Náttúrufræðingurinn

Árgangur

Náttúrufræðingurinn - 2009, Blaðsíða 7

Náttúrufræðingurinn - 2009, Blaðsíða 7
71 Tímarit Hins íslenska náttúrufræðifélags (2. mynd). Ilmbjörkin hefur heldur stærri frjókorn, með þykkari vegg og meiri umbúnaði umhverfis frjó- pípugötin. Við frjógreiningu hafa vísindamenn ýmist stuðst við útlitið eingöngu eða notað mælingar á þvermáli frjókornanna til þess að aðgreina tegundirnar. Til að auð- velda þessa vinnu hafa mælingar verið gerðar á stærð frjókorna úr lif- andi birkiskógum, til dæmis í stórri rannsókn sem Eeva Mäkelä gerði í Finnlandi.4 Með rannsókninni sem hér er greint frá vildum við svara spurningum um frjókorn íslenska birkisins á svipaðan hátt. Við leit- uðum svara við því hvort stærð og lögun íslenskra birkifrjókorna væri eins og í nálægum löndum, hvort erfðablöndun hafi dregið úr mis- mun á frjókornum fjalldrapa og ilm- bjarkar á Íslandi og hvort frjókorn tegundablendinga hafi sérkenni sem hægt væri að þekkja. Ilmbjörk og fjalldrapi hafa ólíka litningatölu. Fjalldrapinn er tvílitna tegund og í hverjum frumukjarna hans eru 28 litningar. Ilmbjörkin er aftur á móti ferlitna og hefur 56 litninga. Þessi mismunur á magni erfðaefnis er meðal þess sem veldur stærðarmun frjókornanna. Við kyn- blöndun, þegar frjókorn ilmbjarkar frjóvgar blóm fjalldrapa eða öfugt, verða til þrílitna einstaklingar með 42 litninga. Í rannsókn okkar notuð- um við litningafjölda í ungum lauf- blöðum til þess að tegundagreina einstaklingana sem frjókornin voru fengin af með aðferð sem þróuð var í tengdri rannsókn5. Með því móti mátti bera saman frjókorn í þremur flokkum birkis, tvílitna fjalldrapa, þrílitna blendingum og ferlitna ilm- björk, óháð útlitseinkennum hverrar plöntu. Niðurstöður þessarar rannsóknar hafa verið birtar í tveimur greinum; önnur fjallar um mismun á frjókorn- um ilmbjarkar og fjalldrapa6 en hin um sérkenni blendingsfrjókorn- anna.7 Í þessari grein er markmið okkar að tengja saman niðurstöður frjókornamælinga úr öllum litnunar- hópunum og fjalla um gildi rann- sóknarinnar. Aðferðir Efniviður Frjókornin voru af plöntum sem notaðar voru í víðtækari rannsókn á birki og uxu á tíu skóglendissvæðum víðsvegar um landið. Vali á stöðum og plöntum er lýst í greinum eftir Ægi Þór Þórsson.1,8 Staðirnir þar sem frjókornum var safnað voru: Bifröst, Kjálkafjörður, Kaldalón, Mývatn, Ásbyrgi, Eiðar, Jökulsá í Lóni, Skafta- fell, Brekkuskógur og Reykjanes. Skóglendi voru valið þannig að sýni fengjust úr sem flestum landshlutum en að sýnatökustaðir væru jafnframt aðgengilegir á blómgunartíma teg- undanna. Allar plönturnar höfðu verið metnar með tilliti til útlitsein- kenna og tegundagreindar með litn- ingatalningu. Frjókorn voru ýmist fengin af blómstrandi plöntum vorið 2004 eða 2005. Sýni af frjókornum nokkurra trjáa og runna voru tekin bæði árin til þess að kanna hvort breytileiki væri í stærð frjókorna milli ára. Ýmist voru fullþroskaðir karlreklar teknir beint af plöntunum eða greinar með hálfþroskuðum reklum teknar og látnar standa í vatni innanhúss meðan blómin náðu fullum þroska. Alls voru mæld frjókornasýni af 92 plöntum þar sem áhersla var lögð á að ná sýnum af sem flestum þrílitna blendingum en tilviljun látin ráða vali einstaklinga af ilmbjörk og fjalldrapa hvers svæðis. Meðferð Frjókornin voru meðhöndluð með þeim aðferðum sem algengast er að nota við frjókornasýni úr setlögum og mó.3 Það felur í sér suðu í lút og sýrum til þess að leysa upp setkorn og eyða bergmylsnu og lífrænum leifum öðrum en frjókornum. Efna- meðferðin getur haft áhrif á stærð frjókornanna og var hún notuð – þrátt fyrir að um hrein frjókornasýni væri að ræða – til þess að niðurstöð- urnar yrðu sambærilegri við aðrar rannsóknir. Að meðferð lokinni voru hreinsuð frjókornin flutt í silíkon- olíu. Mælingar Teknar voru smásjármyndir af u.þ.b. 120 frjókornum frá hverri plöntu í 400-faldri stækkun. Tvær mælingar voru gerðar á hverju frjókorni (2. mynd); annars vegar var þvermálið mælt þar sem það var mest, frá ytri brún totunn- ar við eitt frjópípugatið og að ytri brún gagnstæðs veggjar (D, diameter), og hins vegar var dýpt frjópípugatsins mæld frá ytri brún totunnar að innri brún veggjarins við hana (P, pore depth). Mæl- ingar voru aðeins gerðar á heilum, eðlilegum frjókornum með þrjú frjópípugöt. Samanburður á meðal- stærð frjókornanna var gerður 2. mynd. Birkifrjókorn. a: ilmbjörk, b: blendingur, c: fjalldrapi. Mælingar sýndar á a: Þvermál (D) blá lína; dýpt frjópípugats (P) rauð lína. – Betula pollen grains. a: B. pu- bescens, b: triploid interspecific hybrid, c: B. nana. Measurements in a: Diameter (D) blue line; pore depth (P) red line.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Náttúrufræðingurinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.