Fréttablaðið - 27.12.2014, Síða 32
| 4 27. desember 2014 | miðvikudagur
Verstu/umdeildustu viðskipti ársins
Sala Landsbankans á hlut sínum
í Borgun hlýtur þann vafasama
heiður að vera talin verstu, eða
umdeildustu, viðskipti ársins að
mati dómnefndar Markaðarins.
Tilkynnt var um söluna 25.
nóvember síðastliðinn, en 2.184
milljónir króna fengust fyrir
31,2 prósenta eignarhlut bank-
ans í Borgun.
Hluturinn var
hvorki auglýstur
til sölu, né var
söluferlið opið.
Stjórnmálamenn
gagnrýndu
vinnulagið og
Steinþór Pálsson
bankastjóri var í kjölfarið kallað-
ur fyrir efnahags- og viðskipta-
nefnd Alþingis þar sem hann
varði söluna og kvað ásættanlegt
verð hafa fengist fyrir hlutinn.
Hagnaður bankans af sölunni nam
tæpum milljarði króna.
Í umræðu og fréttaflutningi
af sölunni voru gerðar athuga-
semdir við að í hópi kaupenda eru
fjárfestar tengdir Bjarna Bene-
diktssyni fjármálaráðherra fjöl-
skylduböndum, feðgarnir Einar
Sveinsson og Benedikt Einarsson.
Einar er föðurbróðir Bjarna.
Bankinn var minnihlutaeigandi
í fyrirtækinu og gat lítið beitt sér
vegna úrskurðar Samkeppniseft-
irlitsins, sem um miðjan desem-
ber upplýsti að lögð hefði verið
ríflega eins og hálfs milljarðs
króna sekt á bankana og greiðslu-
kortafyrirtækin vegna samráðs
á greiðslukortamarkaði. Lands-
bankinn seldi líka vegna málsins
hlut sinn í Valitor á 3,6 milljarða
króna.
„Á tyllidögum segja stjórnend-
ur ríkisbankans að þeir vilji vera
í fararbroddi hvað varðar ábyrgar
fjárfestingar á Íslandi. Ógegnsætt
söluferli á greiðslumiðlunarfyrir-
tækinu Borgun hefur hins vegar
valdið bankanum orðsporshnekki,
meðal annars vegna þess að alls-
endis er óvíst hvort bankanum
hafi tekist að hámarka verðmæti
eignarhlutar síns,“ segir einn
dómnefndarmaður í umsögn sinni
og bendir á að bankarnir hafi ekki
verið þekktir fyrir að selja eignir
lágt á undanförnum árum, jafnvel
þótt þeir hafi verið undir þrýst-
ingi Samkeppniseftirlitsins um
að losa eignir. „Því kemur þessi
leyndarhyggja Landsbankans á
óvart.“
Annar sagði hafa verið erfi tt að
fi nna verstu viðskiptin að þessu
sinni. „En leiðinlegustu viðskipt-
in eru örugglega sala Landsbank-
ans á hlut sínum í Borgun, stjórn-
málamenn og vissir fjölmiðlar
hafa reynt að gera þetta tor-
tryggilegt og málið verið blásið
út. Landsbankinn fékk gott verð
fyrir hlutinn en það hefur alveg
gleymst í umræðunni. Hagnaður
bankans af sölunni, rúmur millj-
arður, rennur sennilega beint í
ríkissjóð í næstu arðgreiðslu. En
það er ekki sama hver kaupir að
mati sumra og málið hefur valdið
Landsbankanum óþarfa armæðu.
En svona gerist þegar stjórnmála-
menn ætla að fara að skipta sér af
viðskiptum,“ segir sá og telur end-
urspeglast í málinu öllu að ekki sé
Landsbankanum til framdráttar
að vera alfarið í eigu ríkisins.
Dómnefndarfólk var ekki ein-
huga í mati sínu á ástæðum þess
að viðskiptin hafi verið slæm.
Þannig töldu sumir verðið hafa
verið ásættanlegt en aðrir of
lágt. Allir voru þó sammála um
að bankinn hefði orðið illa úti í
umræðunni eftir viðskiptin. „Við-
skiptin á Borgun eru seljanda og
kaupanda í hag en það er svodd-
an fnykur af slíkum viðskiptum
að manni líkar ekki. Svona við-
skiptahættir væru best geymdir
í fortíð,“ segir einn.
GREIÐSLUMÁTI KYNNTUR Haukur Oddsson,
forstjóri Borgunar, keypti sér pylsu þegar
snertiposinn var kynntur á Bæjarins bestu í
október 2012.
STEINÞÓR PÁLSSON
Ógagnsætt söluferli sagt valda
Landsbankanum orðsporshnekki
Flestir álitsgjafa Markaðarins hnutu um sölu Landsbankans á hlut sínum í Borgun. Leynd og ógagnsætt söluferli
er sagt skaða bankann. Þá hvílir yfir skuggi samráðssektar sem lögð var á fyrirtæki á greiðslukortamarkaði.
