Fréttablaðið - 27.12.2014, Page 66
27. desember 2014 LAUGARDAGUR| HELGIN | 34
Svíþjóð Eistland
Lettland
Litháen
Rússl.
Pólland
Þý
sk
al
.
Tékkland Slóvakía
Austurríki
Ungverjaland Rúmenía
Moldova
Úkraína
Hvíta-
Rússland
Rússland
EYSTRA-
SALT
SVARTA-
HAF
Krím
Kíev
Donetsk
Moskva
Minsk
Vilníus
Ríga
Tallín
Varsjá
PÓLLAND-LITHÁEN 1619 Hvítu línurnar sýna útlínur núverandi ríkja
Laust fyrir miðjan desember fór ég í nokkurra daga heimsókn til Vilníus, höfuðborgar Litháens, að horfa á leikhús og halda upp á afmæli. Litháar eru af einhverjum ástæðum sem enginn kann að skýra
í fremstu röð í heiminum í leikhúslífi, við
Íslendingar höfum fengið smjörþefinn af því
með sýningum litháíska leikstjórans Rimas
Tuminas sem setti upp einar fimm sýningar
í Þjóðleikhúsinu kringum aldamótin síðustu.
Á öðrum sviðum er Litháen svo sem ekki
í fremstu röð, enda landið lítið og fámennt –
þar búa rétt tæplega þrjár milljónir manna
sem þýðir að Litháar eru í 35. sæti yfir þjóð-
ir Evrópu. Að stærð er Litháen ögn ofar á
lista en þó bara í 27. sæti, landið er ekki tveir
þriðju af stærð Íslands, svo dæmi sé tekið.
Þar sem ég sprangaði um götur Vilníus fór
ekki hjá því að ég fyndi hve Litháar hafa
miklar áhyggjur af smæð landsins, nú ríkir
þar nefnilega mikill ótti við Rússa, lands-
menn telja að í grimmri örvæntingu sinni
yfir fallandi veraldargengi gæti Vladimír
Pútín átt það til að reyna að gleðja landa
sína með því að slá um sig í vestri, og víst
er að hinn fámenni litháíski her yrði honum
auðveld bráð ef Litháar hefðu ekki stigið það
mikilvæga skref að ganga í NATO árið 2004.
Og Litháar mega ekki til þess hugsa að lenda
aftur á rússnesku yfirráðasvæði, þeir tóku
sér sjálfstæði árið 1991 eftir að hafa verið
undir rússneskum járnhæl öldum saman og
bæði keisarar og seinna kommúnistar gerðu
sitt ýtrasta til að bæla niður sjálft þjóðerni
Litháa og gera úr þeim Rússa. Þegar ég var
þarna á ferð höfðu Litháar kallað út sinn
litla her til að sýna Pútín að þeir myndu
berjast fram í rauðan dauðann ef hann sendi
skriðdreka sína af stað. Sem betur fer er lík-
lega lítil raunveruleg hætta á því og Litháar
geta því aftur farið að helga sig hinu helsta
áhyggjuefni sínu, sem er hvernig stendur á
því að nágrannar þeirra bæði Lettar og Eist-
ar hafa unnið Eurovision en þeir ekki.
Nú skildist mér að þeir ætluðu að gera
úrslitatilraun til að vinna!
Tvískinnungur í sögunni
Auðvitað á maður ekki að fella dóma um fólk
og hvað þá þjóðir eftir aðeins nokkurra daga
kynni. En þessa daga í desember sýndust
mér Litháar allt í senn prúðir, kurteisir og
viðkunnanlegir; þeir voru ekki uppáþrengj-
andi, því hvernig mætti örlítil þjóð sem
lengi hefur verið verið pínd af stórveldi vera
uppáþrengjandi og oflætisfull? Hún lærir
að lifa af og fara sínar eigin leiðir ekki með
gassagangi.
En Litháar leyna raunar á sér. Þessi litla
þjóð í þessu litla landi (þótt Litháar sjálfir
séu raunar áberandi hávaxið fólk í holdinu),
hún réð einu sinni yfir stærsta ríki Evrópu
og stýrði þá öðrum þjóðum, þar á meðal
stórum hópum Rússa, af sama þrótti og
Rússar stýrðu þeim seinna – en vissulega þó
ekki af þeirri sömu hörku og Rússar sýndu
þeim. Það ríkir sem sé afar undarlegur tví-
skinnungur í litháískri sögu – Litháen er
smáríkið sem varð stórveldi sem varð aftur
smáríki. Og fyrir þessum flækjum þóttist
ég finna þar sem ég gekk um götur í smá-
borginni Vilníus sem ef til vill kannski hefði
hugsanlega og mögulega getað orðið ein af
stórborgum heimsins.
Þjóðverjar stunda trúboð
Litháar eru ein hinna svokölluðu baltnesku
þjóða sem voru komnar til sögu í Eystra-
saltslöndunum kringum Krists burð; tungu-
málið er þó talið eiga sér töluvert eldri rót.
