talið hleypur upphæðin frá um 1.440 millj-
ónum til nálægt 1.660 milljóna króna, svona
eftir því við hvaða gengi er miðað. Miðað við
þær fjárhæðir gætu um 390 til 450 milljón-
ir króna komið í hlut Hjálmars Gíslasonar,
framkvæmdastjóra og stofnanda Datamarket.
Hann stofnaði fyrirtækið árið 2008 og lagði þá
upp með „tvær hendur tómar og eigið hyggju-
vit“, eins og því hefur verið lýst. Þegar kom
að sölu var hlutur Hjálmars í fyrirtækinu 27
prósent og var hann næststærsti hluthafi nn.
Viðræður hófust fyrir ári
Stærsti hluthafi nn var hins vegar fjárfesting-
arsjóðurinn Frumtak sem fór með 40 prósenta
hlut og fær því í sinn hlut 580 til 660 milljón-
ir króna. Þá átti fjárfestingarfélagið Investa
7,6 prósent (fær 110 til 125 milljónir), Meson
Holding, fjárfestingarfélag Vilhjálms Þor-
steinssonar, 5,7 prósent (82 til 95 milljónir), og
Frosti Sigurjónsson alþingismaður rúm fjögur
prósent (fær þá 57 til 67 milljónir króna).
Þegar salan var kynnt greindi Hjálmar
Gíslason frá því að þjónusta fyrirtækisins
hér á landi myndi ekki breytast og að fjár-
fest yrði í frekari þróun hér. „Við kynntumst
þessu fyrirtæki, Qlik Technologies, fyrir um
það bil ári síðan,“ sagði hann í viðtali við Stöð
2 1. nóvember síðastliðinn. „Þeir höfðu áhuga
á tækni sem við höfðum byggt upp. Við höfum
allt þetta ár verið í þessum viðræðum sem
leiddu til þessarar sölu.“
Hvatning fyrir aðra
Einn dómnefndarmanna sagði söluna á Data-
market til Qlik sýna hvaða gríðarlegu verð-
mæti liggi í íslensku hugviti og þeim krafti
sem búi í vel menntuðu fólki sem vinni að því
hörðum höndum að virkja hugvit sitt og skapa
verðmæt hugverk sem séu eftir sótt jafnt hér
heima sem erlendis. Annar sagði „svo sem“
hægt að velja söluna á Datamarket sem bestu
viðskiptin. „1.440 milljónir er gott söluverð
2 Sala Hagamels á hlut í Högum
Fjárfestarnir Hallbjörn Karlsson og Árni
Hauksson seldu í febrúar hlut sinn í Högum,
sem þeir áttu í gegnum félagið Hagamel,
fyrir rúmlega 3,2 milljarða króna. Söluverð
hlutarins var um fjórfalt kaupverð hans. Í
Kjarnanum voru þeir félagar með þessu
sagðir hafa innleyst mesta hagnað einkafjár-
festa eftir bankahrun, en Hagar voru jafnframt
fyrsta fyrirtækið sem skráð var í Kauphöllina
eftir hrun.
Rökstuðningur „Árni Hauksson og Hallbjörn
Karlsson seldu í febrúar 77 milljónir hluta
í Högum á genginu 42. Þeir höfðu keypt
hlutina í sama mánuði þremur árum áður
á genginu 10. Markaðsverðmæti hlutarins
sem þeir seldu var um 3,2 milljarðar króna
en markaðsverð hlutarins var 770 milljónir
þegar hann var keyptur. Þeir Árni og Hall-
björn fjórfölduðu því fjárfestingu sína.“
3 Samkomulag Lands-bankans og slitastjórnar
LBI um lánalengingu
Samkomulag um lengingu á skilmálum
skuldabréfa Landsbankans sem gefin voru út í
október 2009 sem náðist í byrjun desember-
mánaðar er sagt fyrsta skrefið í afnámi
fjármagnshafta. Samkomulagið felur í sér
breytingar á greiðsluferli skuldabréfa að jafn-
virði 226 milljarða króna og lengingu þeirra
frá október 2018 til október 2026.
