Dagblaðið Vísir - DV - 30.12.2011, Page 2
2 | Fréttir 30. desember 2011 Áramótablað
Þriggja ára hetja
Ólafur Karl
Óskarsson
var valinn Hetja
ársins 2011 af les-
endum DV. Ólafur
er þriggja ára og
hefur verið veikur
frá fæðingu. Hann
fæddist með eitt
nýra sem er nú
óstarfhæft og þarf
að mæta á skilunardeild Landspítal-
ans þrisvar í viku, nokkra tíma í senn
í blóðskilun. Þetta er erfið meðferð
en alltaf mætir Óli með bros á vör
og dundar sér meðan á meðferðinni
stendur. Fjölskylda Ólafs Karls bjó á
Akureyri en þurfti að flytja til Reykja-
víkur þegar hann byrjaði í blóðskilun
fyrir rúmu ári.
Stórtækt félag
Fjárfestinga-
félagið Gift,
sem stofnað var
árið 2007 utan
um eignir eig-
enda og trygg-
ingataka Eignar-
haldsfélagsins
Samvinnutrygg-
inga, er orðið
einn stærsti eigandi fasteigna í Ör-
firisey. Um er að ræða 18 fasteignir
á Eyjarslóð og Hólmaslóð sem eru
verðmetnar á nærri 650 milljónir
króna samkvæmt brunabótamati
eignanna. Fasteignirnar voru áður í
eigu eignarhaldsfélagsins Góms, sem
meðal annars var í eigu Magnúsar
Jónatanssonar, Ólafs Garðarssonar,
Byrs og Sparisjóðabankans.
Ósátt við úthlutun
Kópavogs-
bær braut
lög og mismun-
aði freklega um-
sækjendum um
byggingalóðir í
Kópavogi, þegar
bærinn úthlutaði
lóðum við götuna
Kópavogsbakka
árið 2005.
Þetta kemur fram í dómi Hæsta-
réttar Íslands, sem dæmdi þann 24.
nóvember síðastliðinn bæinn til að
greiða hjónum skaðabætur. Hjónin
höfðu sótt um þrjár lóðir í bænum en
ekki fengið. Margir sóttu um lóðirnar
þrjár en meðal þeirra sem fengu lóð
var dyggur stuðningsmaður Gunnars
I. Birgissonar, þáverandi bæjarstjóra
í Kópavogi.
Fréttir vikunnar í DV
1 2 3
Félag Hannes-
ar í þrot
FI fjárfestingar, félag fjárfestisins
Hannesar Smárasonar, hefur verið
tekið til gjaldþrotaskipta og verður
skiptafundur í mars á næsta ári. FI
fjárfestingar, áður Primus, sem var
stærsta félag Hannesar og móðurfélag
Eignarhaldsfélagsins EO, Eignar-
haldsfélagsins Sveips, Hlíðasmára 6
og Runns 4. Félagið hefur ekki skilað
ársreikningi frá árinu 2007 en sam-
kvæmt þeim reikningi var félagið
orðið tæknilega gjaldþrota strax í árs-
lok 2007. Eigið fé FI fjárfestinga var þá
neikvætt um nærri 4 milljarða króna.
DV hefur áður greint frá því að öll
félög Hannesar Smárasonar stefni í
þrot. Nýlegir ársreikningar fjögurra
eignarhaldsfélaga Hannesar fjár-
festis sýna erfiða stöðu þessara félaga.
Eignarhaldsfélögin eiga það öll sam-
eiginlegt að Hannes skilaði ekki inn
ársreikningum félaganna fyrir árið
2008; ársreikningar fyrir 2009 skiluðu
sér hins vegar til ársreikningaskrár í
seinni hluta apríl.
Ungir menn
þjófstörtuðu
Lögreglan á Akranesi hefur upplýst
stórfelldan flugeldaþjófnað þar í bæ
en aðfaranótt miðvikudags var brot-
ist inn í geymslugám í eigu Knatt-
spyrnufélags ÍA og Kiwanis á Akra-
nesi. Höfðu þjófarnir á brott með
sér flugelda að andvirði hundruð
þúsunda.
Í hádeginu á fimmtudag barst lög-
reglunni ábending sem leiddi til
þess að grunur féll á tvo unga menn.
Þeir játuðu á sig þjófstartið og skil-
uðu megninu af þýfinu. Einhverju
höfðu þeir þó skotið upp en þeir hafa
í hyggju að endurgreiða eigendum
flugeldanna tjónið við fyrsta tækifæri.
