Fréttablaðið - 27.12.2014, Page 6
27. desember 2014 LAUGARDAGUR| FRÉTTIR | 6
VINNUMARKAÐUR Samtök atvinnu-
lífsins gagnrýna stefnu stjórn-
valda að taka til sín sífellt stærri
hluta af tryggingagjaldi sem lagt
er á öll greidd laun í landinu.
Frá árinu 2008 hefur þessi
skattur hækkað um rúm 3 prósent
af launum. Frá síðustu alþingis-
kosningum er hækkun gjaldsins
um níu milljarðar króna á ári.
Björgólfur Jóhannsson, for-
maður SA, telur stjórnvöld ekki
standa við gefið loforð í þessum
efnum. „Atvinnulífið tók á sig
verulega ábyrgð í kjölfar efna-
hagshrunsins árið 2008. Þá tók
atvinnulífið á sig hækkun trygg-
ingagjalds vegna aukins atvinnu-
leysis. Það var þá gert með lof-
orði þáverandi stjórnvalda um að
þessi gjöld myndu lækka þegar
kæmi til lækkandi atvinnuleys-
is. Nú er raunin að atvinnuleysi
mælist mjög lágt og því ætti
tryggingagjald að lækka í sam-
ræmi við það. Við það er ekki
staðið, svo einfalt er það,“ segir
Björgólfur.
Atvinnuleysi í nóvember var 3,1
prósent. Samanburður mælinga
Hagstofunnar frá 2013 og 2014
sýnir að bæði atvinnuþátttaka og
hlutfall starfandi fólks hefur auk-
ist samhliða minnkandi atvinnu-
leysi. Leita þarf aftur til október
2008 til þess að finna lægra hlut-
fall atvinnuleysis
Að mati SA er gjaldið slæmur
gjaldstofn til að fjármagna önnur
útgjöld ríkisins þar sem það dreg-
ur úr styrk fyrirtækja til að ráða
nýtt starfsfólk. - sa
Samtök atvinnulífsins gagnrýna óbreytt tryggingagjald þrátt fyrir minnkandi atvinnuleysi á landinu:
Slæmur gjaldstofn til að fjármagna útgjöld
BESSASTAÐIR Hefðbundið er að hand-
hafar forsetavalds, forseti Alþingis,
forsætisráðherra og forseti Hæsta-
réttar, séu sæmdir fálkaorðunni og
að athöfnin fari fram á Bessastöð-
um. Ekki er hefð fyrir því að til-
kynnt sé sérstaklega um veitinguna
heldur sé hún skráð á heimasíðu
forsetaembættisins. Þetta kemur
fram í tilkynningu frá skrifstofu
forseta Íslands til fjölmiðla. Sami
háttur hefur verið hafður á orðu-
veitingum til sendiherra erlendra
ríkja.
Í tilkynningunni kemur einnig
fram að sá háttur hafi verið hafð-
ur á að fálkaorðan sé veitt tvisvar
á ári, á þjóðhátíðardaginn, 17. júní,
og nýársdag, 1. janúar. Þeim veit-
ingum séu fjölmiðlar látnir vita
af. Fáeinar orðuveitingar séu utan
þessara tveggja daga og hafi ekki
þótt ástæða fyrir því að tilkynna
þær sérstaklega.
Þann 13. desember síðastliðinn
var Sigmundi Davíð Gunnlaugssyni
forsætisráðherra veittur stórkross
hinnar íslensku fálkaorðu og Einari
K. Guðfinnssyni, forseta Alþingis,
veittur stórriddarakross degi áður.
Það spurðist af orðuveitingunni
núna um jólin og vakti hún nokkur
viðbrögð í samfélaginu þegar frétt-
ir af henni bárust á vefmiðlum.
Allir forsætisráðherrar lýðveldis-
ins, að fjórum undanskildum, hafa
hlotið orðuna. Þeir sem hlutu hana
ekki eru feðgarnir Hermann Jónas-
son og Steingrímur Hermannsson
auk þeirra Benedikts Gröndal og
Jóhönnu Sigurðardóttur.
Stig fálkaorðunnar eru fimm
talsins. Hið fyrsta er riddara-
krossinn og flestir orðuþegar eru
sæmdir honum. Næst kemur stór-
riddarakross, þar næst stórridd-
arakross með stjörnu og loks stór-
kross. Æðsta stig orðunnar er keðja
ásamt stórkrossstjörnu en hún er
eingöngu borin af þjóðhöfðingjum.
„Íslendingar hafa ekki mikla
hefð fyrir svona vegtyllum og lengi
framan af þótti þetta vafasamur
heiður,“ sagði Guðmundur Hálf-
dánarson sagnfræðingur í hádegis-
fréttum Bylgjunnar. Það þótti bera
vott um konungshollustu að vera
sæmdur orðunum.
