Náttúrufræðingurinn - 2009, Blaðsíða 23
87
Tímarit Hins íslenska náttúrufræðifélags
dýrafræðinnar“. Journal of Genetics
var um þessar mundir eina breska
líffræðitímaritið sem að öllu leyti
var helgað tilraunum, en þar sem
það einskorðaðist við erfðafræði
áttu tilraunadýrafræðingar ekkert
erindi þangað. Á sama tíma gátu
bandarískir tilraunadýrafræðingar
valið um að birta greinar í Journal
of Experimental Zoology, Biological
Bulletin og Journal of General Physi-
ology. Af þessum sökum höfðu
breskir tilraunalíffræðingar ófull-
nægjandi þekkingu á því sem var
að gerast á þeirra fræðasviði. Þetta
gat að mati ritnefndarinnar dregið
mjög úr áhrifum tilraunanálgunar-
innar, sem talin var „nauðsynleg
fyrir frekari þróun líffræðinnar í
Bretlandi“. Á sama tíma var alltaf
að koma betur í ljós að vandamál
þróunarfræðinnar yrðu ekki leyst
með því að styðjast einungis við
formfræði. Þar yrði tilraunalíffræð-
in einnig að koma við sögu. Með
þetta í huga var ákveðið að stofna
BJEB. Tilkynnti ritnefndin að tekið
yrði á móti greinum þar sem fengist
væri við samanburðarlífeðlisfræði,
tilraunaþroskunarfræði, erfðafræði
og dýraatferli, auk „frumu-, form-
og vefjafræðilegra greina sem varpa
ljósi á tilraunavandamál“.48 Sú stað-
reynd að formfræðilegar greinar
voru ekki útilokaðar endurspeglar
hugmyndirnar sem Hogben og
Crew voru búnir að móta árið áður
og miðuðu að því að „skilja ekki
á milli tilraunadýrafræði og hjálp-
legrar formfræði“.49
Fyrsta hefti BJEB kom út í
október 1923 og var Crew fram-
kvæmdastjóri tímaritsins. Ákvörðun
um birtingu greina var tekin af rit-
nefndinni. Titill tímaritsins bar það
með sér að einnig átti að höfða til
breskra grasafræðinga, enda stóðu
þeir, eins og fram hefur komið,
dýrafræðingunum miklu framar í
beitingu lífeðlisfræðilegrar nálg-
unar í rannsóknum sínum. Raunin
varð hins vegar sú að af samtals 169
greinum í fyrstu fimm árgöngum
tímaritsins fjölluðu einungis níu
um rannsóknir á plöntum (1: 3/28,
2: 3/28, 3: 1/19, 4: 1/30, 5: 1/32, 6:
0/32).
Þótt miklar vonir hafi verið bund-
nar við stofnun BJEB, voru blikur á
lofti. Í upphafi þriðja áratugarins
var dýrafræðideildin í Cambridge
helsta miðstöð tilraunadýrafræði-
rannsókna í breskum háskólum.
Rannsóknastarfið var leitt af dýra-
fræðingnum James Gray (1891–1975),
sem fyrir stríðið hafði sérhæft sig í
tilraunaþroskunarfræði.13 Eitt af
tímaritunum sem tilraunadýrafræð-
ingar í Cambridge gátu birt í var
Proceedings of the Cambridge Philo-
sophical Society. Til þess að auðvelda
birtingu líffræðilegra rannsókna
sem gerðar voru í Cambridge ákvað
heimspekifélagið þar (Cambridge
Philosophical Society) sumarið 1923
að hefja útgáfu sérstaks líffræði-
tímarits. Gray var upphafsmaður
hugmyndarinnar og fyrsti og eini
ritstjóri tímaritsins, sem gefið var
út á árunum 1923–1925.34 Ekki eru
til nein gögn sem varpað gætu ljósi
á ástæðu þess að Hogben, Huxley
og Crew leituðu ekki eftir sam-
starfi við tilraunadýrafræðingana
í Cambridge. Áhrifanna af þessu
gætti hins vegar strax því stofnun
Biological Proceedings of the Cambridge
Philosophical Society varð til þess að
dýrafræðingarnir í Cambridge birtu
engar greinar í BJEB. Klofningurinn
í hinu smáa samfélagi tilraunadýra-
fræðinga í Bretlandi átti eftir að hafa
slæm áhrif á framtíð BJEB.
Hvað sem þessum klofningi leið
þá var nauðsynlegt fyrir ritnefnd-
ina að koma á samstarfi við dýra-
fræðingana í Cambridge. Samhliða
stofnun BJEB var ákveðið að setja
á laggirnar félag til þess að styðja
við tímaritið og auka veg tilrauna-
líffræðinnar, enda var hugmyndin
að fá breska grasafræðinga í félagið.
Huxley hafði einhverjar efasemdir
um aðkomu Cambridge-háskóla að
félaginu, sérstaklega hvort bjóða ætti
í ritnefndina lífeðlisfræðiprófessor-
num Joseph Barcroft (1872–1947),50
sem kunnastur var fyrir rannsóknir
sínar á súrefnisbindingu í blóði
mannsins, en hafði í upphafi þriðja
áratugarins fengið áhuga á súr-
efnisbindingu í hryggleysingjum.
Í viðleitni sinni til að telja Huxley
hughvarf benti Crew á að spurning-
in stæði einungis um hvort „félag
með okkur og Cambridge hjálpar
breskri líffræði“.51 Huxley lét um
síðir í minni pokann. Hogben var
falið að skipuleggja stofnráðstefnu
félagsins, enda var hann sá eini
sem var „innvígður í báðar fylk-
ingar (dýrafræði og lífeðlisfræði)“.52
Í byrjun desember var tilkynning
um ráðstefnuna send út. Auk dag-
skrár ráðstefnunnar, sem innihélt 13
14. mynd. Francis A.E. Crew (1886–1973), breskur erfðafræðingur (þriðji frá vinstri).