Náttúrufræðingurinn - 2009, Side 20
Náttúrufræðingurinn
84
stuðningi frá breska ríkinu og einka-
aðilum (9. mynd). Auk formfræði-
legra, fiskifræðilegra og annarra líf-
fræðilegra rannsókna var markmið
MBA frá stofnun félagsins að stuðla
að rannsóknum í tilraunadýrafræði.
Þetta má líklega skýra með vísan í
þá staðreynd að meðal stofnfélaga
MBA voru meðlimir hins nýstofn-
aða Breska lífeðlisfræðifélags.23 Til
þess að ná þessu markmiði var
rannsóknastöðin búin takmarkaðri
aðstöðu til lífeðlisfræðirannsókna,
sem Keeble, Gamble, Jenkinson
og Lucas nýttu sér við rannsóknir
sínar. Aðstaðan skilaði hins vegar
litlu meira í birtum niðurstöðum en
því sem fjórmenningarnir framköll-
uðu. Lífeðlisfræðingurinn Francis
Marshall (1878–1949), sem kenndi
við háskólann í Cambridge, gerði
aðstöðuleysið að umtalsefni árið
1909. Hann kvartaði yfir því að
dýralífeðlisfræði í Bretlandi hefði
snúist alltof mikið um manninn,
en lífeðlisfræði hryggleysingja „að
mestu verið sniðgengin“. Marshall
rakti þetta til þeirrar staðreyndar
að breskir dýrafræðingar höfði enn
varla áttað sig á mikilvægi tilrauna;
það ástand viðhélst vegna skorts
á tilraunastöðvum í Bretlandi „þar
sem hægt er að halda dýr við stöð-
ugar athuganir í náttúrulegu og
heilbrigðu umhverfi“.24 Til þess að
bæta úr þessu ástandi var að tillögu
Lucas ráðist í endurbætur á lífeðlis-
fræðiaðstöðunni í Plymouth 1911,
árið sem Mines hóf rannsóknir sínar.
Það var hins vegar ekki fyrr en árið
1920 sem mönnuð og almennilega
tækjum búin lífeðlisfræðirannsókna-
stofa varð að veruleika í Plymouth.
Ólíkt aðstöðuleysinu í Plymouth
var Dýrafræðirannsóknastöðin í
Napólí mjög vel búin tækjum. Eftir
að Anton Dohrn fór á eftirlaun tók
sonur hans, Reinhardt, við rekstri
rannsóknastöðvarinnar. Á meðan
fyrri heimsstyrjöldin geisaði lagðist
starfsemi stöðvarinnar nánast alveg
niður og þurfti Reinhardt Dohrn
að yfirgefa Ítalíu. Að stríðinu loknu
barðist hann fyrir því að fá stöðina
aftur í sínar hendur en gríðarleg
andstaða var gegn því á Ítalíu og
annars staðar í Evrópu. Til marks um
það fékk Dohrn einungis stuðning
frá fámennum hópi dýrafræðinga í
Bretlandi. Fyrir þeim hópi fór dýra-
fræðingurinn og athafnamaðurinn
8. mynd. Rannsóknastöðin í Napólí. – The Naples Zoological Station.
9. mynd. Frá opnun rannsóknastöðvarinnar í Plymouth 1888. – From the opening of the
Plymouth Laboratory in 1888.