Ægir - 01.04.2013, Page 46
46
Fornubúðir 3 - 220 Hafnarfjörður - Sími 555 6677 - oli@umb.is
Project1 3/31/07 12:20 PM Page 1
S J Ó M E N N S K A N
fyrst á Ými og síðan Rán en á
Þór hef ég verið stýrimaður
og skipstjóri í afleysingum í
bráðum átta ár.“
20-30 erlend skip á svæðinu
Tryggvi segir að erlendu
skipin hafi líka verið að fiska
mjög vel í úthafinu. Á milli 20
og 30 erlend skip voru á
svæðinu, mest Rússar og
Spánverjar en líka Norðmenn.
Bletturinn var við landhelgis-
línuna og færðist inn í land-
helgina og út úr henni. Þó
hafi alltaf verið veiði líka
meðfram línunni. Þegar skip-
in eru frá veiðum hluta úr
sólarhring verða veiðarnar að
hans sögn auðveldari og um-
ferðin minni.
Um borð í Þór er stanslaus
vinnsla í gangi og ganga
menn átta tíma vaktir. Áhöfn-
in telur 26 manns. „Þetta er
alveg eðal samfélag og allt til
alls hér um borð,“ segir
Tryggvi. Um borð er góð lík-
amsrækt og menn hafa að-
gang að flestum sjónvarps-
stöðum og Interneti. Útiveran
er yfirleitt um 35 dagar.
Eins og á Miklubrautinni
„Samvinna við erlendu skipin
er mjög góð og eru fastar
umferðarreglur sem við fylgj-
um, eins og t.d. að halda
vissri fjarlægð frá landhelgis-
línu. Skipin raða sér upp og
mætast með 300 faðma milli-
bili. Þetta er eins og á Miklu-
brautinni, margar akreinar.
Þetta fyrirkomulag er nauð-
synlegt þar sem veiðarfærin
eru engin smásmíði og við
erum með þau 1.000-2.000
metra aftan við okkur. Karfa-
bletturinn færðist norðnorð-
vestur með landhelgislínunni
í línudansi þar sem ýmist var
meira fyrir innan línu eða ut-
an hana.
Tryggvi segir ekki hægt að
líkja aðstöðunni um borð í ís-
lenskum togurum saman við
það sem var áður fyrr. Hann
segir að stærsta breytingin sé
líklega fjarskiptasambandið
við landið í gegnum Internet-
ið. „Það er algjör bylting því
nú erum við í góðu símasam-
bandi í gegnum netið. Hér
eru allir nettengdir og í góðu
sambandi.“
Tryggvi Eiríksson stýrimaður á Þór HF segir úthafskarfavertíðina nú þá langbestu frá því hann byrjaði að stunda þessar veiðar.