Dagblaðið Vísir - DV - 22.02.2013, Síða 21
„Við höfum gert mistök“
Viðtal 21Helgarblað 22.–24. febrúar 2013
Obama á móti fangafluginu
Ef marka má orð Luis fyrr í viðtalinu
er það hins vegar alls ekki svo að
hann telji að Bandaríkin geti ekki
gert mistök í samskiptum sínum við
aðrar þjóðir, til dæmis Íslendinga.
Erfitt er hins vegar fyrir diplómat og
sendiherra að viðurkenna mistök
ríkisstjórna sinna ef þeir hafa feng-
ið beinar skipanir um að gera það
ekki og þeim hefur verið sagt hvaða
skoðun ríkisvaldið á að hafa á við-
komandi máli.
Fangaflugið, og þær yfirheyrslu-
og pyndingaaðferðir sem því tengd-
ust, er talið vera eitt hið vafasam-
asta úr arfleifð George Bush forseta.
Til dæmis talaði Barack Obama um
það í kosningabaráttunni árið 2008
að hann ætlaði að binda endi á þær
aðferðir sem fangaflugið byggði á,
svokallað „extreme rendition“ eða
„extraordinary rendition“ á ensku
þar sem fangar voru fluttir leyni-
lega á milli landa og pyntaðir. Ljóst
má telja að Obama, sem skipaði
Luis sem sendiherra hér á landi, er
ekki hlynntur fangafluginu og barð-
ist gegn því í kosningabaráttu sinni
2008.
Ofbeldið í heimalandinu
Luis á sér nokkuð sérstæðan bak-
grunn fyrir sendiherra í banda-
rísku utanríkisþjónustunni. Hann er
fæddur í Gvatemala í Suður-Ame-
ríku og fluttist ekki til Bandaríkjanna
fyrr en hann var sautján ára, árið
1970, þegar hann fór sem skiptinemi
þangað. „Ég kem frá fjölskyldu í
Gvatemala sem tilheyrir lægri milli-
stétt. Við vorum ekki forréttindafólk.
Mamma mín var barnaskólakennari
og faðir minn ólst upp sem mun-
aðarleysingi. Mamma var ströng og
lagði mikið upp úr því að ég fengi
góðar einkunnir.“
Á þessum tíma var pólitískur
óstöðugleiki í Gvatemala sem setti
mark sitt á fjölskyldu Luis. Kalda
stríðið var í fullum gangi og víða um
Suður-Ameríku áttu sér stað blóðug
átök á milli vinstri og hægri manna.
Þremur árum eftir að Luis flutti frá
Gvatemala steypti herinn í Síle,
undir stjórn Augusto Pinochet, lýð-
ræðislega kjörinni stjórn Salvadors
Allende af stóli með aðstoð CIA. „Á
þessum tíma var pólitískur óstöð-
ugleiki í Gvatemala og fólk sem fjöl-
skyldan þekkti hvarf og var myrt. Of-
beldið í samfélaginu var það mikið
í Gvatemala að nánast í hverri fjöl-
skyldu var einhver sem hafði ver-
ið myrtur, annaðhvort af öfgaöfl-
um til hægri eða til vinstri. Vegna
þess að óstöðugleikinn í landinu var
svo mikill þá voru margir sem vildu
breyta miklu í landinu og það setti
mark sitt á líf fólksins.“ Fjölskylda
Luis var þó ekki pólitísk að hans
sögn þó svo að hún hafi verið tengd
fólki sem var á vinstri væng stjórn-
málanna. Þetta ofbeldi og þessi póli-
tíski órói var þó ekki ástæðan fyrir
flutningi Luis til Bandaríkjanna.
Vildi verða hippi í
Bandaríkjunum
Luis segist hafa verið heillaður af
Bandaríkjunum, hippatímabil-
ið stóð þá sem hæst og hann sá líf-
ið þar í landi í hillingum. „Ég vildi
flytjast til Bandaríkjanna til að verða
hippi.“ Í stað þess að lenda í Kali-
forníu eða New York endaði hann
hins vegar í smábæ í Pennsylvaníu.