Rökstuðningur „Þarna var um að ræða gríð-
arlega mikilvægt skref í léttingu hafta – þó
að höftum verði aldrei algjörlega aflétt með
íslensku krónuna. Þetta samkomulag kemst
á listann því sennilega er ekkert eitt sem er
eins skaðlegt viðskiptalífinu og höftin.“
„Afborganir bankans til þrotabús gamla
Landsbankans eru stór hluti af heildarendur-
greiðslum erlendra lána þjóðarbúsins næstu
árin. Með samkomulaginu virðist sem endur-
greiðsluferill erlendra skulda sé í heild orðinn
vel viðráðanlegur.“
Frábært að sjá frumkvöðul fylgja
eftir góðri hugmynd alla leið í sölu
Íslenska fyrirtækið Datamarket var í október selt upplýsingatæknifyrirtækinu Qlik Technologies Inc. í Bandaríkj-
unum fyrir 11,8 til 13,5 milljónir Bandaríkjadala. Sagt stofnað á erfiðum tímum og góður hagnaður innleystur.
ÓLI KRISTJÁN ÁRMANNSSON
olikr@frettabladid.is
2. OG 3. SÆTI Í BESTU VIÐSKIPTUM ÁRSINS
Ferðaþjónustan á Íslandi í heild sinni
„Ferðaþjónustan á Íslandi í heild sinni á rétt
á því að verma toppsætið enda værum við
Íslendingar í mjög slæmri stöðu ef vöxtur
hennar og gjaldeyrissköpun væri ekki það
sem hún er. Vaxtarverkirnir eru þó nokkrir og
svört atvinnustarfsemi og gróðabrask skaða
um stund ímynd ferðaþjónustunnar. En fag-
mennskan fer vaxandi og framtíðin er björt ef
rétt er haldið á spilum.“
Sala á kvóta og skipi Stálskipa
„Hjónin í Stálskipum ákváðu að bregða búi
fyrir aldurs sakir þegar þau seldu kvóta og skip
fyrir um tíu milljarða króna. Söluhagnaður var
gríðarlegur. Þau einbeita sér nú að fjárfesting-
um í fasteignum og rekstri innanlands.“
Sala Framtakssjóðsins á Icelandair
„Kaup Framtakssjóðs Íslands í Icelandair voru
mikið gagnrýnd á sínum tíma og margir drógu
framtíðarmöguleika félagsins í efa. Framtaks-
sjóðurinn seldi síðasta hlut sinn í félaginu á
árinu og var hagnaður af þessum viðskiptum
ríflega 11 milljarðar.“
Kaup Straums á fimmtungshlut í MP banka
„Kaup Straums á lykilhlut í MP voru gerð í
óþökk margra hluthafa MP banka. Þótt enn sé
of snemmt að álykta um ágæti viðskiptanna
virðist sem að Straumur hafi fengið bréfin langt
undir innra virði hlutafjár MP banka. Straumur
er óþægilegur meðeigandi sem mun þrýsta á
nauðsynlega hagræðingu og aukna arðsemi
innan íslenska bankakerfisins.“
Salan á Promens
„Segi það með blendnum hug þó. Þetta var
líklega fín ávöxtun fyrir eigendurna, þ.e.