2 Stofnun sjónvarpsstöðvanna Miklagarðs og Bravó
Sjónvarpsstöðvar Konunglega kvikmyndafélags-
ins, sem Sigmar Vilhjálmsson
fór fyrir, hófu göngu sína um
miðjan mars á þessu ár. Þær
voru ekki langlífar því öllum
starfsmönnum var sagt upp í
apríllok. Um miðjan maí var
tilkynnt um yfirtöku 365 á
stöðvunum og að Mikligarður
yrði lagður niður.„Ekki góð
hugmynd fyrir framleiðslufyrir-
tæki að fara í samkeppni við
viðskiptavini sína og þá á alveg
eftir að ræða óraunhæfar tekju-
og kostnaðaráætlanir,“ segir
í umsögn eins dómnefndar-
manns. „Algjört vanmat frá
upphafi og vart hægt að klúðra
hlutum með meiri bravúr,“ segir annar. „Fá þó prik
fyrir að viðurkenna ruglið hratt og bakka út.“
3 Skuldaleiðrétting heimilanna
Allmargir
dómnefndar-
menn
nefndu
skuldaleið-
réttingu
ríkisstjórnar-
flokkanna
sem mesta
afleik ársins á viðskiptasviðinu. „Ef það átti að eyða
80 milljörðum þá hefði verið ágætt að setja þá
peninga til dæmis í nýjan Landspítala sem hefði
nýst landsmönnum öllum,“ sagði einn. Annar
benti á að með aðgerðinni hafi miklar fjárhæðir
runnið að stórum hluta til fólks sem ekki hafi
þurft á þeim að halda. „Fjármunina hefði betur
mátt nýta til að lækka skuldir ríkissjóðs (og þar
með álögur á einstaklinga og fyrirtæki) og til að
renna styrkari stoðum undir heilbrigðiskerfið og
menntakerfið,“ sagði sá.
ÖNNUR OG ÞRIÐJU VERSTU VIÐSKIPTI ÁRSINS
Viðskiptin með Fjarðarlax og
Skeljung
„Fólk á einfaldlega ekki að færa sig
hinum megin borðsins í miðjum við-
skiptum.“
Kaup Björns Leifssonar á hlut í DV
„Viðskipti Björns Leifssonar hafa verið
umdeild og áskriftum að blaðinu fækk-
aði umtalsvert í kjölfarið.“
Ákvörðun þeirra sem ekki stóðu
við tilboð í hlutabréfaútboði
HB Granda
„Bréfin hafa síðan hækkað um ríflega
þriðjung (eru nú 37,5 en útboðsverðið
var 27,7).“
Uppbygging ríkisins á innviðum í
Helguvík
„Hvenær ætla stjórnvöld að hætta að
henda peningum í óskuldbindandi og
oft raunar mjög ólíkleg plön erlendra
fyrirtækja og læra að treysta markaðn-
um fyrir því að leysa þessi mál?“
Baðhúsið/Reginn
„Of mikið klúður frá A til Ö … sjálfsagt
af beggja hálfu. Sýnir hversu lítið rými
fyrirtæki hafa í viðskiptum við stóru
eignarhaldsfélögin. Báðir hafa mis-
reiknað sig illa í þessu öllu saman.“
Viðskipti með innflutta matvöru sem
ekki urðu vegna verndarstefnu
„Öll viðskiptin með innflutta mat-
vöru sem neytendur misstu af vegna
ofurtolla og innflutningshamla. Líka
viðskiptin sem íslensk fyrirtæki misstu af
í útlöndum af svipuðum ástæðum; MS
hefði til dæmis getað selt ennþá meira
skyr á Evrópumarkaði ef ekki væri fyrir
háa tolla.“
Flutningur Fiskistofu til Akureyrar
„Skólabókardæmi um hvernig á alls
ekki að gera hlutina — gamaldags
pólitík í sinni verstu mynd. Framsókn
sjálfri sér lík, en dapurlegt ef Sjálf-
stæðisflokkurinn ætlar að kóa með.“
ANNAÐ SEM VAR NEFNT
ÓLI KRISTJÁN ÁRMANNSSON
olikr@frettabladid.is
LANDSBANKINN Í JÓLABÚNINGI Fólk á hraðferð í jólaönnum við höfuðstöðvar Landsbankans í Austurstræti í Reykjavík. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
SIGMAR
VILHJÁLMSSON
Hagnaður
bankans af
sölunni, rúmur millj-
arður, rennur senni-
lega beint í ríkissjóð
í næstu arðgreiðslu.
En það er ekki sama
hver kaupir að mati
sumra og málið
hefur valdið Lands-
bankanum óþarfa
armæðu.