Náttúrufræðingurinn - 2009, Blaðsíða 46
Náttúrufræðingurinn
110
ræktaða garðinum við Fræðasetrið
og í óræktaða túninu við Vorsabæ. Í
byrjun júní, þegar tilraunasýnatök-
ur fóru fram, fundust þær einnig á
hverasvæðinu og á útivistarsvæðinu
við Varmá í miðju Hveragerði.
Í magnbundnu jarðvegssýnunum
voru einstaklingar of fáir til að
hægt væri að meta þéttleika lirfanna.
Þegar litið var á stærðardreifingu
lirfa úr ómagnbundnum sýnum og
fallgildrum voru þær 1,5–4,0 cm að
lengd í júní og júlí en 1,0–2,4 cm í
september (5. mynd). Engar lirfur
fundust á tímabilinu frá 13. júlí til
30. ágúst.
Kvenflugur urpu allt sumarið í
Hveragerði (6. mynd). Í júlí voru
kvenflugur hvorki með óþroskaða
né fullþroskaða eggjastokka. Í ágúst
náði fjöldi verpandi flugna hámarki.
Á sama tíma og kvenflugur með
óþroskaða og fullþroskaða eggja-
stokka hættu að finnast í júlí, hættu
lirfur einnig að finnast (5. mynd).
Þessir tveir þroskaflokkar fundust
svo aftur í ágúst en lirfur ekki fyrr
en í september (5. og 6. mynd).
Á öllum búsvæðum nema barr-
skóginum veiddust verpandi flugur
og flugur sem voru búnar að verpa,
en þær síðarnefndu veiddust reynd-
ar ekki á lúpínusvæðinu (7. mynd).
Aðeins á tveimur búsvæðum, við
Fræðasetrið og gróðurhúsið, veidd-
ust flugur á öllum þroskastigum.
Flestar verpandi flugur veiddust
við Fræðasetrið og á hverasvæðinu.
Við hverasvæðið, í laufskóginum og
á Vorsabæ veiddust aðeins flugur
sem voru að verpa eða búnar að
verpa og í lúpínunni eingöngu
verpandi flugur (7. mynd).
Umræður
Langflestar folaflugur fundust í
ræktaða garðinum við Fræðasetrið
og er það í samræmi við erlendar
rannsóknir um að kjörlendi fyrir
varp flugunnar sé í gróðri og þá
sérstaklega grasi.1 Flugan fannst
hins vegar einnig í öllum öðrum
búsvæðum nema barrskóginum
(7. mynd). Mikill munur var á
kynjahlutfalli flugnanna eftir því
hvaða aðferð var beitt við að veiða
6. mynd. Fjöldi og kynþroskastig allra kvenflugna og sýnatökudagar sumarið 2005. –
Number of female flies, maturity stages and date of sampling in the summer of 2005.
7. mynd. Fjöldi og kynþroskastig allra kvenflugna frá júní til september 2005 og búsvæðin þar
sem þær voru veiddar. – Number of female flies, maturity stages and habitat selection from
June to September 2005.
5. mynd. Lífsferill folaflugu í Hveragerði sumarið 2005. Kynþroskastig kvenflugna er sýnt
(A: óþroskaðir eggjastokkar, B: fullþroskaðir eggjastokkar, C: er að verpa, D: búin að verpa)
og hvenær þær veiðast. Einnig er sýnt hvenær flugur (bæði kyn) og lirfur veiddust og í
hvaða stærðarflokkum (cm) lirfurnar voru. Egg og púpur fundust ekki. – The life cycle and
habitat selection of the Marsh Cranefly in Hveragerði in the summer of 2005. Maturity
stages of females are shown (A: immature female, B: maturing female, C: mature female
before oviposition and D: mature female after oviposition), date of sampling and larvae are
categorized according to total length (cm). Eggs and pupae were not found.
4 4
1 1
1
3
1
2 1
11
14 11
16
79 45 14
1
5
6
13 9 3
16 júní
n = 19
28 júní
n = 24
13 júlí
n = 11
27 júlí
n = 22
11 ágúst
n = 95
30 ágúst
n = 56
17 sept
n = 18
Fj
öl
di
k
ve
nf
lu
gn
a
og
þ
ro
sk
as
tig
Búin að verpa
Er að verpa
Fullþroskuð
Óþroskuð
7 4
3
4
84
31 38
5
11
21
3
20
8
3
3
Fræðasetur
n = 97
Gróðurhús
n = 59
Hverasvæði
n = 46
Laufskógur
n = 8
Lúpína
n = 11
Vorsabær
n = 24
Fj
öl
di
k
ve
nf
lu
gn
a
Búin að verpa
Er að verpa
Fullþroskuð
Óþroskuð