Náttúrufræðingurinn

Árgangur

Náttúrufræðingurinn - 2009, Blaðsíða 26

Náttúrufræðingurinn - 2009, Blaðsíða 26
Náttúrufræðingurinn 90 sem virðist grafa undan tilgátu Allens um „byltingu gegn form- fræði“. Eftir stendur spurningin hvað átt var við með „hjálplegri formfræði“. Til þess að varpa ljósi á spurninguna er gagnlegt að kynn- ast skoðununum sem Jenkinson setti fram í Experimental Embryo- logy (1909). Ritið var beinskeytt gagnrýni á þá staðhæfingu Ernsts Haeckel að þroskaferill (ontogeny) einstaklingsins endursegi þróun- arferil (phylogeny) tegundarinnar sem hann tilheyrir,3 en ekki á form- fræði sem slíka. Endursagnartilgáta Haeckels fól í sér að einstaklingurinn og þroski hans var einungis tæki til þess að svara þróunarfræðilegum spurningum. Frá upphafi tilrauna- dýrafræðinnar var tilgátan eitur í beinum margra tilraunadýrafræð- inga og til marks um það gat Loeb þess í bréfi árið 1894 að þeir sem ynnu eftir henni væru í grunninn „náttúruspekingar eða frumspek- ingar“.35 Jenkinson benti á að dýra- fræðirannsóknir væru í eðli sínu tví- þættar, ýmist lífeðlisfræðilegar eða formfræðilegar. Hann viðurkenndi að formfræðin hefði kallað fram „frábærar niðurstöður“, en sú stað- hæfing Haeckels að þroskaferillinn sé „endursögn á þróunarferlinum og þar með útskýranlegur með vísun í hann“ hafi afvegaleitt form- fræðina. Jenkinson var á því að eina leiðin til þess að skilja orsakir einstaklingsþroskunarinnar væri að rannsaka þær „eins og hverja aðra virkni (function) með hefðbundinni tilraunanálgun lífeðlisfræðinnar“.75 Hann opinberaði hér að formfræðin sem slík var ekki vandamálið held- ur sú fullvissa margra formfræðinga að skilningur á þroskaferli einstak- lingsins lægi í þróunarferli teg- undarinnar. Eftirmenn Jenkinsons á millistríðsárunum endurómuðu þessi sjónarmið, og gefur það til kynna að andúðin, sem Allen taldi beinast gegn formfræðinni sem slíkri, virðist í Bretlandi einungis hafa beinst gegn formfræði sem var undir áhrifum frá endursagnar- tilgátunni. Lokaorð Uppbygging rannsóknaaðstöðu, tímarits og félags er nauðsynlegur þáttur í þróun allra vísindagreina. Þetta felur í sér að stofnanavæðing er ekki síður mikilvæg en kenn- ingarnar sem vísindin byggjast á. Vísindasagnfræðingurinn Andrew Cunningham ítrekaði þetta nýlega með því að benda á að það sé innan vísindastofnana sem skipulagning, viðhald og þroskun vísindaþekk- ingarinnar fer fram.76 Stofnun líf- eðlisfræðideildarinnar í Plymouth, tímaritsins British Journal of Experi- mental Biology og Tilraunalíffræði- félagsins var mótið sem hélt utan um framgang tilraunadýrafræðinn- ar í Bretlandi á þriðja áratug síðustu aldar og gerði fræðigreininni kleift að slíta sig frá skyldum greinum á borð við formfræði og lífeðlisfræði. Eins og hér hefur verið lýst óx starfsemi lífeðlisfræðideildarinn- ar í Plymouth jafnt og þétt allan þriðja áratuginn, hvort sem horft er til birtra vísindagreina eða fjölda gistivísindamanna sem vann við deildina. Þrátt fyrir erfiða byrjun óx vegur BJEB/JEB einnig til mikilla muna á árunum eftir að Gray tók við ritstjórn þess.77 Til marks um þetta jókst sala á tímaritinu úr 217 eintökum árið 1924 í 363 árið 1932,78 þrátt fyrir gríðarlega erfitt efnahags- ástand í Bretlandi á þessum árum. Sama átti við um Tilraunalíffræði- félagið, en félögum í því fjölgaði úr 120 árið 1924 í 325 árið 1933.78 Allt er þetta til marks um mikinn uppgang tilraunadýrafræðinnar í Bretlandi í kjölfar þess að stofnan- irnar þrjár voru settar á laggirnar. Skýr vísbending um þetta er að ráðstefna félagsins í september 1928 var haldin samhliða þingi Breska vísindaeflingarfélagsins og voru haldnir sameiginlegir fundir annars vegar með dýrafræðideildinni og hins vegar með grasa-, lífeðlis- og dýrafræðideildunum. Um það bil þrjátíu árum eftir ákall Herdmans var tilraunadýrafræðin því loksins byrjuð að fóta sig innan BAAS og breskra háskóla. Summary The rise of experimental zoology in Britain took place in the early 1920s, nearly three decades after it started to gain a foothold in the US. After few abortive attempts to introduce the ex- perimental approach into British zool- ogy in the 1900s and 1910s, experimen- tal zoology was finally institutionalised in 1920 at the behest of George P. Bidder (1863–1954). This happened when the Marine Biological Association of the United Kingdom added a physiology department to its Plymouth laboratory. Initially the impact of the physiology department was limited but after 1923 the number of visiting researchers and papers published started to rise signifi- cantly. One of the reasons for this was the establishment of the British Journal of Experimental Biology and the Society for Experimental Biology in 1923, where the main protagonists were Francis A.E. Crew (1886–1973), Lancelot Hogben (1895–1975), Julian Huxley (1887–1975) and few of their friends. These institu- tions were responsible for increasing the profile of experimental zoology in Britain in the coming years. The journal was initially faced with financial and editorial problems that were solved in 1925 when Crew, Hogben and Huxley joined forces with Bidder and James Gray (1891–1975) to merge the BJEB with the Biological Proceedings of the Cambridge Philosophical Society. Contrary to Garland Allen’s thesis that the rise of experimental zoology in the US was characterised by a revolt for morphology, the British story reveals that the experi- mental zoologists were not revolting against morphology as such, but mor- phology influenced by Ernst Haeckel’s (1834–1919) recapitulation theory.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Náttúrufræðingurinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.