Náttúrufræðingurinn - 2009, Blaðsíða 43
107
Tímarit Hins íslenska náttúrufræðifélags
Lísa Anne Libungan, Gísli Már Gíslason og Tryggvi Þórðarson
1. mynd. Folafluga, Tipula paludosa (karlfluga). – The Marsh Cranefly (male). Ljósm./Photo: Gísli Már Gíslason, Hveragerði, 25.07.2007.
Grein þessi fjallar um rannsókn sem höfundar gerðu á búsvæðavali, fjölda, lífsferli og kynþroskastigi folaflugna í Hveragerði sumarið 2005. Folafluga (Tipula paludosa Meigen 1830) er stærsta fluga innan hrossafluguættarinnar (Tipulidae) sem telur nú fjórar innlendar tegundir. Hún er nýlegur landnemi á
Íslandi og er þetta fyrsta rannsókn á henni hérlendis. Í ljós kom að folaflugur var að finna á sex búsvæðum af
sjö sem leitað var á og hafa því á þeim stutta tíma sem þær hafa verið á Íslandi dreift sér um allt Hveragerði
og nágrenni þess, auk þess sem þær hafa á síðustu árum fundist víðar á Suðurlandi.
Niðurstöður rannsóknarinnar benda til þess að folaflugan hérlendis hafi eina kynslóð á ári, verpi allt sumarið
og klakhámark hennar sé í byrjun ágúst. Lirfur hennar fundust á ýmsum búsvæðum í Hveragerði. Erlendar rann-
sóknir hafa sýnt að lirfur folaflugu geta verið skaðlegar nytjaplöntum, græðlingum og ýmsum öðrum gróðri, þar
sem þær naga efsta hluta rótarinnar en afleiðing þess er að gróðurinn drepst. Sömuleiðis geta fuglar í leit að lirfum
til átu valdið talsverðum skaða á grasblettum. Mikilvægt er að fylgjast með þeim svæðum þar sem tegundin finnst,
því egg og lirfur folaflugunnar geta borist til annarra staða með túnþökum og plöntum sem seldar eru í pottum,
t.d. trjáplöntum og öðrum nytjaplöntum.
Náttúrufræðingurinn 77 (3–4), bls. 107–112, 2009
Ritrýnd grein
Folafluga
nýtt skordýr á Íslandi