Fréttablaðið - 27.12.2014, Page 46

Fréttablaðið - 27.12.2014, Page 46
KYNNING − AUGLÝSINGFerðir LAUGARDAGUR 27. DESEMBER 20144 Eitt af því leiðinlegasta sem getur hent á ferðalagi er að standa á flugvelli í fjarlægu landi og finna hvergi töskurnar, jafnvel þótt það verði góð saga til að segja frá síðar. En þó að við höfum öll heyrt slíkar sögur eru líkurnar á að flugfélag týni farangri merkilega litlar ef marka má traveltips.usatoday.com. Aðeins eins prósents líkur eru á því að stórt flugfélag týni töskum. Merkingin sem segir í hvaða flug taskan á að fara getur skemmst svo ekki er hægt að lesa eða skanna hana inn. Ef þú hreinlega gleymir að kippa einni tösku af bandinu þegar þú ferð af flugvellinum fer hún í „tapað-fundið“ á vellinum þar sem hægt er að vitja hennar. Mannleg mistök geta einnig orðið til þess að taska fer ekki á réttan stað. Starfs- maður gæti stimplað inn rangan áfangastað við innritun, taska gæti lent á röngu færibandi og þar með í aðra flugvél. Ef það gerist kemur flug- félagið töskunni á réttan áfangastað. Merktu töskuna þín vandlega með nafni og síma, netfangi og heim- ilisfangi, notaðu litríkar merkingar svo aðrir farþegar taki þína tösku síður í mis- gripum, mættu tímanlega í innritun svo síður verði fljótfærnismistök, gakktu úr skugga um að töskurnar hafi verið merktar réttum áfanga- stað. Gott er að eiga mynd af töskunum á símanum til að sýna ef leita þarf að töskunni. Forðastu að bóka tengiflug sem tæpt er að ná, það eykur líkurnar á að taskan nái ekki milli véla í tíma. www.traveltips.usatoday.com TÝNDAR TÖSKUR BLYSFÖR Í ÖSKJUHLÍÐ Ferðafélag barnanna í samstarfi við Ferðafélag Íslands og Útivist, stendur fyrir stuttri en skemmti- legri göngu um Öskjuhlíð í dag. „Við söfnumst saman við Nauthól í Nauthólsvík klukkan 17.30 þar sem allir geta fengið ókeypis kyndla,“ segir Brynhildur Ólafs- dóttir fararstjóri. Gangan hefur verið farin síðustu ár og ávallt er vel mætt. „Þetta hafa verið milli hundrað og tvö hundruð manns,“ segir Brynhildur enda er gangan ókeypis. Gengið er frá Nauthóli og upp í Öskjuhlíðina. „Það er sérstaklega gaman að ganga í myrkrinu inn í skóginn með kyndlana. Þá myndast skemmtilegir skuggar og svo höfum við alltaf verið svo heppin að finna jólasveina í skóginum sem spjalla við okkur og syngja.“ SVÖRT TÍÐ HJÁ NORSKUM HÓTELUM Miklu minni eftirspurn hefur verið eftir hótelherbergjum í Ósló, Þrándheimi, Bergen og Stavanger í haust en búist var við. Samtímis hefur hótelherbergjum fjölgað mikið og verðið hefur lækkað. Það þykir ekki gott fyrir nýju hótelin. Það hefur verið svört tíð í haust fyrir hótelbransann skrifar netmiðillinn VG. Allra verst var þetta hjá hótelum í Kristansund þar sem var 30% fækkun gesta miðað við sama tíma í fyrra. Kristiansund er á vesturströnd Noregs. Margir eru svekktir yfir hversu mikið hefur verið byggt af hót- elum en það getur haft neikvæð áhrif á markaðinn. Reyndar hefur tíðin verið best nyrst í landinu í Bodø og Tromsø þar sem tókst að fylla hótelin að tveimur þriðju. Boðið var upp á mun lægra verð á herbergjunum en venjulega á þessum tíma og var munurinn 4,6%. Hóteleigendur eru ekki hrifnir af lækkun verðsins en það ræðst auðvitað af eftirspurn. VIÐ SKUTLUM ÞÉR! *Miðast við að keyptur sé miði fram og til baka á: 3.500 kr. 1.750 kr.* FYRIR AÐEINS Frí þráðlaus internet - tenging í öllum bílum Ferðatími u.þ.b. 45 mínútur Alltaf laus sæti Alltaf ferðir Hagkvæmur kostur Umhverfisvænt BSÍ - Umferðarmiðstöðin 101 Reykjavík 580 5400 main@re.is • www.re.is Skannaðu strikamerkið með snjallsímanum og kynntu þér áætlunina. Kauptu miða núna á www.flugrutan.is Áætlunarferðir Flugrútunnar eru í tengslum við allar komur og brottfarir flugvéla um Keflavíkurflugvöll.

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.