Ægir - 01.04.2013, Blaðsíða 10
10
F I S K E L D I
„Lykillinn að okkar velgengni
er vöruvöndun. Við leggjum
mikla áherslu á gott hráefni
og allur okkar vinnsluferill er
vaktaður þannig að ekkert
fari úrskeiðis. Hjá okkur er
engin sjálfvirkni í vinnslunni,
varan er öll handunnin,“ segja
þau Svanfríður Halldórsdóttir
og Gunnar L. Jóhannsson en
þau reka Fiskieldisstöðina
Hlíð og matvælafyrirtækið
Betri vörur í Ólafsfirði. Þau
hafa ræktað bleikju í ríflega
25 ár, vinna fiskinn sjálf og
auka verðmæti vörunnar með
því að grafa og reykja.
Byggðu upp á ný eftir
eldsvoða
Í byrjun janúar í fyrra varð
eldsvoði í Fiskeldisstöðinni
Hlíð með tilheyrandi stór-
tjóni, en nú hafa þau hjónin
byggt starfsemina upp á nýj-
an leik og er hún nú komin á
fullt skrið. „Bruninn varð
auðvitað mikið áfall og
við vorum í fyrstu í al-
gjörri óvissu um hvað
við myndum gera. Þó
svo að eldishluti
bygginganna hefði
ekki brunnið þá
drapst þar þó nokk-
uð af fiski og vinnslu-
álman brann til kaldra kola
og allt sem þar var inni,“
segja þau Gunnar og Svan-
fríður. Fáum dögum eftir
eldsvoðann bauðst þeim hús-
næði inni í Ólafsfirði, á efri
hæð hússins númer 7 við
Múlaveg. „Við tókum því
með þökkum og allt var sett í
gang. Við fórum á fulla ferð í
verkefnið, innréttuðum hús-
næðið og pöntuðun tæki og
tól. Sem betur fer gekk allt
eins og í sögu en við nutum
aðstoðar góðra manna. Þann-
ig að einungis 6 vikum eftir
brunann fór fyrsta sending af
vörum frá okkur.“
Þau Svanfríður og Gunnar
skiptu rekstri sínum upp fyrir
þremur árum, þannig að ann-
ars vegar reka þau Fiskeldis-
stöðina Hlíð og stofnuðu svo
einkahlutafélag um vinnslu-
hlutann, Betri vörur ehf. Lax
og bleikju hafa þau í gegnum
árin fengið frá Rifósi í Keldu-
hverfi og segja hráefnið ein-
staklega gott. Laxeldi þar hef-
ur nú verið hætt, en bleikjuna
fá þau áfram þaðan en hafa
stofnað til viðskipta við Fjarð-
arlax og kaupa allan lax frá
því fyrirtæki. „Við vonum að
þau viðskipti muni ganga jafn
greiðlega og við Rifósmenn,
bæði hvað varðar gæði og af-
greiðslu og höfum ekki
ástæðu til að ætla annað en
að svo verði,“ segja þau.
Persónuleg samskipti við
viðskiptavini
Fyrirtækið Betri vörur fram-
leiðir reyktan og grafinn lax,
reykta bleikju, ný bleikjuflök
Fiskeldisstöðin Hlíð og Betri vörur í Ólafsfirði:
Vöruvöndun og gott hráefni
lykill að velgengni
Gunnar við eitt af eldiskerjunum í stöðinni í Hlíð.