Náttúrufræðingurinn - 2009, Qupperneq 21
85
Tímarit Hins íslenska náttúrufræðifélags
George P. Bidder (1863–1954) (10.
mynd). Hann nam dýrafræði í Cam-
bridge, með aðaláherslu á svampa,
og var tíður gestur á rannsókna-
stöðvunum í Plymouth og Napólí,
þar sem hann kynntist Dohrn
yngri vel. Þótt rannsóknir hans á
svömpum hafi verið mikilvægar
þá spratt mikilvægasta framlag
hans til líffræðinnar af áhuga hans
á að auka veg greinarinnar og
þeirri viðskiptareynslu sem hann
aflaði sér sem framkvæmdastjóri
(1897–1915) og síðar stjórnarfor-
maður (1915–1919) Cannock Chase
Colliery Company. Eins og greint
verður frá í greininni notaði Bidder
þessa reynslu „af heilum hug til
þess að auka veg líffræðinnar“.25
Þrátt fyrir talsverða andstöðu heima
fyrir aðstoðaði Bidder Dohrn eftir
fremsta megni við að endurheimta
stöðina og höfðu þeir loks árangur
árið 1924.26,27
Í kjölfar stríðsins var rannsókna-
stöðin í Plymouth líka í mikilli
kreppu. Um miðjan mars árið 1919
gerði Bidder forstjóra stöðvarinnar,
Edgar J. Allen (1866–1942) (11. mynd),
grein fyrir því að hann hefði upplýst
W.B. Hardy (1864–1934), sem var
prófessor í lífeðlisfræði við háskól-
ann í Cambridge og ritari stjórnar
Konunglega félagsins (1915–1925),
um fjárhagskreppu MBA. Síðar í
mánuðinum átti Konunglega félagið
að veita bresku ríkisstjórninni ráð-
gjöf um mögulegan stuðning við
rannsóknastöðina í Napólí. Með það
í huga leitaði Hardy ráða hjá Bidder
um þarfir stöðvarinnar. Bidder
mælti með því að ríkisstjórnin sýndi
örlæti:
Hugsanlega 3000 pund á ári (Hardy
var á því að við ættum að gefa
meira). En ég sagði: „Ég vil að við
sýnum Napólí örlæti, en ekki ef það
þýðir að við verðum að svelta
Plymouth.“ Hann svaraði þungur á
brún: „Við ætlum ekki að svelta
Plymouth. Plymouth kemur til
greina samhliða Napólí og við
munum mæla með báðum.“28
Það sem vakti fyrir Bidder með
því að mæla með stuðningi við
Napólí, var að opna stöðina á ný
fyrir breska dýrafræðinga, sér-
staklega lífeðlisfræðiaðstöðuna. Til-
raunir Bidders og Hardys til að
afla fjárhagsstuðnings frá bresku
ríkisstjórninni báru hins vegar
ekki árangur. Eins og Bidder gerði
ítölskum vini sínum grein fyrir,
var ástæða þessa Þjóðverjaandúðin
sem ríkti í Bretlandi eftir stríðið.
Sú sjálfstæða skoðun var hins
vegar einnig uppi „að ef við gerum
Plymouth að úrvals rannsóknastöð
þörfnumst við ekki Napólí“. Bidder
var ekki hlynntur þessu sjónarmiði.
Hann hafði reynt allt sem hann gat
til þess að styðja rannsóknastöð-
ina í Plymouth, en Bidder „var á
því að hún gæti aldrei áorkað því
sem Napólí hefur gefið okkur“.
En eins og hann tjáði vini sínum
fólst „mikilvægasta atriðið í því að
ógerlegt mun reynast að afla fjár-
stuðnings fyrir Napólí frá breska
ríkinu“.29
Af þessum sökum ákvað Bidder
síðla aprílmánaðar árið 1919 að
leggja það til við stjórn rannsókna-
stöðvarinnar í Plymouth, sem hann
átti sæti í, að byggð yrði lífeðlis-
fræðideild við stöðina. Hann hugðist
leggja 500 pund til verksins, auk láns
að sömu fjárhæð. Í lok mánaðar-
ins var tillaga Bidders samþykkt á
fundi stjórnarinnar.30 Var strax hafist
handa við byggingu húsnæðis fyrir
lífeðlisfræðideildina, en mun meira
fjármagn þurfti til þess að áætlun
Bidders yrði að veruleika. Rekstur
stöðvarinnar var við það að stöðv-
ast vegna fjárskorts og uppbygging
nýju aðstöðunnar jók enn á vandann.
Ákvað stjórnin því að leita á náðir
Þróunarsjóðsins, sem var stofnaður
árið 1909 til þess að auka veg líf- og
landbúnaðarrannsókna í Bretlandi.31
Rannsóknastöðin hafði frá árinu 1912
fengið lítinn árlegan styrk úr sjóðnum,
en til þess að lífeðlisfræðiáætlunin
næði fram að ganga varð þessi árlegi
styrkur að aukast til mikilla muna.
Með þetta í huga sendi MBA erindi
til sjóðsins í upphafi ársins 1920 og
var í kjölfarið sett á laggirnar nefnd,
undir forystu Hardys, sem meta átti
tillögur félagsins. Nefndin skilaði
jákvæðri niðurstöðu til sjóðsins sem
varð til þess að í júní 1920 sendi MBA
inn formlega umsókn þar sem farið
var fram á fjármagn til þess að gera
félaginu kleift að ljúka við nýju bygg-
inguna, ráða vísindamenn til starfa
við lífeðlisfræðideildina og kaupa
hafrannsóknaskip. Í umsókninni var
lögð áhersla á að náin tengsl væru á
11. mynd. Edgar J. Allen (1866–
1942), breskur dýrafræðingur.
10. mynd. George P. Bidder (1863–
1954), breskur dýrafræðingur.
12. mynd. Julian Huxley (1887–
1975), breskur dýrafræðingur.