Baltnesku málin eru skyld hinum slavnesku
en aðskilnaður átti sér stað aftur í grárri
forneskju og fátt þykir nú líkt með þeim.
Meðan Germanir og síðan Slavar og loks
víkingar fóru að mestu framhjá Eystrasalts-
löndunum í sínu veraldarvafstri bjuggu
Litháar nokkuð einangraðir í smáhópum í
sínum þéttu skógum en um árið 1000 fer að
spyrjast til ríkjamyndunar á svæðinu. Það
ríki var ekki burðugt fyrstu áratugina og
aldirnar; Litháar voru lengi skattskyldir
fyrst Dönum en síðan Kænugarðsmönnum,
þeim sem við myndum nú kalla Úkraínu-
menn. Í Kíev eða Kænugarði var risið úkra-
ínskt stórveldi og eitt mesta ríki Evrópu á
11tu öld, þá var hin rússneska Moskva ekki
annað en fáfengilegt smáfurstadæmi. Og
Úkraínumenn höfðu um stund ráð Litháa í
hendi sér.
Laust fyrir 1200 voru Litháar hins vegar
farnir að eflast verulega og í skógunum var
komið til sögunnar feikisterkt riddaralið
sem ekki var lamb að leika sér við, jafnvel
ekki fyrir hina öflugustu nágranna. Eftir að
Mongólar komu svo að austan og knésettu
Kænugarðsmenn um 1240 fóru Litháar að
teygja áhrif sín í austur og suður inn á úkra-
ínsku slétturnar. Í
vestri höfðu þá dúkkað
upp nýir og hættulegir
óvinir, þýskar ridd-
arareglur herskárra
bráðdrepandi munka
sem höfðu á endanum
lagt undir sig Eist-
land og Lettland og
vildu nú Litháen líka,
og tókust þungbrynj-
aðir riddarar á stórum
stríðsfákum á í skóg-
unum næstu áratug-
ina. Þjóðverjar töldu
sig stunda trúboð ekki
síður en landvinn-
inga, það merkilega
við Litháa var nefni-
lega að þeir voru enn
heiðnir, sem kallað
var, því þeir höfðu
ekki undirgengist
kristindóminn einir
þjóða í Evrópu fyrir
utan samískar þjóðir
lengst í norðri. Í birki-
skógunum þéttu voru
gamlir frjósemisguðir
enn við hestaheilsu og
kunnastur þeirra þrumuguðinn Perkūnas
sem gerði vilja Dievas æðstaguðs. Með þá
félaga sér til aðstoðar þurftu Litháar ekki á
Kristi að halda og voru þó ekki verra fólk en
hverjir aðrir.
Alveg óvænt fór nú í hönd stórveldistími
fyrir Litháa þótt fáir væru. Árin 1316-1341
réð þar ríkjum Gediminas nokkur sem kall-
aðist stórhertogi og stofnaði höfuðborgina
Vilníus, Algirdas sonur hans lagði undir sig
Kænugarð 1362 og virtist á góðri leið með
að hirða hina vaxandi Moskvuborg líka þótt
hann léti að endingu staðar numið skammt
frá borginni eftir að hafa sest um hana
tvisvar. Á hans dögum var Litháen líklega
orðið víðlendasta ríki Evrópu þótt Litháar
sjálfir væru ekki nema brot þeirra slav-
nesku þegna sem þeir réðu í austri og suðri.
Jogaíla sonur Algirdasar treysti svo Litháa
enn í sessi þegar hann steig það óvænta
skref 1386 að verða konungur Póllands.
Varla þverfótað fyrir kirkjum
Pólland hafði verið að eflast síðustu aldirn-
ar en nú vildi svo til að konungslaust var í
landinu. Landsmenn höfðu á stundum verið
í nánu sambandi við Ungverja og því völdu
pólskir aðalsmenn Jadwígu hina tíu ára
dóttur Ungverjakóngs í hásætið og þegar
hún var tólf ára var henni valinn að eigin-
manni Jogaíla stórhertogi Litháens. Er þau
gengu í hjónaband var hann 26 ára en hún 12
ára. Ætlun Pólverja var fyrst og fremst að
fá sterka bandamenn gegn þýsku riddara-
munkunum sem herjað höfðu á lendur þeirra
ekki síður en Litháens, þótt Pólverjar hefðu
tekið kristni þegar um árið 1000. Jogaíla
þurfti að kosta því til að taka kristni ásamt
sinni þjóð, svo hann fengi sest í hásætið við
hlið hinnar barnungu Jadwígu. Að sönnu
voru Litháar sagðir blóta í laumi lengi eftir
að þeir voru opinberlega orðnir kristnir,
áfram var heitið á Perkūnas til mannrauna
í áratugi eða
jafnvel aldir, en
eftir að kristindómurinn festi loks sæmi-
legar rætur gerðust Litháar hins vegar jafn
kaþólskir og þeir höfðu verið heiðnir áður,
að minnsta kosti opinberlega. Þegar ég gekk
um Vilníus um daginn var varla þverfótað
fyrir kirkjum og það voru heldur engar smá-
kirkjur, heldur stórar höfuðkirkjur hver á
fætur annarri, oft ekki nema svona 50 metr-
ar á milli þeirra. Kristindómur Litháa kom
ekki í veg fyrir að þeir héldu áfram að elda
grátt silfur við þýsku riddaramunkana, tevt-
ónsku riddarana, sem svo kölluðust núorðið,
en enduðu loks með því að nefnast Prússar.