Fer frá aldna
auðmanninum
n Anna Mjöll og Cal Worthington skilja eftir 9 mánaða hjónaband n Ríkasti bílasali
Bandaríkjanna n 50 ára aldursmunur n Fyrirtæki hans velta 600 milljónum dala árlega
Sækir um skilnað Anna Mjöll hefur sótt um skilnað frá eiginmanni sínum til níu mánaða.
A
nna Mjöll Ólafsdóttir söng-
kona hefur sótt um skilnað
frá eiginmanni sínum,
bandaríska bílasalanum
Cal Worthington, eftir níu
mánaða hjónaband. Það var slúð-
urfréttasíðan TMZ sem greindi frá
þessu síðdegis á miðvikudag. Ástæða
skilnaðarins mun vera ósættanlegar
ágreiningur á milli þeirra hjóna.
Fimmtíu ár skilja þau að, en Anna
Mjöll er 41 árs og Cal 91 árs. Þau giftu
sig með pompi og prakt þann 9. apríl
síðastliðinn. Ráðahagurinn vakti
ekki bara athygli á Íslandi, heldur
einnig í fjölmiðlum vestanhafs, enda
Cal einn þekktasti og ríkasti bílasal-
inn í Bandaríkjunum.
Samkvæmt TMZ hefur Anna
Mjöll krafist framfærslu frá eigin-
manni sínum eftir skilnaðinn. Það
má því ætla að þau hafi ekki gert
kaupmála eins og algengt er þegar
annar aðili í hjónabandi er mun efn-
aðri en hinn.
„Hann er alveg einstakur“
Svanhildur Jakobsdóttir, móðir
Önnu Mjallar, sagði í samtali við
DV skömmu eftir brúðkaupið að
hún hefði þekkt Cal í sjö ár. „Þetta er
yndislegur maður í alla staði,“ sagði
hún um tengdasoninn, bráðum fyrr-
verandi. „Hann er alveg einstakur,“
bætti hún við.
Svanhildur og Ólafur Gaukur
heitinn, faðir Önnu Mjallar, voru við-
stödd brúðkaupið og birti Svanhild-
ur myndir frá því á Facebook-síðu
sinni. Öll fjölskyldan brosti og virt-
ist geisla af hamingju, hvítklædd frá
toppi til táar.
Veltir 600 milljónum dala á ári
Cal hefur í gegnum tíðina vakið verð-
skuldaða athygli fyrir sérstakar sjón-
varps- og útvarpsauglýsingar sínar.
Hann birtist gjarnan með „hundin-
um“ Spot, sem er í raun aldrei hund-
ur. Spot hefur til að mynda komið
fram sem mörgæs, naut og fíll.
Cal á að baki þrjú önnur hjóna-
bönd og á sex börn á aldrinum 9 til
63 ára. Hann er mjög efnaður, en
samkvæmt umfjöllun The Los Ange-
les Times á síðasta ári á hann fjór-
ar bílasölur, tíu skrifstofubyggingar,
tvær verslunarmiðstöðvar, tíu þús-
und ekra búgarð, upptökuver, aug-
lýsingastofu og fjárfestingarfyrir-
tæki. Fyrirtæki hans eru sögð velta
600 milljónum dala á ári.
Skiptir máli að hafa í sig og á
Anna Mjöll, sem búsett hefur verið í
Los Angeles í tæpa tvo áratugi, sagði
í einlægu viðtali í DV í janúar síðast-
liðnum „…að stundum geti pening-
arnir orðið meira böl en hamingja og
þá einangrist fólk.“ Hún bætti þó við:
„Áhyggjuleysi skiptir miklu máli og
ef maður hefur nægilegt fé til að hafa
í sig og á, þá er maður á besta staðn-
um.“ Fái Anna Mjöll framfærslu frá
Cal líkt og heimildir herma að hún
hafi óskað eftir, ætti hún að geta lifað
áhyggjulausu lífi.
Anna Mjöll hefur sjálf verið að
gera það gott vestanhafs sem djass-
söngkona. Hún treður reglulega upp
í djassklúbbum fyrir fullu húsi og í
fyrra gaf hún út tvær plötur sem faðir
hennar útsetti.
Ekki náðist í Önnu Mjöll við
vinnslu fréttarinnar.
Sólrún Lilja Ragnarsdóttir
solrun@dv.is
„Áhyggju-
leysi
skiptir miklu
máli og ef
maður hefur
nægilegt fé til
að hafa í sig og
á…“
Skeifunni 8 • 108 Reykjavík • Sími: 517-6460
www.belladonna.is
Flott föt fyrir
flottar konur,
Alltaf eitthvað nýtt
og spennandi
Stærðir
40-60.
Flott jólaföt
fyrir flottar konur