Náttúrufræðingurinn - 2009, Blaðsíða 53
117
Tímarit Hins íslenska náttúrufræðifélags
atbeina núverandi menntamála-
ráðherra, þar sem komin eru fram
frumvarpsdrög að sérlögum um
Náttúruminjasafn Íslands (sbr.
bráðabirgðaákvæði í safnalögum
nr. 106/2002). Félagið harmar
hins vegar að hafa ekki verið haft
með í ráðum við smíði frum-
varpsins og telur eðlilegt, í ljósi
samofinnar sögu og tengsla
félagsins við Náttúrugripasafn
Íslands og Náttúrufræðistofnun
Íslands, að félagið fái frumvarp-
ið til umfjöllunar áður en það
verður lagt fyrir Alþingi. Hið
íslenska náttúrufræðifélag vænt-
ir góðs samstarfs við ráðuneyti
mennta- og umhverfismála um
framtíðarmálefni Náttúruminja-
safns Íslands.“
2. Ályktun um Þjórsárver:
„Aðalfundur Hins íslenska nátt-
úrufræðifélags, haldinn 26.
febrúar 2007 í Kópavogi, fagnar
eindregið þeim árangri sem
nýlega hefur náðst um frestun á
gerð Norðlingaölduveitu og öðr-
um virkjunarframkvæmdum í
og við Þjórsárver. Hið íslenska
náttúrufræðifélag skorar enn-
fremur á umhverfisráðherra að
beita sér að fullu gegn öllum
framtíðaráformum um frekari
virkjunarframkvæmdir á Þjórsár-
verasvæðinu og vinna þess í
stað að stækkun friðlandsins í
Þjórsárverum til samræmis við
náttúruleg mörk veranna.“
3. Ályktun um Rammaáætlun:
„Aðalfundur Hins íslenska náttúru-
fræðifélags, haldinn 26. febrúar
2007 í Kópavogi, hvetur ríkisstjórn
Íslands til að ljúka sem allra fyrst
við gerð seinni áfanga ramma-
áætlunar um nýtingu vatnsafls
og jarðvarma, þannig að sátt
megi skapast meðal þjóðarinnar
um skynsamlegan grunn til
ákvörðunar um verndun náttúru
eða nýtingu og forgangsröðun
einstakra kosta til orkuöflunar.
Að gefnu tilefni brýnir Hið
íslenska náttúrufræðifélag jafn-
framt fyrir stjórnvöldum og
virkjunaraðilum að bíða með öll
áform um virkjun háhitasvæða
þar til niðurstaða hefur fengist í
rammaáætlun enda eru háhita-
svæðin einstök í náttúru Evrópu
og sum hver á heimsmælikvarða,
svo sem Torfajökulssvæðið, Kerl-
ingarfjöll, Brennisteinsfjöll og
Askja.“
Undir liðnum önnur mál
þakkaði formaðurinn fráfarandi
útbreiðslustjóra, Erling Ólafssyni,
og fráfarandi ritstjóra Náttúru-
fræðingsins, Álfheiði Inga-
dóttur, vel unnin störf í þágu
félagsins og færði þeim bóka-
gjafir frá félaginu. Þau þökk-
uðu fyrir sig með nokkrum
orðum og Álfheiður deildi með
fundargestum hugmyndum
sínum um breytingar á útgáfu
tímaritsins sem gætu orðið því
til heilla.
Útgáfa og heimasíða
félagsins
Einn árgangur Náttúrufræðingsins,
74. árgangur, kom út árið 2006, tvö
tvöföld hefti. Seinna heftið var hið
síðasta sem Álfheiður Ingadóttir
ritstýrði. Ásdís Auðunsdóttir veð-
urfræðingur sagði sig úr ritstjórn
fyrir nokkru en enginn hafði verið
skipaður í hennar stað. Haustið 2006
var Guðmundur Ingi Guðmunds-
son umhverfisstjórnunarfræðingur
skipaður í ritstjórn og er hún þá
fullskipuð á ný með sjö manns.
Á fyrri hluta ársins 2006 var við-
ræðum við Náttúrufræðistofnun
Íslands um áframhaldandi umsjón
með útgáfu Náttúrufræðingsins
haldið áfram. Samningar tókust ekki
þar sem aðila greindi of mikið á um
kostnað. Niðurstaða stjórnarinnar
var því að segja samningnum við
NÍ upp og var það gert með bréfi
dagsettu 8. ágúst 2006. Sem starfs-
maður Náttúrufræðistofnunar lét
Álfheiður því af ritstjórn tímaritsins
en það varð að samkomulagi að
hún lyki útgáfu 74. árgangs og kom
síðasta hefti í ritstjórn hennar út í
nóvember 2006.
Samkomulag var gert við Nátt-
úrufræðistofu Kópavogs að taka að
sér umsjón með útgáfu Náttúru-
fræðingsins og var samningur milli
félagsins og Náttúrufræðistofunnar
undirritaður 15. september 2006.
Samningurinn gildir til loka ársins
2008 með ákvæði um endurskoðun
innan árs frá undirritun. Samhliða
samningnum var undirrituð vilja-
yfirlýsing milli sömu aðila um að
samningurinn feli í sér átaksverk-
efni og að það sé sameiginlegur vilji
beggja aðila að Náttúrufræðingur-
inn komi þéttar út á þessu tímabili
til að vinna upp þá seinkun á útgáfu
tímaritsins sem orðin er. Hrefna B.
Ingólfsdóttir líffræðingur var ráðin
Á aðalfundi Hins íslenska náttúrufræðifélags í febrúar 2007 var samþykkt ályktun um
stækkun friðlands í Þjórsárverum. Ljósm.: Þóra Ellen Þórhallsdóttir.