Frá og með valdatíð Jogaíla og Jadwígu
voru Pólland og Litháen nátengd. Frá miðri
15. öld var litið á þau sem bandalagsríki
tveggja þjóða með sameiginlegan þjóðhöfð-
ingja. Litháar lögðu alltaf mikla áherslu á
að þeir væru í alla staði jafnokar Pólverja
í ríkinu, enda voru það þeir sem höfðu náð
mestöllum lendum hins sameiginlega ríkis í
austri og suðri – einu sinni náðu þeir allt til
Svartahafs. En með tímanum fór litháíski
aðallinn reyndar að taka upp pólska siði og
pólska tungu í vaxandi mæli, ástæðan var
einfaldlega sú að Pólverjar voru mun fjöl-
mennari en Litháar og hlutu því að verða
ráðandi er fram liðu stundir. En lengst af
gættu Litháar sjálfstæðis síns og litháísk
alþýða blandaði aldrei um of geði við hina
pólsku. Árið 1569 voru ríkin formlega sam-
einuð þótt enn væri kveðið á um að þjóðirn-
ar tvær væru sjálfstæðar, þetta skref töldu
Litháar sig verða að stíga til að sporna við
uppgangi hættulegs granna í austri.
Framtíðin virtist björt
Það voru Rússar. Það hafði tekið Rússa
margar aldir að ná sér eftir hervirki Mong-
óla en nú var mannfjöldinn á sléttunum
eystra farinn að segja til sín. Moskva sank-
aði að sér æ fleiri rússneskum hertoga-
dæmum og gerði að sínum. Árið 1547 tók
stórhertoginn Ívan grimmi sér keisaranafn
og þótti skima skörpum augum á sérhverja
landspildu utan landamerkja sinna, rétt eins
og Pútín gerir núna. Athyglisvert er að í Pól-
landi-Litháen voru um tíma uppi hugmyndir
um að koma á nánu bandalagi við Rússa og
Ívani grimma var til dæmis gert ljóst að því
yrði vel tekið ef hann sæktist eftir krúnunni
í sambandsríkinu í vestri. En Ívan hafnaði
því, þar sem hann var of stoltur til að biðja
um konungstign, hann vildi láta ganga bón-
arveg að sér. Og svo mun honum ekki hafa
litist á þá bliku að skilyrði fyrir sameiningu
Rússlands og Póllands-Litháens væri að það
síðarnefnda fengi að halda trúfrelsi sínu.
Meira andans frelsi, þar á meðal trúfrelsi,
þótti nefnilega einkenna Pólland-Litháen en
flest önnur Evrópulönd um þær mundir, og
frelsi hefur sjaldan verið sérstakt áhugamál
Kremlarherra, hvaða hugmyndafræði sem
þeir þykjast annars aðhyllast.
Ekki kom að sinni til stórkostlegs upp-
gjörs milli Rússa annars vegar og Pólverja
og Litháa hins vegar. Í byrjun 17. aldar var
tvíríkið upp á sitt víðáttumesta, sannkallað
stórveldi, og skyggði að stærð og fólksfjölda
á öll stórveldin í Vestur-Evrópu. Framtíðin
virtist björt fyrir hina hávöxnu stoltaralegu
Litháa. Og það sem hefði getað orðið, það er
sú flókna hugsun sem maður rekst á hvar-
vetna á götum Vilníus. Hvernig á því stóð að
þetta gríðarmikla ríki, er virtist svo öflugt,
skyldi svo hrynja til grunna á fáum áratug-
um, og nú stendur eftir smáþjóð númer 35 í
Evrópu, sú saga verður að bíða betri tíma –
og nýs árs.
Gleðilegs nýs árs!
SMÁRÍKIÐ
SEM VARÐ
STÓRVELDI
SEM VARÐ
SMÁRÍKI
FLÆKJUSAGA
Illugi Jökulsson
fór í heimsókn
til Vilníus, höfuð-
borgar Lithá-
ens, og fann
þar fyrir mikl-
um flækju-
sögum, enda
saga landsins
óvenjuleg í
meira lagi.
RIDDARAR Það var svolítill
Indíánabragur á litháísku
riddurunum og dátunum
með fjaðraskrautið sitt.