Fálkaorðunni var komið á fót í
opinberri heimsókn Kristjáns X.
Danakonungs árið 1921 og var
konungur fyrsti stórmeistari orð-
unnar. Sá titill er nú forsetans.
„Þetta er auðvitað ákveðin arf-
leifð frá eldri tíma og sérstaklega
þessi riddaranafnbót sem tengist
þessu og þessi mismunandi stig
regluverksins. Það kannski hljóm-
ar svolítið einkennilega nú til
dags að sumir séu á einhvern hátt
merkilegri en aðrir,“ segir Guð-
mundur Hálfdánarson og bætir við
að ræturnar liggi í löngu horfnu
samfélagi. johannoli@frettabladid.is
Hefðbundið að veita
orðu án tilkynningar
Erlendir sendiherrar, ræðismenn Íslands og handhafar forsetavalds eru á meðal
þeirra sem hljóta fálkaorðuna utan hinna reglubundnu daga. Sagnfræðingur segir
orðuna hafa verið umdeilda og eiga rætur að rekja til samfélags sem sé horfið.
SIGMUNDUR DAVÍÐ
Forsætisráðherra var
veittur stórkross þann
13. desember.
FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
TÆKNI Fyrirtækin Microsoft og
Sony vinna nú hörðum höndum við
að laga netvafra sína í leikjatölv-
unum Xbox og PlayStation eftir að
hópur tölvuþrjóta sem kallar sig
Lizard Squad réðst á tölvukerfi
fyrirtækjanna um helgina. Hóp-
urinn segir að árásin eigi að vera
hvatning fyrir fyrirtækin til að
uppfæra öryggiskerfi sín.
Til að fá sem mest út úr leikja-
tölvum sínum þurfa menn að tengj-
ast netinu. Það var ekki hægt eftir
árásina. - þij
Árás á Sony og Microsoft:
Vilja uppfært
öryggi á Xbox
AF VETTVANGI Fimm voru fluttir slasaðir á sjúkrahús ýmist með reykeitrun eða
brunasár. FRÉTTABLAÐIÐ/AFP
SVÍÞJÓÐ Brennuvargur kveikti í mosku í sænska bænum Eskilstuna á
jóladag. Á annan tug manns var við bænir þegar kviknaði í og særðust
fimm. Heimildir herma að eldsprengju hafi verið kastað í moskuna.
Enginn hefur verið handtekinn vegna atviksins.
Íkveikjan varð í kjölfar mikilla deilna á sænska þinginu um hvort
herða eigi innflytjendalöggjöf. Margir íbúar Eskilstuna eru af erlendu
bergi brotnir en fyrr í ár brutust út átök milli nýnasista og innflytj-
enda í bænum. - jóe
Fimm fluttir á sjúkrahús eftir að kveikt var í sænskri mosku:
Hiti að færast í innflytjendamál
HAWAII Barack Obama Banda-
ríkjaforseti fagnaði því að stríðið í
Afganistan tæki brátt enda í kvöld-
verði í herstöðvum bandaríska sjó-
hersins á Hawaii á jóladag.
„Við höfum verið í stöðugu stríði
nú í meira en 13 ár,“ sagði Obama
við hermenn og fjölskyldur þeirra
í herstöðinni við Kaneohe-flóa en
hann lofaði því að hernaðinum í
Afganistan lyki í næstu viku.
„Þökk sé hinni ótrúlegu þjón-
ustu bandaríska hersins, þá hafa
Afganar nú tækifæri til að endur-
byggja land sitt. Við erum óhult-
ari. Landið verður ekki uppspretta
hryðjuverkaárása á ný,“ sagði
hann.
Forsetinn, sem var viðstaddur
kvöldverðinn ásamt forsetafrúnni,
Michelle Obama, sagði að Banda-
ríkin stæðu samt enn í erfiðum
verkefnum víðs vegar um heim,
meðal annars í baráttunni við Ísl-
amska ríkið í Írak og Sýrlandi.
„Við erum enn með fólk í Afgan-
istan sem er að hjálpa afgönsku
öryggissveitunum,“ sagði Obama.
„Við erum með fólk í Afríku sem
berst gegn ebólunni og augljóslega
erum við með fólk á verði alls stað-
ar um heiminn.“
Barack Obama snæddi kvöldverð með hermönnum á jóladag á Hawaii:
Segir þrettán ára stríð á enda
BARACK OG MICHELLE OBAMA
Forsetahjónin snæddu kvöldverð með
bandarískum hermönnum við Kaneohe-
flóa á jóladag. MYND/AFP
BJÖRGÚLFUR JÓHANNSSON For-
maður SA.
Íslendingar hafa ekki
mikla hefð fyrir svona
miklum vegtyllum og
lengi framan af þótti þetta
vafasamur heiður.
Guðmundur Hálfdánarson,
sagnfræðingur.