Eftir skiptanemaár sitt settist hann
að í Bandaríkjunum og hefur ekki
búið í Gvatemala þaðan í frá.
Luis settist á skólabekk í Banda-
ríkjunum og nam hagfræði til
doktors gráðu í Wisconsin-háskóla í
Milwaukee. Meðan hann var í námi
kynntist hann eiginkonu sinni,
Mary F. Kelsey. Hann segir að það
hafi komið til tals að þau flyttu aft-
ur til Gvatemala að loknu námi en
þau hættu við það vegna ástands-
ins í landinu. Luis hefur unnið víða
um heim fyrir utanríkisþjónustu
Bandaríkjanna síðastliðin ár, með-
al annars á Spáni, í Sviss og Kanada.
Tók þátt í mótmælum gegn
Bandaríkjunum
Luis segist aðspurður – þessi saga
hefur spurst út um hann hér á landi
– að hann hafi tekið þátt í mót-
mælum gegn hernaðaraðgerðum
Bandaríkjamanna í Suður-Ame-
ríku á sínum yngri árum. Um var að
ræða mótmæli fyrir framan banda-
ríska varnarmálaráðuneytið, Penta-
gon, í Washington í upphafi níunda
áratugarins, þegar hann var um þrí-
tugt. „Þetta voru mótmæli vegna
hernaðarafskipta Bandaríkjamanna
í El Salvador. Ég tók þátt í þessu með
dóttur minni sem var ung á þess-
um tíma og við kölluðum: „No more
war – The U.S. out af El Salvador!“.
Ég endaði svo á því að fara til El
Salvador þar sem ég vann í nokkur
ár. Eftir þrjátíu ár er allt í lagi að tala
um þetta,“ segir Luis og hlær góðlát-
lega.
Luis segir að á sínum yngri
árum, þegar hann var í mennta-
skóla, hafi hann verið mikill aðdá-
andi Fidels Castro. „Á þeim tíma
var Fidel Castro bara þessi náungi
sem stóð uppi í hárinu á Bandaríkj-
unum. Stundum er slíkt nóg til að
menn fylki sér um einhvern mann
eða málstað. En svo líða árin og þá
sér maður að Fidel Castro er ein-
ræðisherra sem kúgar þjóð sína og
þá breytir maður um skoðun.“
Luis hljómar því eins og að hann
hafi verið nokkuð róttækur til vinstri
í skoðunum sem ungur maður en
að hann hafi fjarlægst þær skoðanir
með aldrinum.
Tók að sér íslenskan fjárhund
Luis segir að honum og fjölskyldu
hans – hann og kona hans eiga þrjú
börn – hafi liðið vel á Íslandi síðast-
liðin ár. Hann hefur ferðast víða um
landið, farið hringveginn nokkrum
sinnum og nýtur þess að dvelja úti
í náttúrunni þar sem hann segist
meðal annars hafa notið leiðsagnar
Ara Trausta Guðmundssonar jarð-
fræðings. „Hann þekkir sitt land;
hann hefur verið mér alveg rosa-
lega hjálplegur,“ segir Luis um Ara
Trausta. Sendiherrann staldrar
fyrst og fremst við náttúru Íslands
þegar hann ræðir um veru sína hér
en hann hefur meðal annars haft
það að markmiði að heimsækja all-
ar radarstöðvarnar sem bandaríski
herinn setti upp hér á landi í Kalda
stríðinu. „Það er ekkert eins gott
og að sitja í heitum potti á Íslandi
klukkan eitt að nóttu á björtu júní-
kvöldi,“ segir Luis.
Ein af eftirminnilegri upplifun-
um Luis hér á landi er þátttaka hans
í réttum við Landmannalaugar.