Framtakssjóðinn og Landsbankann, en af yfir-
lýsingum stjórnenda félagsins að ráða hefðu
þeir þó frekar kosið að ná að fjármagna félagið
til frekari vaxtar, en reyndist það erfitt eða ill-
mögulegt vegna fjármagnshafta.“
Verðtryggð húsnæðislán
„Hagfelld verðbólguþróun og leiðréttingarpakki
stjórnvalda á leiðinni.“
ANNAÐ SEM VAR NEFNT
Sérhæfing Qlik liggur í að matreiða gögn þannig að auðvelt sé að vinna með þau og nota til ákvarðanatöku, að því er
fram kemur á vef fyrirtækisins. Qlik var stofnað í Lundi í Svíþjóð árið 1993 og ætlaði sér þá að hjálpa fyrirtækjum, stórum
(jafnvel risum á heimsvísu) sem smáum, að leysa vandamál. Félagið segir að núna reiði um 33 þúsund viðskiptavinir í yfir
hundrað löndum sig á þjónustu þess. „Við höfum verið í fararbroddi í að leita leiða til að breyta gögnum yfir í nytsamar
upplýsingar,“ segir í kynningarefni Qlik og vísað til þess að hugbúnaður félagsins, Qlik View, sé leiðandi á meðal gagnaúr-
vinnslutækja fyrir fyrirtæki. Lagt sé upp úr því að búnaðurinn sé notendavænn, úrvinnsla gagna víðtæk og sjónræn og til
staðar á margvíslegum tækjum og auðveldi fólki þannig að vinna saman að verkefnum. Félagið hefur verið skráð í kaup-
hallarkerfi Nasdaq frá árinu 2010. En þótt höfuðstöðvarnar séu í Bandaríkjunum þá sagði Hjálmar Gíslason í tilkynningu um
söluna á Datamarket að Qlik héldi norrænum einkennum sínum og að engin skörun væri þar á fyrirtækjamenningu.
HVERS KONAR
FYRIRTÆKI
ER QLIK?
FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
fyrir fyrirtæki sem velti 180 milljón krónum
á síðasta ári og skilaði tapi,“ sagði sá.
Annar dómnefndarmaður sagðist hafa
daðrað við að nefna sem bestu viðskipti árs-
ins endurtekin met í fjölda ferðamanna til
landsins og stóraukna kortaveltu erlendra
ferðamanna. „En ég ætla samt að tilnefna
kaup upplýsingatæknifyrirtækisins Qlik á
öllu hlutafé í Datamarket. Það er stórkost-
legur árangur fyrir stofnendur fyrirtækis-
ins og hvatning fyrir íslensk sprotafyrirtæki
og frumkvöðla.“
Enn einn benti á að stofnendur Datamark-
et hefðu byggt upp fyrirtæki sitt við erfi ðar
aðstæður og í gjaldeyrishöftum eftir hrun og
hefðu selt með góðum hagnaði. „Um leið hefur
Datamarket gegnt mikilvægu samfélags-
legu hlutverki á Íslandi við að gera fl ókin töl-
fræðileg gögn aðgengileg og skiljanleg fyrir
almenning.“
Með hugvit og úthald að vopni
Jafn eftirtektarverður árangur frumkvöðuls
með fyrirtæki sitt vekur athygli enda fór það
svo að Hjálmar Gíslason var líka valinn við-
skiptamaður ársins af dómnefnd Markaðar-
ins og Stöðvar 2 og er tekinn tali í miðopnu
blaðsins. „Frábært að sjá frumkvöðul fylgja
eftir góðri hugmynd alla leið í exit með stæl,“
sagði einn.
„Hjálmar Gíslason ákvað í upphafi hrunsins
að stofna sprotafyrirtæki sem ynni gagnlegar
upplýsingar úr gögnum sem myndast innan
fyrirtækja. Fyrirtækið hefur vaxið jafnt
og þétt og fékk Vaxtarsprotann 2014,“ segir
annar og bendir á að eigendur Datamarket
hafi hagnast vel við söluna til stórfyrirtæk-
is á alþjóðavettvangi sem velt hafi sem nemi
58 milljörðum króna á síðasta ári. „Hjálmar
er nörd af guðs náð og hefur með hugvit og
úthald að vopni náð að byggja upp á Íslandi
fyrirtæki með sérstöðu á alþjóðavettvangi.“
Viðskipti ársins