„Réttirnar í Landmannalaugum
voru ótrúlegar. Staðurinn sjálfur er
auðvitað ægifagur en fyrir mig var
mjög forvitnilegt að fá innsýn inn í
þessa hefð Íslendinga.“ Luis segir að
sú reynsla sé sennilega sú sem hann
muni muna hvað best þegar hann
lýkur störfum sínum hér á landi en
hann og fjölskylda hans hafa einnig
tekið að sér íslenskan fjárhund með-
an á dvöl þeirra hefur staðið: „Okkur
þykir svo vænt um Ísland að við tók-
um að okkur íslenskan fjárhund.“
Þjóðarkarakterinn
Luis segir að hann búist við því að
vera hér í þrjú ár í heildina, sem
þýðir að hann mun væntanlega
hverfa af landi brott á seinna hluta
þessa árs. Hann veit ekki hvert hann
fer eftir að sendiherratíð hans hér á
landi lýkur en hann býst þó við að
verða sendur til Washington. Barna-
barn hans, ellefu ára stúlka sem er
björt og ljós á brún og brá, hefur
að sögn Luis reifað þá hugmynd að
sækja um íslenskan ríkisborgararétt.
„Hún gæti verið Íslendingur. Henni
líður mjög vel hér og getur gengið
sjálfala um borgina, hlaupið upp á
Skólavörðustíg og fengið sér ís eða
kakó, án þess að við þurfum að hafa
áhyggjur af henni. Þetta er mjög sér-
stakt við Ísland.“
Þegar hann er spurður um
skoðun sína á Íslendingum sjálfum,
ekki landinu, staldrar hann nokk-
uð við þær tilfinningar sem lestur
hans á Sjálfstæðu fólki eftir Halldór
Laxness skildu eftir sig – hann seg-
ir að öllu jöfnu sé ekki auðvelt að
kynnast Íslendingum: „Ég hef reynt
eins og ég get að kynnast eins mörg-
um Íslendingum og ég get. Mér
finnst Sjálfstætt fólk vera áhuga-
verður gluggi inn í þjóðarkarakter
Íslendinga. Ég tel mig vera farinn
að sjá viss karaktereinkenni í fari
margra sem minna mig á Sjálfstætt
fólk. Saga landsins er mjög áhuga-
verð. Hér, á þessari frekar harðbýlu
eyju, hefur búið þjóð sem á einungis
örfáum áratugum fór frá því að vera
ein fátækasta þjóð í Evrópu og yfir í
að vera ein sú ríkasta. Þjóðin gerði
þetta með mikilli vinnuhörku, iðni,
sköpunargleði, þrjósku, þrákelkni
og karakterstyrk sem gerði henni
kleift að ná markmiðum sem virtust
vera fjarlæg,“ segir Luis.
Hann bætir því við að hann telji
að sömu karaktereinkenni muni
væntanlega gera íslensku þjóðinni
kleift að komast fyrr út úr krepp-
unni eftir hrunið en ella. „Augljós-
lega er íslenska þjóðin ekki komin út
úr kreppunni enn sem komið er, en
framtíð landsins er björt því Ísland
hefur allar forsendurnar sem til þarf
til að standa sig vel.“ n
n Sendiherra Bandaríkjanna, Luis Arreaga, þykir einkar alþýðlegur í viðmóti n Hefur lagt sig fram um að kynnast landi og þjóð n Framtíð landsins björt
Segir umræðu um
fangaflugið vera ásökun
Luis Arreaga, sendiherra
Bandaríkjanna á Íslandi, segir að
umræðan um fangaflug CIA um
Ísland byggi á ásökunum en ekki
staðreyndum. myndir SigTryggur ari
Hrifinn af Laxness
Sendiherrann er hrifinn af
Sjálfstæðu fólki eftir Halldór
Laxness og telur söguna draga
upp ágætis mynd af þjóðar-
karakter landsmanna.
„Okkur þykir svo
vænt um Ísland
að við tókum að okkur ís-
lenskan fjárhund